Grikkland er land sem býður upp á allt sem hugurinn girnist. Í þessari ferð heimsækjum við Aþenu, þar sem Acropolis hæð, eitt frægasta fornleifasvæði heims gnæfir yfir nútíma borginni Aþenu, glæsilegur minnisvarði um gullöld Períklesar. Við heimsækjum sögufræga staði og náttúruperlur, gistum í dásamlega fallegum bæ – Nafplio, skoðum Corinth skipaskurðinn, Epidaurus leikhúsið og förum í göngu á eyjunum Hydru og Spetses. Einnig heimsækjum við bændur, kynnumst vín- ólífu- og hunangsframleiðslu og fáum að bragða á afurðunum.
Hvað býðst þér í sælkeraferð í Grikklandi
- Flug til og frá Íslandi með Icelandair og SAS
- Gist á góðum hótelum í 8 nætur með morgunverði, 5 nætur í Nafplio og 3 nætur í Aþenu
- Allur akstur sem nefndur er í dagskrá
- Kvöldverður á góðum veitingahúsum, fjögur kvöld
- Grillveisla
- Aðgangseyrir á þá staði sem nefndir eru í dagskrá
- Sigling yfir í eyjarnar Hydru og Spetses
- Íslensk fararstjórn
- Innlend leiðsögn í öllum ferðum
Fararstjórn: Dominik Bruun og Ásta Björk Sveindóttir
Uppselt
FERÐADAGSKRÁ
DAGUR 1 – Þriðjudagur 22.september

07:40 Flogið frá Keflavíkurflugvelli til Kaupmannahafnar með Icelandair
14:30 Lagt af stað til Aþenu með SAS
18:50 Lent í Aþenu og stefnan tekin á miðborgina, þar sem við gistum fyrstu þrjár næturnar. Við förum beint í kvöldverð og á meðan verður töskunum okkar komið fyrir á hótelinu.
DAGUR 2 – MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER

Morgunverður á hóteli
09:30 Leggjum af stað upp á Acropolis hæðina með innlendum leiðsögumanni og fræðumst um þá merku sögu og menningarverðmæti sem hún geymir.
Göngum um líflegan matarmarkað í borginni og þræðum þröngar götur Plaka hverfisins
Við fáum okkur svo matarbita á einhverjum af fjölmörgum veitingastöðum borgarinnar.
Frjáls tími til 19:00 en þá förum við saman á veitingastað þar sem við fáum vínkynningu og léttan kvöldverð, innifalin
DAGUR 3 – FIMMTUDAGUR 24.SEPTEMBER

Morgunverður á hóteli
Frjáls dagur í Aþenu. Það er lítill vandi að finna sér viðfangsefni og eiga ógleymanlegan dag í borginni hvort sem áhugi er fyrir söfnum, mat, mannlífi eða verslun.
DAGUR 4 – föstudagur 25. SEPTEMBER

Morgunverður á hóteli
10:00 Rúta flytur okkur til Nafplio, leið okkar liggur um Corinth skipaskurðinn, dýpsta skipaskurð heims og við fáum að heyra sögu hans.
12:00 Við heimsækjum vínbónda, fáum kynningu á framleiðsluferlinu og smökkum vínin með léttum veitingum.
14:30 Rúta flytur okkur til Nafplio og við komum okkur fyrir á hóteli á góðum stað við göngugötuna sem liggur meðfram sjónum.
17:00 Gönguleiðsögn um gamla bæinn í Nafplio og við endum í ostaveislu.
Kvöldið frjálst.
DAGUR 5 – laugardagur 26.september

Morgunverður á hóteli
09:30 Rúta flytur okkur til Epidaurus en svæðið er á heimsminjaskrá Unesco. Við skoðum hið fræga leikhús sem er eitt af undrum fornaldar og hof Asclepiusar sem var einn ástsælasti guð forngrikkja, en hann stýrði lækningum og heilun. Hof honum tileinkuð voru því eins konar lækningamiðstöðvar, þær voru jafnan reistar nærri náttúrulegum uppsprettum en þangað streymdi fólk hvaðanæva að til að leita sér lækninga og var hofið við Epidaurus þeirra mikilvægast.
13:00 Þá höldum við að ólífubúgarði þar sem við kynnumst framleiðsluferli olíunnar og fáum að bragða á henni. innifalið
14:30 Við heimsækjum framleiðanda Ouzo og Tsipouro vínanna, fræðumst um þessi vinsælu grísku vín og fáum að smakka, innifalið
17:00 Rúta flytur okkur heim á hótel
19:00 Kvöldverður á völdum veitingastað, innifalinn
DAGUR 6 – sunnudagur 27.september

Morgunverður á hóteli
09:00 Leggjum af stað með rútu að höfninni við Nafplio og tökum bát út í tvær áhugaverðar eyjar, hina bíllausu Hydru sem dregur nafn sitt af fornum ferskvatnsuppsprettum sem nú eru þornaðar upp að mestu og Spetses. Á Hydru eru engin farartæki önnur en asnar sem flytja varning upp hlíðarnar til íbúanna og því ríkir þarna ró og einstök stemning sem hefur löngum laðað að sér listamenn og hugsuði. Við heimsækjum líka eyjuna Spetses eða eyju kryddanna, þar sem kvenhetjan fræga Laskarina Bouboulina (1771-1825) sem barðist í frelsistríðinu gegn Tyrkjum ólst upp og bjó lengst af. Í húsi fjölskyldu hennar er nú safn um ótrúlegan æviferil Bouboulinu og um frelsisstríðið. Við göngum með leiðsögn um bæina á þessum eyjunum og skoðum það markverðasta sem þar er að sjá.
Við veljum okkur svo góðan veitingastað og fáum eitthvað í svanginn
17:00 Höldum svo með bátnum til Nafplio og með rútu að hótelinu.
Kvöldverður á eigin vegum
DAGUR 7 – Mánudagur 28.september

Morgunverður á hóteli
10:00 Rúta sækir okkur og enn höldum við á vit ævintýranna. Í dag ætlum við að heimsækja býflugnabónda og kynna okkur búskaparhætti á þeim bæ og auðvitað bragða á afurðunum.
Eftir hunangsveisluna förum við í heimsókn til framleiðanda lífræns ediks, bæði balsamik- og vínediks, innifalið
13:00 Hádegisverður – grillveisla á búgarðinum í fögru umhverfi, innifalin
16:00 Rúta heim að hóteli og kvöldið frjálst
DAGUR 8 – ÞRIÐJUDAGUR 29.SEPTEMBER

Morgunverður á hóteli
Frjáls dagur í Nafplio, þessa fyrrum höfuðstaðar Grikklands. Daginn má t.d. nota til að rölta um þröngar götur bæjarins, kíkja í litríkar verslanirnar eða setjast á kaffihús og virða fyrir sér mannlífið. Svo má líka skoða virki, skella sér í sólbað á ströndinni eða bara hvíla sig á hótelinu og búa sig undir heimferð.
DAGUR 9 – MIÐVIKUdagur 30.SEPTEMBER
Morgunverður á hóteli
09:00 Höldum af stað með rútu út á flugvöll
14:30 Heimflug með SAS og Icelandair og lent á Íslandi um kl.23:50
PS. Dagskrá og einhverjar tímasetningar gætu hnikast til og þá tilkynnum við það í upphafi ferðar
Staðfesting kr. 70.000,- SKILMÁLAR FARARSNIÐS
Vinsamlega tilgreinið herbergisfélaga í athugasemdasvæði á greiðslusíðu
Verð miðast við gengi og flugverð í nóvember 2025. Athugið að lágmarksþáttaka er 20 manns. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina er hún endurgreidd að fullu.
Fararstjórn

Ásta Björk Sveinsdóttir
Reykvíkingurinn Ásta Björk hefur víðtæka reynslu af skipulagningu ferða og fararstjórn. Hún hefur skipulagt ýmsar ævintýraferðir fyrir hópa og má sem dæmi nefna afar velheppnaða blöndu af sælkerasiglingu og rafmagnsreiðhjólaferð í Króatíu.
Auk þess hefur hún verið fararstjóri í skíðaferðum til Ítalíu og Austurríkis, árshátíðarferðum víða um Evrópu, fótboltaferðum og mótsferðum fyrir unglingalandslið HSÍ.
Innifalið
- Flug með Icelandair og SAS til Aþenu
- Gisting á góðum hótelum í Aþenu og Nafplio
- 8 x Morgunverðarhlaðborð
- 2 x Hádegisverður
- 4 x Kvöldverður á völdum veitingastöðum
- Grillveisla
- Rúta samkvæmt ferðadagskrá
- Ferjumiðar til Hydru og Spetses
- Aðgangur að öllum viðkomustöðum samkvæmt ferðalýsingu
- Íslensk fararstjórn
- Innlend leiðsögn í öllum skoðunarferðum
EKKI INNIFALIÐ
- Gistinattagjald
- Þjórfé þar sem það á við
ANNAÐ
- Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og / eða heimilistryggingum
- Fararsnið áskilur sér rétt til að fella niður ferðina ef þáttaka er ekki næg eða vegna ytri aðstæðna



