Hið gullna svæði Ítalíu

Fararsnið hefur á undanförnum árum boðið upp á Sælkeragöngur í Toskana á Ítaliu. Í þessum ferðum njótum við einstakrar náttúrufegurðar, léttrar hreyfingar, matar- og vínmenningar í héraðinu sem gjarnan er nefnt hið gullna svæði Ítalíu. Byggingarlistin  og myndlistin á sér enga hliðstæðu enda má segja að fæðingarstaður endurreisnarinnar sé í Toskana héraði. 

Við höfum ákveðið að bjóða tvær ferðir til Toskana á næsta ári, í lok maí / byrjun júní og í ágúst. Báðar ferðirnar seldust upp í fyrra. Við ferðumst í litlum hópum og einbeitum okkur að því að njóta þeirra listisemda sem þetta sögufræga hérað hefur að bjóða.

Gist á glæsilegu hóteli

Gist verður í bænum Montecatini Terme á Grand Hótel Vittoria sem er glæsilegt hótel í Liberty stíl. Hótelið stendur ofarlega í bænum en er þó í þægilegu göngufæri frá miðbænum. Veitingahús eru fjölmörg og bjóða uppá  úrval kræsinga. Við hótelið er sundlaug og fallegur garður þar sem hægt er að njóta hvíldar. Hótelið býður líka upp á heilsumeðferðir þar sem fá má allskyns dekur sé þess óskað.

Gangan í bæinn tekur um 7 mínútur og gaman að ganga niður breiðgötuna sem liggur frá hótelinu og var á gullaldarárum Montecatini Terme glæsileg heimreið að þessu fína hóteli.

Menningarferðir til Lucca, San Gimignano og Vinci

Ferðin til Lucca er fyrsti viðkomustaður okkar en Lucca var valdamikið borg-ríki og ein af mikilvægustu borgum Ítalíu á miðöldum. Hringlaga  borgarmúr umlykur þessa fallegu borg sem á sér merka sögu og var Leonardo da Vinci einn af nokkrum sem komu að hönnun múrsins. Við fáum innsýn inn í sögu og menningu borgarinnar með innlendri staðarleiðsögn sem enginn verður svikinn af. Puccini var fæddur og alinn upp í Lucca og var hann alla tíð mjög stoltur af heimahögunum. Eftir góða fræðslu fáum við rúman tíma til að kíkja í verslanir, fá okkur hressingu í iðandi mannlífinu, ganga um, njóta eða leigja hjól og hjóla uppi á borgarmúrnum sem er bæði aðgengileg og skemmtileg upplifun.

Næsti bær sem við heimsækjum er Vinci en þar förum við í gönguferð um æskuslóðir Leonardo da Vinci. Þann dag munum við ganga um hæðir og vínekrur, landslag sem veitti meistara Vinci mikinn innblástur. Við munum heimsækja vínbónda á leið okkar, smakka á framleiðslunni og fá hádegishressingu.
Þegar maginn er mettur höldum við áfram til Vinci þar sem okkur gefst kostur á að skoða safn sem heldur utanum helstu vísindaafrek meistara Vinci.
Óhætt er að segja að heimsókn á heimaslóðir þessa einstaka listamanns og það að kynnast betur uppruna hans og æviskeiði sé nærandi fyrir andann.

Að lokum förum við til San Gimignano og er sá dagur að margra mati hápunktur ferðarinnar. Bæjarstæði þessa ævintýralega miðaldabæjar sem í dag er oft nefndur „fimm turna bærinn“ er einstakt. Á miðöldum kepptust menn við að reisa hæsta turninn í bænum sem stöðutákn og þegar hæst stóð voru þeir orðnir ríflega 70 talsins. Það er því óhætt að líkja San Gimignano á miðöldum við skýjakljúfa New York borgar – á örlítið smærri skala.
Þegar við höfum skoðað okkur um í bænum tekur Fenzi fjölskyldan á móti okkur á vínbúgarðinum sem þau hafa rekið frá 1932. Við kynnumst framleiðslunni og fáum léttan hádegisverð þar sem afurðir beint frá býli verða bornar á borð.

Næði til að njóta á frídegi

Í ferðum Fararsniðs er jafnan reynt að tryggja frjálsan tíma til að njóta staðar og stundar að vild.

Hægt er að að fara til Viareggio skoða þennan fallega strandbæ hvort heldur sem er til að hvíla sig á ströndinni eða njóta byggingalistar og mannlífsins. Einfalt er að snúa aftur til Lucca, heimsækja Flórens eða Pistoia, ganga um Montecatini Terme og skoða þennan sögufræga heilsubæ sem á sínum tíma var mjög mikilvægur áningastaður betri borgara en þeir flykktust þangað til að bæta heilsuna í félagsskap annarra mektarmanna, sýna sig og sjá aðra.

Í bænum er einnig fjöldi matsölustaða sem gaman er að heimsækja.

Matur og menning

Ítalía öll er mikil matarkista og þykir okkur hjá Fararsniði gaman að bjóða upp á góðan mat og vín í ferðum okkar. Áhersla er lögð á svæðisbundna rétti í takt við „slow food“ stefnuna þar sem hráefnið er árstíðabundið og sótt í heimahagana. Við heimsækjum vínbændur og ólífusamlag þar sem við fáum innsýn inn í ræktunina og þær áskoranir sem henni fylgja.

Flestar máltíðir sem innifaldar eru í dagskránni eru margrétta máltíðir með víni og er hver og einn staður valinn með tilliti til einstakrar upplifunar fyrir bragðlauka og önnur skilningavit.

Til þess að næra sálina förum við m.a. í göngur í fögru umhverfi, skoðum áhugaverðar byggingar (3-7 km) og njótum létt-klassískra tónleika á einstökum stað sem er á heimsminjaskrá Unesco.

Tími til að bóka

Nánari ferðadagskrá er að finna hér:
Sælkeraganga í Toskana 28. maí – 4. júní 2026
Sælkeraganga í Toskana 24.-31. ágúst 2026

Ef einhverjar spurningar vakna eða vinahópurinn/saumaklúbburinn er að velta fyrir sér að bóka ferð saman er hægt að hafa sambandi á bokanir@fararsnid.is eða í síma 611 8811. 

Ferðakveðja,

Ásta og Guðbjörg


Uppskerugleði

Fararsnið hefur á undanförnum árum boðið upp á Vínuppskeruferðir til norður Ítalíu, ferðir sem hafa verið vinsælar bæði fyrir einstaklinga og vinahópa- enda fátt skemmtilegra en að læra, njóta og upplifa í góðum félagsskap. Norður Ítalía, frjósamasta svæði og stærsta matarkista landsins er spennandi áfangastaður á haustin. 

Þar sem færri komust að en vildu í Vínuppskeruferðina 22.september ákváðum við að setja aðra ferð í sölu 29.september – 6.október.

Gist í sveit og borg

Við upplifum andstæður í sveit og borg – friðsæld í skjóli Alpanna og iðandi mannlíf stórborgar. Gist verður í 4 nætur á herragarði rétt norðan við Verona þar sem ekkert herbergi er öðru líkt og veitingastaðurinn laðar til sín gesti víða að enda ratar hann árlega í Michelin vísinn.

Úr sveitum Veneto héraðs færum við okkur í vestur, til Torino, fyrstu höfuðborgar Ítalíu með glæsilegar byggingar og torg. Þar gistum við á mjög góðu 4* hóteli á besta stað í borginni, rétt við aðal verslunargötuna. Á efstu hæðinni er að finna „roof-top“ bar með óviðjafnanlegu útsýni til Alpafjalla og helstu kennileita borgarinnar. Fjöldinn allur af góðum veitinga- og kaffihúsum er staðsettur í nágrenninu og einn stærsti matarmarkaður Ítalíu er í göngufæri. 

Vínkjallarar og aðrar skemmtilegar heimsóknir

Í þessari ferð þræðum við vínsvæði frá austri til vestur á norður Ítalíu. Við hefjum leikinn í Veneto héraði sem liggur að Adríahafi í austri. Hér kynnumst við Valpolicella vínum, heimsækjum vínbændur í Soave, kynnumst framleiðsluferlinu, lífrænni ræktun, áskorunum og mikilvægi vísindanna í því ferli. Orðatiltækið að uppskera eins og til var sáð er ekki alveg algilt þegar veðurguðirnir og náttúruöflin taka í taumana.

Ólífuuppskeran er aðeins seinni á ferðinni en vínuppskeran og getur hún Rebecca því gefið sér tíma til að  bjóða okkur í ólífuframleiðslu fjölskyldunnar. Hún segir okkur frá því hvernig ræktun og vinnsla á gæða ólífuolíu fer fram og hvernig allir verða að leggjast á árarnar þegar uppskeran stendur sem hæst. Hún mun einnig kenna okkur að smakka og para olíu við mat- rétt eins og gert er með vín. 

Úr Veneto héraði höldum við í gegnum Langbarðaland (Lombardia hérað) þar sem við ætlum að fræðast um flaggskip ítalskra freyðivína, Franciacorta, sem eru framleidd með tímafrekri kampavínsaðferð. 

Við endum ferðalagið í Piemonte héraði þar sem við gistum í Torino en þaðan heimsækjum við Barolo, sem er sjarmerandi lítill miðaldabær og er hvað þekktastur fyrir framleiðslu Barolo rauðvína sem margir telja þau allra bestu á Ítalíu. Þar lærum við um sögu þessara rómuðu vína, fáum að skoða vínkjallara og endum kvöldið á dýrindis máltíð með pöruðum vínum.

Matarupplifun og léttar göngur

Vínuppskeruferðin er sannkölluð sælkeraferð og er hver sælkeraveislan á fætur annarri borin á borð en margverðlaunaður kokkur á herragarðinum kennir hópnum jafnframt að elda dásamlega rétti úr héraði. Einn góður ferðafélagi komst svona að orði í lok ferðar:

„Til fyrirmyndar, Fararsnið,
á ferð um Ítalíu.
Á einu máli erum við
að allt sé upp á tíu!

Ólívur og eðalvín,
úrvalskjöt og pasta.
Ekki gráta, elskan mín,
það er engin leið að fasta!“

Þessi orð lýsa stemningunni einkar vel. En holl hreyfing er nauðsynleg í bland og njótum við þess að fara í létta göngu um beykiskóg í Lessinia þjóðgarðinum, þræða vínekrur í hlíðum Soave og rölta um Verona borg. Ef einhver er ekki upplagður til göngu er í öllum tilfellum hægt að komast hjá þeim og hitta hópinn að göngu lokinni.

Frídagur í Torínó, París Ítalíu

Frjáls tími gefst í Torino sem jafnframt er oft kölluð París Ítalíu vegna franskra áhrifa og glæsilegra bygginga. Borgin hefur upp á margt að bjóða og þarf engum að leiðast á frídeginum. Gaman er t.d að rölta um borgina, njóta mannlífs, kaffihúsastemningar og markaða, fara í skoðunarferð um borgina með strætó, skoða glæsilegar hallir eða stærsta Egyptalandssafn utan Egyptalands.

Tími til að bóka

Nánari ferðadagskrá er að finna hér:
Vínuppskeruferð til Ítalíu 29.sept – 6.okt

Ef einhverjar spurningar vakna eða vinahópurinn/saumaklúbburinn er að velta fyrir sér að bóka ferð saman er hægt að hafa sambandi á bokanir@fararsnid.is eða í síma 611 8811. 

Ferðakveðja,

Ásta og Guðbjörg


Föngum töfra Grikklands

Nú endurtökum við leikinn þar sem Sælkeraferðin til Grikklands lukkaðis svo vel í ár og færri komust að en vildu. Næsta ferð verður dagana 6. – 14. október. Ferðin stóðst heldur betur væntingar og hópurinn naut þess að skoða þetta einstaka land þar sem fortíð og nútíð mætast átakalaust og heillandi. Flogið verður beint til Aþenu og við dveljum í 8 nætur á tveimur stöðum, í Nafplio og Aþenu. Þar kynnumst við menningunni undir dyggri leiðsögn Dominik Brun, leiðsögu- og heimamanns og íslensks fararstjóra. Við munum líka njóta alls þess besta sem grísk matargerð hefur uppá að bjóða.

Gist á góðum hótelum

Fyrstu dagana munum við dvelja í bænum Nafplio þar sem við gistum á góðu fjölskyldureknu hóteli. Hótel Letonuevo er mjög vel staðsett í bænum og stutt í allt sem bærinn hefur uppá að bjóða. Í þessum einstaka hafnarbæ sem margir telja einn þann rómantískasta í Grikklandi er ljúft að rölta um og njóta mannlífs og menningar.

Í seinni hluta ferðarinnar dveljum við á Hótel Acropoliselect, mjög góðu og vel staðsettu hóteli  í miðborg Aþenu. Stutt er í alla þjónustu, markað og aðeins er stutt ganga að Acropolishæðinni frá hótelinu. 

Skoðunarferðir

Af fjölmörgum viðkomustöðum okkar í þessari Sælkeraferð má nefna fornminjarnar í Epidauros, Asclepios heilsuböðin, Corinth skipaskurðinn sem er bæði sá dýpsti í heimi og ákaflega tilkomumikill að ógleymdri sjálfri Acropolishæðinni í Aþenu. Við munum eiga rólegan dag á eyjunni Aegina, þar munum við ganga um, fá okkur hádegisverð og njóta lífsins.

Næði til að njóta á frídögum

Í þessari ferð eru tveir frjálsir dagar til að gera það sem hugurinn girnist. Við fáum frídag í Nafplio sem hægt væri að nýta til að rölta um, slaka á í bænum eða fara á ströndina. Tímann má ennfremur nota til að skoða Palamidi kastalann sem stendur í hlíðunum fyrir ofan bæinn og  var reistur af Feneyingum á mettíma um 1713,  en hann gegndi mikilvægu hlutverki í grísku uppreisninni.

Annar frídagur gefst svo í Aþenu í lok ferðar en þar þarf engum að leiðast enda einstaklega lífleg borg.

Að lifa til að borða eða …

Ómissandi í Sælkeraferðum Fararsniðs eru heimsóknir til vínbænda og þessi ferð er engin undantekning frá þeirri reglu. Við fáum leiðsögn um vínakrana, kynnumst framleiðsluferlinu og fáum að smakka afurðirnar. Einnig heimsækjum við ólífubónda og framleiðanda  lífræns balsamikediks og  fáum að gæða okkur á lokaafurðum þeirra. Margir þekkja grísku útgáfuna af „brennivíni” Ouzo og Tsipouro sem svipar til Grappa á Ítalíu en við fáum einnig innsýn í framleiðsluna á því. Þegar til Aþenu er komið fáum við leiðsögn um líflegan matarmarkað þar sem heimamenn versla og ferskmetið fyllir borðin.

Tími til að bóka

Nokkur sæti eru laus í þessa einstöku ferð þar sem við dekrum við öll skilningarvitin.

Nánari ferðadagskrá er að finna hér:
Sælkeraferð til Grikklands 6. – 14. október 2025

Ef einhverjar spurningar vakna eða vinahópurinn/saumaklúbburinn er að velta fyrir sér að bóka ferð saman er hægt að hafa sambandi á bokanir@fararsnid.is eða í síma 611 8811. 

Ferðakveðja,

Ásta og Guðbjörg


Hreyfigleði – fyrir þig?

Í júní höldum við í  Hreyfigleðiferð til Toskana og Cinque Terre í þriðja sinn. Jómfrúarferðin fyrir 2 árum lukkaðist ákaflega vel þrátt fyrir að veðurguðirnir hefðu skorað á okkur – en íslenski hópurinn sem kom úr fremur slöku sumarveðri á Íslandi lét það ekki á sig fá! Stemningin var frábær og ný upplifun á hverjum degi. 

Hreyfigleði-hugmyndin varð til vegna samblands af óskum ferðafélaga okkar og eigin áhuga á þessu ferðamynstri. Því ekki að hreyfa sig mátulega í fríinu, hafa það huggulegt á eftir í góðri gistingu og gera vel við sig í mat og drykk? Þetta er í grunninn sama hugsun og í vinsælum Sælkeragöngum Fararsniðs en hér er enn meiri áhersla lögð á hreyfinguna.

Er Hreyfigleði fyrir þig?

Þetta er ferð sem hentar þeim sem vilja njóta en ekki þjóta en hafa jafnframt gaman af því að hreyfa sig í fríinu. Þeir sem komast upp að steini í Esjunni án mikilla átaka eiga ekki í vandræðum með hreyfihluta þessarar ferðar. Það þarf enginn að hafa siglt á kanóa eða klætt sig í blautbúning áður – Að reyna það í fyrsta skipti saman er bara hluti  ævintýrisins. Oft er hægt að finna „léttari útgáfu“ af hreyfingunni, gerist þess þörf. 

Gist í sveit og borg 

Fyrstu 4 næturnar gistum við í Lunigiana sem er nyrsti hluti Toskana héraðs, við rætur Appenninafjallanna. Nánar tiltekið í útjaðri miðaldabæjarins Pontremoli þar sem við njótum sveitasælu og einstakrar fjallasýnar. Stór garður með sundlaug og púttvelli umlykur hótelið og í eldhúsinu er áhersla lögð á að framreiða aðeins úr hráefni af svæðinu. Í Lunigiana er slow food hugmyndafræðin áberandi en hún varð til sem öflugt andsvar við skyndibita bylgjunni. Kjörið tækifæri gefst á meðan dvalið er í Pontremoli til að nýta hótelgarðinn eftir fjölbreytta hreyfingu hvers dags og slaka á. 

Á fimmta degi færum við okkur á malbikið – yfir til hafnarborgarinnar La Spezia þar sem við gistum þrjár síðustu næturnar á hótel Firenze e Continentale sem er mjög vel staðsett í miðbænum, rétt við brautarstöðina (sem er heppilegt ef einhverjir vilja framlengja ferðina). 

La Spezia, sem er einskonar inngangur í Cinque Terre þjóðgarðinn, er ekki stór borg en hefur blómstrað á undanförnum árum með aukinni ferðaþjónustu og komu skemmtiferðaskipa. Því má finna þar fjölbreyttar verslanir, góð veitingahús af ýmsum toga, líflegt mannlíf og skemmtilega höfn. 

Hreyfingin

Fjölbreytt hreyfing bíður okkar í þessari ferð. Í Lunigiana hjólum við á milli fallegra miðaldaþorpa og sveita, göngum upp eftir árfarvegi inn í fallegt gil þar sem við þurfum að synda á köflum, förum í fjallgöngu upp í Appenninafjöllin og göngum þar í sameiginlegum þjóðgarði tveggja héraða, Toskana og Emilia Romagna.

Ef einhver treystir sér ekki alla leið upp á topp í fjallgöngunni má hinkra miðja vegu  upp við fallegt vatn, Lago Santo og skoða sig um á meðan hópurinn fer alla leið.

Í seinni hluta ferðarinnar hjólum við í Cinque Terre þjóðgarðinum og förum í kanóa/kayaksiglingu meðfram strandlengjunni frá bænum Lerici þar sem við könnum fallegar víkur á leið okkar. 

Matarmenning

Í fyrri hluta ferðarinnar er fullt fæði innifalið þar sem við kynnumst matarhefðum Toskana héraðs og Lunigiana svæðisins en þegar komið er til La Spezia er hádegisverður og kvöldverður á eigin vegum enda er þar fjölda veitingahúsa að finna og gefst því gott tækifæri til að prófa sig áfram og gæla við bragðlaukana. 

Það er  tilhlökkunarefni að bjóða uppá aðra ferð um þetta skemmtilega svæði á mörkum Toskana og Liguria og upplifa þar í góðum félagsskap einstaka náttúrufegurð, menningu og matarhefðir.  

Þetta höfðu ferðafélagar að segja eftir seinustu ferð

„Takk fyrir frábæra ferð og fararstjórn í dásamlegu umhverfi. Mæli sannarlega með þessari skemmtilegu hreyfiferð! Veðrið var kannski ekki upp á 10 hjá okkur en það gerir minna til í góðum félagsskap og með Guðbjörgu fararstjóra sem leysir alla hnúta farsællega.” – Kristjana Sigurgeirsdóttir

„Ég er nýkomin heim úr Hreyfigleðiferð í Toskana, og er óhætt að segja að ferðin hafi bæði uppfyllt ,,hreyfingu og gleði,,. Frábærir farastjórar, gott skipulag, fjölbreytt og góð dagskrá. Ég er strax farin að skoða aðrar ferðir sem Fararsnið er með í boði fyrir næsta haust.” – Björk Guðbrandsdóttir

Tími til að bóka

Það eru aðeins 20 sæti í boði í hverri ferð og salan hefur farið vel af stað enda er þetta kjörin ferð til að njóta með maka eða vinum í skemmtilegu umhverfi. Svo er auðvitað upplagt að tryggja sér sæti núna og nýta ferðina sem hvatningu til að hreyfa sig reglulega í vetur! 

Nánari ferðadagskrá er að finna hér:
Hreyfigleði í Toskana og Cinque Terre 15.-22. júní

Hreyfigleði í Toskana og Cinque Terre 5. -12. september

 

Ert þú með hóp í huga?

Ef svo er getum við einnig skoðað í sameiningu sérferð í þessum dúr sumarið 2027 sem fellur sem best að ykkar þörfum. 

Ef einhverjar spurningar vakna eða vinahópurinn/saumaklúbburinn er að velta fyrir sér að bóka ferð saman er hægt að hafa samband á bokanir@fararsnid.is  eða í síma 776 0875. 

Töfrar Grikklands

Í september ætlum við í sælkeraferð til Grikklands í fyrsta skipti í sögu Fararsniðs. Til landsins þar sem fortíð og nútíð mætast átakalaust og heillandi. Flogið verður beint til Aþenu og dvalið í 8 nætur á tveimur stöðum, í Nafplio og Aþenu. Þar kynnumst við menningunni undir dyggri leiðsögn Dominik Brun, leiðsögu- og heimamanns og íslensks fararstjóra. Við munum líka njóta alls þess besta sem grísk matargerð hefur uppá að bjóða.

Gist á mjög góðum hótelum

Fyrstu dagana munum við dvelja í bænum Nafplio þar sem við gistum á góðu fjölskyldureknu hóteli. Hótel Agamemnon er mjög vel staðsett við ströndina í þessum einstaka bæ sem margir telja einn þann rómantískasta í Grikklandi. Ljúft er að rölta um, njóta mannlífs og menningar í þessum fallega hafnarbæ.

Í seinni hluta ferðarinnar dveljum við á Hótel International, mjög góðu og vel staðsettu hóteli  í miðborg Aþenu. Stutt er í alla þjónustu, markað og aðeins er hálftíma ganga að Acropolishæðinni frá hótelinu. 

Skoðunarferðir

Af fjölmörgum viðkomustöðum okkar í þessari Sælkeraferð má nefna fornminjarnar í Epidauros, Asclepios heilsuböðin, Corinth skipaskurðinn serm er bæði sá dýpsti í heimi og ákaflega tilkomumikill að ógleymdri sjálfri Acropolishæðinni í Aþenu. VIð munum eiga rólegan dag á eyjunni Hydra. Þar munum við ganga um eyjuna enda eru bílar og mótorhjól  bönnuð með lögum.

Næði til að njóta á frídögum

Í þessari ferð eru tveir frjálsir dagar til að gera það sem hugurinn girnist. Við fáum frídag í Nafplio sem hægt væri að nýta til að rölta um, slaka á í bænum eða fara á ströndina. Tímann má ennfremur nota til að skoða Palamidi kastalann sem stendur í hlíðunum fyrir ofan bæinn og  var reistur af Feyneyingum á mettíma um 1713,  en hann gegndi mikilvægu hlutverki í grísku uppreisninni.

Annar frídagur gefst svo í Aþenu í lok ferðar en þar þarf engum að leiðast enda einstaklega lífleg borg.

Að lifa til að borða eða …

Ómissandi í Sælkeraferðum Fararsniðs eru heimsóknir til vínbænda og þessi ferð er engin undantekning frá þeirri reglu. Við fáum leiðsögn um vínakrana, kynnumst framleiðsluferlinu og fáum að smakka afurðirnar. Einnig heimsækjum við ólífubónda og framleiðanda  lífræns balsamikediks og  fáum að gæðum okkur á lokaafurðum þeirra. Margir þekkja grísku útgáfuna af „brennivíni” Ouzo og Tsipouro sem svipar til Grappa á Ítalíu en við fáum einnig innsýn í framleiðsluna á því. Þegar til Aþenu er komið fáum við leiðsögn um líflegan matarmarkað þar sem heimamenn versla og ferskmetið fyllir borðin.

Tími til að bóka

Nokkur sæti eru laus í þessa einstöku ferð þar sem við dekrum við öll skilningarvitin.

Nánari ferðadagskrá er að finna hér:
Sælkeraferð til Grikklands 2.-10.september

Ef einhverjar spurningar vakna eða vinahópurinn/saumaklúbburinn er að velta fyrir sér að bóka ferð saman er hægt að hafa sambandi á bokanir@fararsnid.is eða í síma 611 8811. 

Ferðakveðja,

Ásta og Guðbjörg


Hvaða pizza er best ?

Það er stóra spurningin nú þegar alþjóðlegi pizzadagurinn er genginn um garð! Er það þessi ítalska þunnbotna eða ameríska þykkbotna?
Eitt er þó víst, pizzan kemur upphaflega frá Ítalíu, nánar tiltekið frá Napólí. Það er að segja í þeirri mynd sem við þekkjum í dag. Reyndar má rekja flatbrauð með áleggi til Egyptalands, Grikklands og Rómverja allt aftur til 6.aldar f.kr. 
Napólí-pizzan leit dagsins ljós á Ítalíu í byrjun 19. aldar og sló strax í gegn enda einföld og ódýr fæða sem fjölmenn verkamannastéttin kunni að meta. 

Pizza margaríta

Í heimsókn Umberto I, konungs Ítalíu og Margheritu drottningar til Napólí árið 1889 var þeim að sjálfsögðu boðið upp á pizzu sem var kölluð Pizza Mozzarella. Á henni mátti finna tómata, mozzarella ost og basiliku – enda vel við hæfi að nota ítölsku fánalitina- rauðan, grænan og hvítan. Drottningunni líkaði pizzan svo vel að Napólíbúar endurnefndu hana Pizza Margherita, drottningunni til heiðurs. Þessi pizza er okkur vel kunn í dag undir því nafni. 

Veðurumræðan

Við Íslendingar þreytumst seint á að tala um veðrið, það virðist endalaus uppspretta umræðna jafnt meðal kunnugra og ókunnugra. Svipaða sögu má segja um pizzuna á Ítalíu þar sem allir hafa skoðun á henni. Má setja ananas á pizzu eða ekki? Forseti Íslands hefur t.d tekið þátt í þeirri umræðu. Hann er alfarið á móti ananas og Ítalir eru honum almennt sammála. En hvað með ansjósur?

En áleggið er ekki eina ágreiningsefnið, hvorar eru betri, Napólí- eða Rómar pizzur? Fyrir þá sem ekki vita þá eru Napólí pizzur eldaðar við mjög háan hita í stuttan tíma en þá verða kantarnir háir og mjúkir. Rómverskar pizzur eru hinsvegar eldaðar við lægri hita í lengri tíma og verða kantarnir þynnri og pizzan öll stökkari. 

Í ferðum okkar til Ítalíu gefst nægur frítími til að kanna leyndardóma pizzunnar. Í því felst t.d. tækifæri fyrir aðdáendur til að gera samanburðarrannsókn á fyrirbærinu. Skoðaðu ferðaúrvalið hér

Sælkeraganga og rétturinn sem sló í gegn

Daginn er farið að lengja og hugur okkar farinn að reika til Ítalíu. Sælkeralandsins þar sem einstök virðing er borin fyrir hráefninu og alúð er lögð í matargerðina. Það þarf nefnilega ekki að vera flókið að töfra fram dýrindis rétti ef hráefnið er ferskt og gott – einfaldleikinn er að endingu bestur. 

Eggaldin að hætti Parmabúa

Melanzane alla Parmigiana eða eggaldin að hætti parmabúa er vinsæll en einfaldur réttur sem sló heldur betur í gegn í Sælkeragöngum Fararsniðs síðastliðið sumar. Svo mjög, að hörðustu kjötætur reyndu að múta matreiðslumeistaranum til að ljóstra uppskriftinni upp, án árangurs. 

Við stöllur gerðum tilraun til að leika þetta eftir í eldhúsinu heima. Það lukkaðist dásamlega og við deilum uppskriftinni hér að neðan fyrir áhugasama.

Allskonar upplifun

Hreyfingar og stefnur eins og slow-food, slow-travel/hægferðir og cittá-slow/hæglætisbær (stefna sem Djúpivogur tók t.d upp) eru sem betur fer orðnar fyrirferðameiri í umræðunni. Þær miða allar m.a. að því að hægja á sér, bera virðingu fyrir náttúrunni og umhverfinu, upplifa og njóta- en ekki þjóta. 

Slow food samtökin voru stofnuð á Ítalíu árið 1986 í kjölfar mikilla mótmæla vegna opnunar skyndibitastaðar rétt við Spænsku þrepin í Róm.  Tilgangurinn var meðal annars að efla meðvitund neytenda fyrir góðu, hreinu hráefni, framleiddu með sjálfbærum hætti þannig að það sé sanngjarnt fyrir bæði framleiðendur og neytendur og nota hreinar afurðir úr héraði. Sem dæmi bjóða veitingastaðir í anda slow food á Ítalíu upp á staðbundna rétti en sú nálgun gerir það að verkum að hvert svæði býður með stolti upp á svæðisbundna rétti og því er fjölbreytnin mikil milli landshluta. 

 Á Ítalíu er þessi nálgun ekki bara hugmynd á pappír – eða fyrir einhverja sérvitringa,  heldur er eins og að hún sé í blóði þjóðarinnar. Þorri ítölsku þjóðarinnar myndi ekki kaupa jarðaber utan uppskerutíma á þeirra svæði né ólífuolíu sem merkt væri „ólífur frá Evrópusambandslöndum” heldur leitast fólk við að kaupa vörur og hráefni frá framleiðendum úr nærumhverfinu. 

Þetta er stefna sem Fararsnið hefur haft að leiðarljósi í skipulagningu ferða sinna. Að fá holla hreyfingu í fallegu umhverfi, borða staðbundinn mat á völdum stöðum og njóta hans í skemmtilegum félagsskap. En eins og sagt er á Ítalíu – það eldist enginn við matarborðið. 

Melanzane alla Parmigiana:

Innihald: 
3 stór eggaldin 
Olífuolía
1 laukur
1 hvítlauksgeiri
1,5 tsk þurrkað oregano
2 dósir/eða flöskur góðir niðursoðnir tómatar ( 800g í heildina)
30g basilika (má sleppa) 
3 lúkur rifinn parmesan ostur 
2 lúkur brauðraspur
2 kúlur af Burrata osti (eða mozzarella)

Aðferð:

  1. Skerið eggaldinið í 1cm þykkar sneiðar, penslið með ólífuolíu og grillið þar til það mýkist á grillpönnu/air-fryer/ofni eða grilli-kælið sneiðarnar á bakka.
  2. Ofninn hitaður í 190 gráður ( undir og yfirhiti).
  3. Skerið lauk og hvítlauk smátt og steikið létt í potti ásamt þurrkuðu oreganói. Bætið tómötum útí og sjóðið í ca 15 mínútur eða þar til sósan þykknar. Kryddið með salti og pipar eftir smekk og bætið basiliku út í ef þið eigið hana til (hægt er að mauka sósuna með töfrasprota eða í blandara).
  4. Þá hefst samsetningin í eldfast mót: Setjið lag af tómatsósu í botninn og þekið með eggaldinsneiðum ( eins og lasagna). Dreifið smá parmesan osti og rífið burrata ost yfir með fingrunum.. Endurtakið svo 1-2 önnur lög með sama hætti ( fer eftir stærð fatsins sem þið notið). Við endum svo á lagi af tómatsósu, burrata osti, parmesan og brauðraspi.
  5. Bakið í ca 30 mínútur við 190 gráður – eða þar til yfirborðið er orðið gullið og aðeins stökkt. Buon appetito 

Afturganga í óveðri

Gardavatnið þarf vart að kynna fyrir íslenskum ferðalöngum en einn af fjölmörgum undurfögrum bæjum sem raða sér meðfram vatninu er Sirmione. Bærinn stendur  á tanga sem skagar langt út í þetta stærsta stöðuvatn Ítalíu. Sirmione er einn af viðkomustöðum okkar í Sælkeragöngu við Garda enda einstakur staður vegna sögu, menningar og náttúrufegurðar. 

Scaligero kastalinn

Í Sirmione er að finna einn best varðveitta kastala á Ítalíu en hann var byggður á 13.og 14. öld  af Scala fjölskyldunni. Nafnið hljómar eflaust kunnuglega í eyrum margra vegna óperuhússins fræga í Mílanó sem nefnt er eftir fjölskyldunni en hún var valdamikil á norð-austur Ítalíu. Kastalinn hefur þjónað mörgum hlutverkum í gegnum tíðina og var á tímabili nýttur sem fangelsi þegar Frakkar og Austurríkismenn réðu ríkjum á norður Ítalíu. Þessi mikilfenglegi kastali er á lista yfir vinsælustu viðkomustaði á Ítalíu og gefst hverjum og einum tími til að skoða safnið sem þar er, í frítímanum.

Afturgangan í óveðrinu

Sagan segir, að í kastalanum hafi búið ung hjón, hin ægifagra Arice og eiginmaður hennar hann Ebengardo. Í miklu óveðri sem gekk yfir Gardavatnið óskaði feneyskur riddari, Elaberto að nafni, eftir næturskjóli hjá ungu hjónunum sem reyndist auðsótt. Riddarinn gat hinsvegar ekki látið sér nægja að horfa á hinu fögru Arice heldur gerði hann tilraun til að ræna henni. Hún öskraði og varðist  hetjulega en með þeim afleiðingum að Elaberto stakk hana til bana. Eiginmaðurinn varð var við lætin, kom inn og sá  konu sína liggjandi á blóði sínu . Í örvæntingu sinni réðst hann á riddarann sem beið bana í átökunum.
Ebengardo lifði ekki lengi eftir þetta og dó úr sorg. Enn þann dag í dag þegar veður er vont má sjá hann ráfa um kastalann í leit að sinni heittelskuðu Arice.

Rómverskur lúxus

Á 1.öld f.kr hófu Rómverjar að byggja glæsileg 3ja hæða lúxushíbýli yst á tanganum sem Sirmione bærinn stendur á og kallast Grotte di Catullo. Í dag er þetta einn merkasti fornleifauppgröftur Ítalíu og einstakt dæmi um glæsibyggingar rómverja frá þessum tíma.

Upp úr jörðinni í Sirmione streymir steinefnaríkt vatn sem talið er heilsubætandi. Líklegt er að Rómverjar hafi vitað af heilsubætandi eiginleikum þess þegar á fyrstu öld. Á 20. öldinni hófu menn að nýta þessar heilsulindir á markvissan hátt með því að bjóða fólki upp á heilsumeðferðir.

Sælkeragöngur við Garda

Fararsnið býður upp á tvær Sælkeragöngur við Garda næsta sumar og þar munum við meðal annars þræða götur og upplifa stemninguna í þessum einstaka bæ sem Sirmione er.

Sælkeraganga við Garda 11.-18.júní 2024

Sælkeraganga við Garda 18.-25.júní 2024

Ef einhverjar spurningar vakna eða vinahópurinn/saumaklúbburinn er að velta fyrir sér að bóka ferð saman er hægt að hafa sambandi á bokanir@fararsnid.is eða í síma 611 8811. 

Ferðakveðja,

Ásta og Guðbjörg


Töfrandi Toskana

Fararsnið hefur á undanförnum árum boðið upp á Sælkeragöngur í Toskana á Ítaliu enda er þar að finna einstaka náttúrufegurð, matar- og vínmenningu. Byggingarlistin  og myndlistin á sér enga hliðstæðu enda má segja að fæðingarstaður endurreisnainnar sé í Toskana héraði. 

Við höfum ákveðið að bjóða tvær ferðir til Toskana á næsta ári, í júní og í ágúst. Uppselt var í fyrri ferðina en við gátum bætt við nokkrum sætum og því eru 2 herbergi laus í þá ferð. Í þessum ferðum einbeitum við okkur að því að njóta þeirra listisemda sem þetta sögufræga hérað hefur að bjóða.

Gist á glæsilegu hóteli

Gist verður í bænum Montecatini Terme á Grand Hótel Vittoria sem er glæsilegt hótel í Liberty stíl. Hótelið stendur ofarlega í bænum en er þó í þægilegu göngufæri frá miðbænum. Veitingahús eru fjölmörg og bjóða uppá  úrval kræsinga. Við hótelið er sundlaug og fallegur garður þar sem hægt er að njóta hvíldar. Hótelið býður líka upp á heilsumeðferðir þar sem fá má allskyns dekur sé þess óskað.

Gangan í bæinn tekur um 7 mínútur og gaman að ganga niður breiðgötuna sem liggur frá hótelinu og var á gullaldarárum Montecatini Terme glæsileg heimreið að þessu fína hóteli.

Menningarferðir til Lucca, Flórens og Vinci

Ferðin til Lucca er fyrsti viðkomustaður okkar en Lucca var valdamikið borg-ríki og ein af mikilvægustu borgum Ítalíu á miðöldum. Hringlaga  borgarmúr umlykur þessa fallegu borg sem á sér merka sögu og var Leonardo da Vinci einn af nokkrum sem komu að hönnun múrsins. Við fáum innsýn inn í sögu og menningu borgarinnar með innlendri staðarleiðsögn sem enginn verður svikinn af. Puccini var fæddur og alinn upp í Lucca og var hann alla tíð mjög stoltur af heimahögunum. Eftir góða fræðslu fáum við rúman tíma til að kíkja í verslanir, fá okkur hressingu í iðandi mannlífinu, ganga um, njóta, eða leigja hjól og hjóla uppi á borgarmúrnum sem er bæði aðgengileg og skemmtileg upplifun.

Næsta borg sem við heimsækjum er Flórens með allar sínar glæstu byggingar og torg sem mörg hver eru prýdd meistaraverkum aldanna, ekki síst endurreisnartímans. Byggingar og höggmyndir eftir Michelangelo, Brunelleschi, Ghiberti, Donatello og fjölmarga aðra mikla meistara má sjá hvert sem litið er. Við göngum yfir Gömlu brúna „Ponte Vecchio” frægustu brú Ítalíu og jafnvel Evrópu. Heimildir um brúna má rekja allt til ársins 966 en hún var endurbyggð á 14. öld í núverandi mynd. Áður var á brúnni miðstöð kjöt-og fiskverslunar en er nú miðstöð skartgripasölu. Brúin á sér langa og merka sögu sem gaman er að fá innsýn í á göngu okkar með leiðsögn um borgina. Við fáum auðvitað líka frjálsan tíma í Flórens og getum valið okkur viðfangsefni að vild.

Gönguferð um æskuslóðir Leonardo da Vinci er á dagsránni hjá okkur en þann dag munum við ganga um hæðir og vínekrur, landslag sem veitti meistara Vinci mikinn innblástur. Meðal áningastaða verður æskuheimili Leonardos og bærinn Vinci sem hann var kenndur við. Einnig munum við heimsækja vínbónda á leið okkar, smakka á framleiðslunni og fá hádegishressingu.

Óhætt er að segja að heimsókn á heimaslóðir þessa einstaka listamanns og það að kynnast betur uppruna hans og æviskeiði sé nærandi fyrir andann.

Næði til að njóta á frídegi

Í ferðum Fararsniðs er jafnan reynt að tryggja frjálsan tíma til að njóta staðar og stundar að vild.

Hægt er að að fara til Viareggio skoða þennan fallega strandbæ hvort heldur sem er til að hvíla sig á ströndinni eða njóta byggingalistar og mannlífsins. Einfalt er að snúa aftur til Lucca eða Flórens til að kanna þær borgir betur, ganga um Montecatini Terme og skoða þennan sögufræga heilsubæ sem á sínum tíma var mjög mikilvægur áningastaður betri borgara en þeir flykktust þangað til að bæta heilsuna í félagsskap annarra mektarmanna, sýna sig og sjá aðra.

Í bænum er einnig fjöldi matsölustaða sem gaman er að heimsækja.

Matarupplifun

Ítalía öll er mikil matarkista og þykir okkur hjá Fararsniði gaman að bjóða upp á góðan mat og vín í ferðum okkar.

Flestar máltíðir sem innifaldar eru í dagskránni eru margrétta máltíðir með víni og er hver og einn staður valinn með tilliti til einstakrar upplifunar fyrir bragðlauka og önnur skilningavit.

Tími til að bóka

Örfá sæti eru laus sæti í ferðina okkar í ágúst. Það er því ráð að hugsa hratt og tryggja sér pláss í þessar vinsælu ferðir sem bjóða upp á einstaka upplifun í Toskana. 

Nánari ferðadagskrá er að finna hér:
Sælkeraganga í Toskana 2.-9.júní 2024 – UPPSELT
Sælkeraganga í Toskana 20.-27.ágúst 2024  – ÖRFÁ SÆTI LAUS

Ef einhverjar spurningar vakna eða vinahópurinn/saumaklúbburinn er að velta fyrir sér að bóka ferð saman er hægt að hafa sambandi á bokanir@fararsnid.is eða í síma 611 8811. 

Ferðakveðja,

Ásta og Guðbjörg


Sæludagar við Garda

Töfrandi blanda fegurðar, menningar og afþreyingar

Gardavatnið, stærsta vatn Ítalíu sem teygir sig upp í Alpana hefur löngum verið vinsæll áfangastaður enda býður það upp á svo ótal margt sem heillar ferðaglaða. Sælkeraganga við Garda hefur verið hluti af ferðaframboði Fararsniðs um langt skeið og verið vinsæl bæði meðal vinahópa og einstaklinga. Færri komust að en vildu í ár og því verða 2 ferðir í boði í júní 2024. 

Gisting á einstökum útsýnisstað 

Hótel Poiano sem gist er á er staðsett upp í hlíðunum fyrir ofan bæinn Garda og er aðstaðan þar öll til fyrirmyndar. Veitingaaðstaða er góð á hótelinu og hægt að njóta hennar úti og inni í einstöku umhverfi. Grænt svæði umlykur hótelið og skartar það 50m langri sundlaug með sundlaugarbar, sólbekkjum og útsýni yfir Gardavatn. Hreyfiglaðir geta tekið þátt í sundleikfimi sem þar er boðið upp á. Mjög góð Spa- og líkamsræktaraðstaða er á staðnum ásamt púttvelli og ýmsum öðrum afþreyingarmöguleikum innan hótelgarðsins. Margir njóta þess að eyða frítíma ferðarinnar í garðinum, slaka á og eiga notalegar stundir með ferðafélögunum. 

Hótelið er í 25 mín göngufæri frá miðbænum í Garda en hótelið býður líka upp á reglulegar ferðir yfir daginn og einfalt er að taka leigubíl kjósi menn það. 

Næring fyrir líkama og sál

Sælkeraganga eins og nafnið felur í sér er sambland af léttum göngum og sælkeramáltíðum. Á fyrsta degi förum við í siglingu til Sirmione sem staðsett er á sérkennilega löngum tanga sem skagar út í Gardavatnið. Eftir göngu um bæinn fáum við frjálsan tíma til að næra okkur og njóta líflegs mannlífsins áður en heim er haldið. 

Göngurnar eru mis-langar og erfiðar, t.d. göngum við einn daginn frá hótelinu, meðfram strandlengjunni, að bænum Bardolino sem er einn af fjölmörgum póstkortabæjum við vatnið. Á leiðinni má sjá heimamenn dorga, kát börn með fullar fötur af nýveiddum smáfiski, ferðamenn að njóta umhverfisins með ítalskan- gelato ís eða litríkt Spritz í glasi. Þessi ganga endar svo með glæsilegum kvöldverði á fjölskyldureknum veitingastað. 

Seinasta gangan verður á La Rocca – höfðann sem gnæfir yfir bænum Garda en sú ganga er nokkuð á fótinn. Okkur verður þó ríkulega launað, bæði af fegurðinni sem blasir við þegar horft er yfir vatnið og með hádegisverðinum sem hún Elena býður okkur upp á í garðinum hjá sér áður en við höldum áfram síðasta spölinn heim á hótel.

Menningin og sagan 

Menning og saga lætur engan ósnortinn í dagsferð okkar til Verona. Þann dag skoðum við þessa einstöku borg, byggingarlist aldanna þar sem áin Adige hlykkjast um. Við þræðum helstu götur og torg og njótum mannlífsins. Frjáls tími í borginni áður en okkur verður vísað til sætis á glæsilegum veitingastað sem staðsettur er í sögufrægri höll í hjarta Verona. Hápunkti dagsins verður svo náð þegar við fáum að upplifa óperuuppfærslu í sjálfri Arenunni, hinu best varðveitta hringleikahúsi frá tímum rómverja (meira um Arenuna hér) 

Næði til að njóta

Af nægu er að taka á frídegi ferðarinnar eða þegar frí gefst hluta úr degi. Auðvelt er að fara með hótelbílnum til Garda og njóta mannlífsins þar, taka ferju til næstu bæja, leigja hjól, njóta aðstöðunnar á hótelinu eða taka kláf upp á Monte Baldo frá bænum Malcesine svo fátt eitt sé nefnt. 

Fjölda góðra veitingastaða er að finna á svæðinu þar sem boðið er upp á mat úr héraði og vinalega þjónustu. 

Nánari ferðadagskrá er að finna hér:
Sælkeraganga við Garda 11.-18.júní 2024
Sælkeraganga við Garda 18.-25.júní 2024  

Ef einhverjar spurningar vakna eða vinahópurinn/saumaklúbburinn er að velta fyrir sér að bóka ferð saman er hægt að hafa sambandi á bokanir@fararsnid.is eða í síma 611 8811. 

Ferðakveðja,

Ásta og Guðbjörg


Schladming, eitt af betri Skíðasvæðum Austurríkis

Schladming sem er í einungis 1 klst. akstursfjarlægð frá flugvelli er einstaklega snjó-öruggt svæði. Það er m.a ástæðan fyrir því að Schladming svæðið er eitt af  þeim svæðum sem FIS skíðasambandið hefur valið fyrir heimsbikarkeppnina en hún hefur hann verið haldin þar í janúarmánuði síðan 1973. 

Svæðið samanstendur af fjórum svæðum sem öll eru vel tengd og auðvelt að skíða á milli þeirra allra. Strætó gengur einnig á milli svæða, kjósi menn það heldur. 

Eitthvað fyrir alla


Allir geta fundið brekkur við hæfi og skartar Schladming fjölda brekka í öllum erfiðleikastigum, bláum, rauðum og svörtum. Brekkurnar eru einnig opnar 3 kvöld í viku og er það einstök upplifun að bruna niður ný-troðnar og flóðlýstar brekkurnar.

Hótelið sem varð fyrir valinu er eitt af betri hótelum Schladming, mjög gott 4stjörnu Ski-in-out hótel, brekkurnar beint fyrir utan gluggann og skíðageymslan upphituð. Öll aðstaða er til fyrirmyndar en hótelið var gert upp í Covid, upphituð útisundlaug, panorana-gufubað með útsýni yfir skíðasvæðið ásamt öðrum gufuböðum, einstöku hvíldarherbergi svo fátt eitt sé nefnt. Góður matur er á hótelinu og ýmislegt skemmtilegt við að vera eins og gömul keilubraut sem vekur jafnan mikla lukku. 

Schladming er þó ekki bara hvítar brekkur, heldur sjarmerandi lítill  bær með góðum kaffi- og veitingahúsum, verslunum og flestu því sem hugurinn girnist í skíðaferð.  Þú finnur austurrískan klæðnað „dirndl“ og „lederhosen“ ásamt tískufötum og einskaklega miklu úrvali af skíðafatnaði.

Après-ski stemning

Fyrir þá sem kunna að meta hressingu eða „après-ski” í skemmtilegum félagsskap eftir góðan skíðadag er úrvalið mikið og stemningin einstök. Skemmtilegir barir eru á hverju horni og endastöðvum s.s Hohenhaus Tenne, AlmArenA, Hochalm & Fassi-Bar og svo mætti lengi telja, ásamt heimabarnum við hótelið.


„Eftir að hafa dvalið á þessu hóteli í 11 daga s.l. vetur og skíðað á Schladming svæðinu er hægt að mæla með þessari ferð. Frábært hótel og frábært skíðasvæði því þetta eru fjögur svæði sem öll eru vel tengd.“ Ingólfur Bruun,2023

Skoða ferð

Blóðbað eða tónlist?

Fyrir nokkrum árum gerðum við hjónin okkur ferð í Arenuna í Verona, þetta risastóra hringleikahús sem Rómverjar byggðu á fyrstu öld e.kr. og stendur þarna enn. Þegar Arenan var byggð stóð hún utan borgarmarkanna þar sem hún hlýtur að hafa blasað við úr öllum áttum og dregið til sín skemmtanaglaða íbúa úr nærliggjandi byggðum. Svo skínandi fögur, gerð úr rauðleitum kalksteini frá Valpolicella sem greinilega er endingargott byggingarefni.Það var mikil upplifun að ganga inn í þetta forna mannvirki. Óhjákvæmilega verður manni hugsað til þess fjölda sem þangað hefur sótt skemmtanir eða spennu síðustu tuttugu aldirnar.


Sem betur fer hafa viðhorf manna til skemmtana þó breyst með tímanum. Rómvejar skemmtu sér við að horfa á skilmingarþræla og villt dýr berjast fyrir lífi sínu og fengu jafnvel að hafa áhrif á það hvort lífum þeirra skyldi þyrmt eða ekki. Ljón, tígrisdýr, krókódílar, nashyrningr og margar aðrar dýrategundir voru sóttar til Afríku og Asíu og birnir til Skotlands til þess að eins að enda líf sitt í Arenunni mönnum til skemmtunar. Skilmingaþrælar börðust ýmist hver við annan eða við dýr og dýrum var att saman. Andrúmsloftið hlýtur að hafa verið hlaðið spennu og blóðlyktin legið í loftinu.

Tónlistin tekin við


Á síðari öldum sóttu menn þangað kappleiki og mót af geðfelldara tagi en í seinni tíð hefur tónlistin verið allsráðandi. Margir frægir tónlistamenn hafa haldið tónleika í Arenunni eða komið þar fram í óperum m.a. nokkrir landar t.d. Kristján Jóhannsson, Kristinn Sigmundsson og Björk. Um 1913 varð Arenan vettvangur fyrstu raunverulegu utanhúss-óperunnar í heimi og enn er hún talin ein sú mikilvægasta.

Að skynja söguna


En nú vorum við hjónin þarna komin til að njóta tónlistar á heimsmælikvarða. Sætin okkar voru í miðjum hringnum (arenunni) þar sem bardagarnir fóru fram forðum. Það átti að flytja óperuna Carmen eftir Georges Bizet með úrvals tónlistarfóki og glæsilegri sviðsetningu.

Fjöldi fólks var þarna bæði innlent og erlent, sumir á stuttbuxum og strigaskóm og aðrir  í sínu fínasta pússi. Spenna var í loftinu og hátíðarstemning, allir komnir til að  upplifa eitthvað alveg sérstakt, njóta óperusýningari í þessu einstaka forna mannvirki og það í hlýju kvöldloftinu undir stjörnubjörtum himni, myrkur skollið á og sviðið eitt  upplýst. Ég get því sannarlega mælt með því fyrir alla, óháð tónlistaráhuga að upplifla viðburð í Arenunni. 

Höfundur: Ólöf Oddgeirsdóttir

Við sjáum óperuuppfærslu í Arenunni í þessum ferðum:

Sælkeraganga við Garda 11.- 18.júní 2024

Sælkeraganga við Garda 18.-25. júní 2024


Heilsubót Alfonso 10. Spánarkonungs

Valencia á Spáni er óneitanlega áhugaverð borg fyrir þá sem aðhyllast spennandi matargerð og menningu. Borgin býður upp á góðan mat, fallegan arkitektúr, skemmtilegt mannlíf og strönd.

Annar í morgunverði


Matarmenningin er um margt ólík okkar og ýmislegt sem kom mér spánskt fyrir sjónir í fyrstu, ekki síst seinni morgunverðurinn sem borðaður er um kl. 11 og kallast Almuerzo. Fyrri morgunverðurinn er yfirleitt léttur, kaffi og sætur biti eða croissant. 
Mun meira er lagt upp úr Almuerzo morgunverðinum. Hann er algengur bæði hjá vinnandi fólki og skólafólki og umburðarlyndi fólks er fullkomið gagnvart þessari máltíð, það bíður bara rólegt eftir að læknirinn eða bankafulltrúinn komi úr sínum Almerzo. 
Máltíðin inniheldur oft grillað brauð með tómatmauki eða marmelaði eða jafnvel Tortillas sem eru eggjakökur með  kartöflum. Bocadillos eru eins konar langlokur og skólafólk borðar þær mikið með nýkreistum appelsínusafa. 
Máltíðinni lýkur gjarnan með sætum bita t.d. sandkökusneið en sandkakan er í miklu uppáhaldi hjá Spánverjum. Mér varð hugsað til ömmu minnar sem alltaf átti sandköku og bakaði í hverri viku. Kannski hún hafi lært það á Spánarferðum sínum þegar Íslendingar hófu að ferðast til Mallorca og fluttu heim nýjar matarhefðir.

Meginmáltíð dagsins – hádegistilboð

Nú var klukkan orðin 14 og þá er komið að hádegisverði, Comida. Við vorum stödd í Ruzafa hverfinu sem er sneisafullt af frábærum veitingastöðum. Helgi Þór annar samferðamaður minn var með lítinn veitingastað í huga, sem hann vildi endilega kynna mér og að sjálfsögðu segir maður ekki nei þegar matur og góður drykkur er annars vegar. Og enn var ég farin að borða. 
Stórkostlegri þriggja rétta máltíðinni lauk með sterkum espresso sem rann ljúflega niður. Engin ástæða til að gera sér vonir um að leggja af á svona degi. Margir veitingastaðir bjóða upp á 3ja rétta hádegistilboð fyrir aðeins 15-20 Evrur.
Nú skiptum við liði og ég hélt í verslunarleiðangur enda af nógu að taka í Valencia sé maður í þeim hugleiðingum. Við mæltum okkur þó mót aftur kl. 19.30 og þá auðvitað til að borða kvöldmat eða Cena. Nú átti að leiða mig í allan sannleikann um hefðir og venjur í kringum hina frægu spænsku Tapas rétti sem ég vissi að samferðamenn mínir þekktu mæta vel. Tapas eru smáréttir, heitir eða kaldir, ýmist borðaðir sem lystauki fyrir mat eða sem heil máltíð. 

Tapas af læknisráði


Í dag er algengt að fólk fari á milli Tapas-staða, fái sér einn drykk og kannski tvo Tapas rétti á hverjum stað til að uppfylla kvöldverðarþörf og félagslega þörf um leið. Óvíst er um tilkomu þessarar smárétta hefðar en ein skemmtileg kenning er sú að Alfons 10. Spánarkonungur hafi náð sér eftir veikindi þegar hann samkvæmt læknisráði tók að neyta drykkjar og matar í smáskömmtum oft yfir daginn en þannig á Tapas smárétta hefðin að hafa orðið til. 
Eitt er þó víst að Tapas réttir hafa  náð miklum vinsældum og útbreiðslu um allan heim, jafnvel á Íslandi. Fjölbreytnin og úrvalið er þó auðvitað hvergi meira en á Spáni og sjálfsagt að nota tækifærið til að kynnast þeirri einstöku hefð í sínu heimalandi.
Allt þetta og margt fleira ætlum við að kynna okkur betur í ferðunum til Valencia í vor.

Kveðja, Ásta Björk

Stærsti almenningsgarður Spánar – TURIA garðurinn

Valencia fyrir fólkið

Það er ekki ofsögum sagt að Valencia sé einstaklega heillandi borg. Hún er sérlega vinaleg og þægileg að ferðast um þrátt fyrir að vera þriðja stærsta borg Spánar. 

Eitt af því sem vakti athygli mína þegar ég kom þar fyrst er hversu margt hefur verið gert til að bæta lífsgæði íbúa með skemmtilegri blöndu af grænum svæðum og frjóum hugmyndum. 

Turia garðurinn 

Að koma í þennan ótrúlega garð í Valenciu-borg á Spáni var mikil upplifun. Garðurinn sem er staðsettur í gömlum árfarvegi þar sem fljótið Turia streymdi í gegnum borgina en flaut gjarnan yfir bakka sína með tilheyrandi tjóni. 

LESA ÁFRAM

Eldhúsgyðjan og guðmóðirin

Fyrir stuttu sýndi ríkissjónvarpið heimildarmynd með eldhúsgyðjunni sívinsælu henni Nigellu Lawson  þar sem hún kynnti fyrir okkur guðmóður ítalskrar matargerðar í Bretlandi. Sú merkiskona er á tíræðisaldri og heitir Anna del Conte, afkastamikill matreiðslubókahöfundur í Bretlandi. Ástríða og nálgun Önnu á matargerð hefur heillað bresku þjóðina um árabil, verið bæði heimiliskokkum og matreiðslumönnum innblástur. Yfirskrift myndarinnar er „Kokkurinn sem breytti lífi okkar” og má enn finna á sarpinum hjá RUV. 

Einfaldleikinn er bestur

Anna del Conte fæddist í Mílanó en í seinni heimsstyrjöldinni fluttist hún með foreldrum sínum til Emilia-Romagna héraðs þar sem fjölskylduvinur skaut yfir þau skjólshúsi meðan á stríðinu stóð. Þar bjó fjölskyldan í miðri matarkistu Po-sléttunnar og naut fjölbreytts fæðuframboðs í takt við árstíðirnar.  Anna lærði við þessar aðstæður að töfrarnir í matargerð væru fólgnir í einfaldleikanum: virðingu fyrir góðu hreinu hráefni og ástríðu fyrir matseldinni. Gott ferskt hráefni þarf ekki flókna matreiðslu enda eru matreiðslubækur henna skrifaðar fyrir venjulegt fólk en ekki Michelin kokka. Matreiðslan snýst um að næra. 

Vínuppskeruferðir og Sælkeragöngur

Þegar ég hlustaði á Önnu del Conte rann upp fyrir mér að þessi nálgun væri einmitt það sem Fararsnið hefur lagt mikla áherslu á í Sælkeragöngum og Vínuppskeruferðum. Í ferðum Fararsniðs er ekki innifalið hálft fæði á hóteli eins og víða tíðkast heldur er lögð sérstök áhersla á að velja einstaka veitingastaði sem venjulegur ferðamaður rambar ekki svo auðveldlega inn á á ferðalagi sínu. Hráefnið er fengið úr héraði, maturinn unninn frá grunni á staðnum og pastað rennt í eldhúsinu fyrr um daginn. Ástríðan fyrir matargerðinni skilar sér beint til gestanna, upplifun sem eykur skilning á þeim svæðum sem ferðast er um.

Fyrsta vínuppskeruferðin er uppseld hjá okkur í ár en nokkur sæti eru enn laus 25. september og 2.október. Í þeim ferðum fáum við kennslu í ítalskri matargerð, kynnumst ostagerð, ólífusamlagi, heimsækjum vínkjallara, snæðum glæsilegar máltíðir og fáum holla hreyfingu í bland. 

Kveðja, Guðbjörg

Minn eftirlætis ferðadagur í Toskana

Í ár verður sjötta árið sem við göngum með Íslendinga um fáfarnar slóðir og aðrar meira sóttar í Toskana héraði.  Toskana er jú vagga Endurreisnarinnar og frægustu listamenn Ítala sköpuðu þar mörg meistaraverka sinna.

Á sumu þreytist maður ekki

Samt er það nú svo að alltaf verður einhver dagur í meira uppáhaldi hjá manni en annar og einhverjum kynni að þykja ótrúlegt að það sé ekki dagurinn í Flórens.

Minn eftirlætis ferðadagur er dagurinn í Vinci.  Fjölbreytileikinn er slíkur að maður þarf fulla athygli allan tímann.

Fæðingarheimili Leonardos da Vinci

Við höldum af stað frá hótelinu okkar í rútu og ökum ekki hraðbraut, heldur þræðum þéttbyggðar sveitir, fremur en sveitaþorp í nærri 45 mínútur.  Á þessari leið höfum við húsagarða íbúanna fyrir augum okkar, með öllum sínum blæbrigðum og breytileika frá því sem gefur að líta hér á landi, með ólívutrjám, skrautrunnum ásamt matjurta- og blómarækt.  

LESTU ÁFRAM…

Þar sem enginn þekkir mann….

Yfirskriftin er einmitt þversögn við pistilinn sem hér fylgir á eftir og svo sem vísnafróðir vita, fjallar framhald stökunnar um tækifæri til ýmisskonar hrekkja, af hálfu þess sem þar talar.  Hitt er staðreynd, að þegar maður skráir sig í gönguferð, með fámennum hópi þá líða vart meir en einn til tveir dagar þar til allir þekkja mann.

Lesa áfram „Þar sem enginn þekkir mann….“

Sælkeragöngur, frábær hugmynd

Okkur þykir það benda til þess að ferðirnar okkar vekji forvitni, jafnvel hrifningu, þegar  þær seljist upp svo fljótt sem raunin er. Margar ferðir seldust upp hjá okkur fyrir áramót en nokkur sæti eru þó eftir í Sælkeragöngu við Gardavatnið, í seinni Toskanaferðinni og örfá til Grikkalands.

Lesa áfram „Sælkeragöngur, frábær hugmynd“

Tölt um Toskana.

Pislaskrif sumarsins hafa nú setið að mestu á hakanum síðan um miðjan júní.  Ekki er um að kenna erfiðu heyskaparveðri eða misjöfnum gæftum á sjó, en miklu fremur fararstjórn á erlendri grund og afslöppun hér á landi þess á milli.  Nú skal bætt úr.

Lesa áfram „Tölt um Toskana.“