Sælkerasigling í Króatíu 22.-29. ágúst 2026 -UPPSELT

Króatía er einstök nátturuperla við Adriahafið, henni tilheyra um þúsund eyjar og eru 48 þeirra í byggð. Við munum sigla á snekkju á milli nokkurra þessara eyja og gista um borð en á daginn förum við í land, skoðum náttúrufegurðina og kynnumst sögu og menningu eyjanna. Góður tími gefst til að njóta náttúrunnar og synda í tærum sjónum. Þessi ferð sameinar skemmtilega blöndu af eyjasiglingu, léttum göngum, slökun og góðum mat- blanda sem svíkur engan.

Trogir – Trogir

Hvað býðst þér í Sælkerasiglingu

  • Sigling frá Trogir á mjög góðri snekkju Ms. Melody með 16 káetum
  • Gist er í þægilegum 2ja manna káetum með salerni og sturtu
  • Hálft fæði á snekkju
  • Skipstjórakvöldverður eitt kvöld
  • Gönguferðir á eyjunum

Fararstjórn: Ásta Björk Sveindóttir

FERÐADAGSKRÁ

DAGUR 1 – Laugardagur 22.Ágúst–Brač

07:35 Flug FI306 til Split með millilendingu í Stokkhólmi,  lent í
Stokkhólmi 12:45.               
15:55 Áframhaldandi flug til Split og lent þar 18:45.
19:45 Rúta fer með hópinn til Trogir
20:30 Innritun um borð í MS Melody við höfnina í Trogir
21:00 Fararstjórafundur og kynning
Kvöldverður um borð í snekkjunni og siglt á næturstað við eyjuna Brač

DAGUR 2 – sunnudagur 23.ágúst-Korčula

08:00 Morgunverður hefst um borð
09:00 Göngum saman að fallegri strönd „Gullna horninu“ eða Zlatni Rat sem er sérkennileg landmótun, eitt þekktasta náttúrufyrirbæri Króatíu og í rauninni táknmynd Dalmantíustrandarinnar.
Hornið breytir um lögun eftir vindi, öldum og sjávarstraumum, stundum sveigist það til austurs og stundum til vesturs.
12:30 Lagt af stað frá Brač og við stefnum á Korčula. Á meðan við siglum fáum við hádegisverð,  njótum þess að sigla og slaka á, lesa góða bók eða leggjast í sólbað.
17:30 Áætlaður komutími til Korčula.
Við gefum okkur tíma til að skoða gamla bæinn sem allur er innan múra og leiðir okkur um steinlögð stræti og úthugsað borgarskipulag. Hann er oft kallaður litla Dubronvik vegna fegurðar, menningar og mikillar sögu. Eyjarskeggjar halda því fram að landkönnuðurinn Marco Polo hafi fæðst í bænum þó ekki séu allir á einu máli um það.
Við eigum svo pantað borð fyrir alla sem það vilja á veitingastað þar sem útsýni er einstakt og sólsetrið ægifagurt. Kvöldverðurinn er ekki innifalinn og því velur hver fyrir sig.

DAGUR 3 – Mánudagur 24.ágúst-vis

08:00 Morgunverður hefst um borð
09:00 Rúta bíður okkar og við förum í stutta skoðunarferð um þessa fögru og gróðursælu eyju, komum bæði við á ólífubúgarði og á vínbúgarði þar sem við fáum að kynnast framleiðslunni og smakka á henni. Við höldum svo til baka með rútu að snekkjunni okkar.
12:30 Lagt af stað frá Korčula og við stefnum á eyjuna VIS. Við fáum okkur hádegisverð um borð og njótum þess svo að slaka á meðan siglt er, lesum, spjöllum eða sólum okkur.
17:30 Komum til VIS þar sem rúta bíður okkar og við höldum til Komiža sem er lítið og ákaflega myndrænt sjávarþorp, eitt það elsta og mikilvægasta við Adriahafið. Sérkennilegir trébátar eru nánast táknmynd þorpsins en þeir voru gerðir til að þola langar siglingar fyrir opnu hafi.
Í Komiža voru nokkrar senur kvikmyndarinnar Mamma Mia 2 teknar og á rölti okkar um bæinn rifjum við upp myndina og skoðum nokkra staði þar sem tökur fóru fram.
20:00 Pizza kvöld á einum af eftirsóttustu veitingastöðunum bæjarins.
21:30 Rúta fer með okkur til baka að snekkjunni

DAGUR 4 – Þriðjudagur 25.ágúst-hvar

08:00 Morgunverður hefst um borð
10:00 Siglt í átt að eyjunni Hvar
Á leiðinni munum við stoppa á fallegum stað, fara í sjóinn og leika okkur aðeins eða  bara láta fara vel um okkur á efra þilfari með góðan drykk og njóta útsýnis og sólar.
13:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni
16:00 Komum til hinnar sólríku eyjar Hvar sem á sér langa sögu menningar og hefur löngum heillað þá sem hana sækja heim. Bærinn státar af einstakri blöndu af náttúrufegurð, feneyskum glæsileika, fögrum torgum umluktum kaffihúsum, kirkjum og afslöppuðu andrúmslofti. Við fáum góðan tíma til að kynnst þessari vinsælu eyju.
Kvöldverður á eigin vegum á eyjunni Hvar

DAGUR 5 – miðvikudagur 26.Ágúst-Šibenik

07:00 Siglt til Šibenik
Rólegheita dagur þar sem við siglum til Sibenik og snæðum hádegisverð um borð. Við gerum hlé á siglingunni í lítilli vík þar sem hægt verður að skella sér í kristal tæran sjóinn eða lesa góða bók upp á dekki og slaka á. 
15:00 Komum til Šibenik
Boðið verður upp á bæjarrölt með innlendum leiðsögumanni. Við skoðum þessa fögru miðaldaborg með þröngum götum, tröppum og bogagöngum að ógleymdri hinni stórfenglegu dómkirkju heilags Jakova en hún hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO frá árinu 2000.
Kvöldverður á eigin vegum í Šibenik 

DAGUR 6 – fimmtudagur 27.Ágúst-krka

07:00 Siglt til Skradin
08:00 Morgunverður hefst um borð
Í dag munum við skoða Krka þjóðgarðinn en innan hans fellur fljótið  Krka um 45 km. leið í fjölmörgum fossum á leið sinni til sjávar. Þar má m.a. sjá hina frægu Skadinski Buk- fossa, Visovac eyjuna og Roski Slap fossinn sem allt er stórfenglegt sjónarspil. Þjóðgarðurinn var stofnaður 1985 til verndar bæði náttúru og menningarminjum á svæðinu og hefur hann síðan fengið viðurkenningar og virt verðlaun. Ef tækifæri gefst förum við í skemmtilega siglingu í þessum fallega þjóðgarði með innlendri leiðsögn.
14:00 Hádegisverður um borð
19:00 Kvöldverður um borð og nú klæðumst við öll hvítu og fáum skipstjórann í mat með okkur.
Gistum við Primošten

DAGUR 7 – Föstudagur 28.Ágúst-Trogir

07:30 Siglt til Trogir
08:00 Morgunverður hefst um borð
13:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni
15:00 Komum til Trogir
Við fáum gönguleiðsögn um þröngar götur Trogir, skoðum sögulegar minjar og mannlíf auk þess sem við lítum við á matarmarkaði. Trogir er lítil eyja sem á sér langa sögu samfelldrar byggðar  frá því að Grikkir settust þar að á 3. öld f.kr. Gamli sögulegi hluti bæjarins er á heimsminjaskrá UNESCO ekki síst vegna glæsilegra bygginga og listaverka í ítölskum endurreisnarstíl, arfleifð fjögurra alda valdatíðar Feneyjinga frá 1420 – 1797. Dómkirkja heilags Lovre er talin meðal helstu meistaraverka gotneskrar byggingarlistar í Evrópu og perla Togir en bygging hennar tók margar aldir.  
Frjáls tími í Trogir eftir gönguna
Kvöldverður á eigin vegum

DAGUR 8 – laugardagur 29.ágúst-trogir

08:00 Morgunverður hefst um borð og við yfirgefum skipið eigi síðar en kl.09:00
09:00 Rúta bíður eftir okkur og fer með okkur út á flugvöll þar sem við förum í flug heim til Íslands.
12:00 Flug SK2832 til Kaupmannahafnar og lendum á Kastrup 14:15, höldum svo áfram í flugi Icelandair FI209 17:15 og lendum í Keflavík 18:30.
Töskurnar okkar eru innritaðar alla leið til Íslands.

Þökkum fyrir góða viku

PS. Einhverjar tímasetningar gætu hnikast til og þá tilkynnum við það í upphafi ferðar.

Uppselt

Hafið samband með tölvupósti á bokanir@fararsnid.is eða í síma 611-8811 ef þið hafið áhuga eða spurningar vakna.

Verð á mann í tvíbýli kr. 494.900-

Staðfesting kr. 120.000,- SKILMÁLAR FARARSNIÐS
Vinsamlega tilgreinið herbergisfélaga í athugasemdasvæði á greiðslusíðu

Verð miðast við gengi í október 2025. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina er hún endurgreidd að fullu.

Greiðsla 2 – greiðist eigi síðar en 20 vikum fyrir ferð, kr. 187.450
Lokagreiðsla – greiðist eigi síðar en 10 vikum fyrir ferð, kr. 187.450

Fararstjórn

Ásta Björk Sveinsdóttir

Reykvíkingurinn Ásta Björk hefur víðtæka reynslu af skipulagningu ferða og fararstjórn. Hún hefur skipulagt ýmsar ævintýraferðir fyrir hópa og má sem dæmi nefna afar velheppnaða blöndu af sælkerasiglingu og rafmagnsreiðhjólaferð í Króatíu.

Auk þess hefur hún verið fararstjóri í skíðaferðum til Ítalíu og Austurríkis, árshátíðarferðum víða um Evrópu, fótboltaferðum og mótsferðum fyrir unglingalandslið HSÍ.

Innifalið

  • Sigling í 8 daga gisting í 7 nætur
  • 7 x morgunverðarhlaðborð
  • 6 x 3 rétta hádegisverður um borð
  • 1 x Kvöldverður um borð 3ja rétta
  • 1 x Pizza kvöld á vinsælum veitingastað
  • 1 x “Captains Dinner” um borð eitt kvöld, hvíta  kvöldið
  • Staðarleiðsögumenn skv. dagskrá
  • Vatn og kruðerí alla daga um borð
  • Flug til og frá Split
  • Frítt Internet

EKKI INNIFALIÐ

  • Gistináttagjald 50 Eur á mann
  • Drykkir um borð, (ekki er heimilt að neyta eigin drykkja í matsal og á útidekki)
  • Þjórfé um borð í lok ferðar fyrir áhöfn og hjólaleiðsögumen

ANNAÐ

  • Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og / eða heimilistryggingum
  • Fararsnið áskilur sér rétt til að fella niður ferðina ef þáttaka er ekki næg eða vegna ytri aðstæðna
  • Athugið hvort þið eigið Evrópskt sjúkratryggingakort í gildi, ef ekki þarf að sækja um það með góðum fyrirvara
  • Allar frekari upplýsingar veitir Ásta Björk s: 611 8811