Króatía er einstök nátturuperla við Adriahafið en henni tilheyra yfir þúsund eyjar og eru 48 þeirra í byggð. Við munum sigla á snekkju með rafmagnsreiðhjól í farteskinu á milli nokkurra þessarra eyja, gista um borð og hjóla á eyjunum. Dagleiðir eru mislangar og tveir dagar miðlungs erfiðir. Góður tími gefst til að njóta náttúrunnar og synda í tærum sjónum. Þessi ferð sameinar skemmtilega blöndu af hreyfingu, afslöppun og góðum mat- blanda sem svíkur engan.
Trogir -Trogir
Hvað býðst þér í siglingu og hjólaferð í Króatíu?
- Sigling frá Trogir á góðri snekkju með 18 káetum
- Gist er í þægilegum 2ja manna káetum með salerni og sturtu
- Hálft fæði á snekkju
- Rafmagnsreiðhjól og aðstoðarbíll fylgir okkur
- Flug er ekki innifalið en Fararsnið getur veitt upplýsingar um heppilegar flugtengingar. Tækifæri til að tengja ferðina við aðra áfangastaði.
Fararstjórn: Ásta Björk Sveindóttir
UPPSELT
Aðrar brottfarir í hjól & siglingu í Króatíu;
Júní – 20. – 27.
FERÐADAGSKRÁ
DAGUR 1 – laugardagur 08.ágúst-Brač

12:00-12:30 Innritun um borð í MS Liberty við höfnina í Trogir þar sem dregið verður í káetur.
13:00 Hádegisverður um borð og fararstjórafundur. Sigling frá Trogir til eyjunnar Brač.
Hjólaleið: Supertar – Milna – 21 km. Erfiðleikastig 2/5.
Hjólaleiðin á fyrsta degi er stutt, eða um 21 km, enda eru allir að kynnast hjólunum sínum sem hver og einn hefur til umráða alla ferðina, hjólað á malbiki og malarstíg. Stoppum til að fá okkur hressingu og hægt að skella sér til sunds.
Kvöldverður um borð í bátnum
Gist verður við eyjuna Brač í bænum Milna
DAGUR 2 – sunnudagur 09. ágúst-Brač

07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Lagt af stað í hjólaferð um eyjuna og hjólað verður frá Milna til Bol, stoppum til að fá okkur hressingu og sundsprett.
13:00 Hádegisverður á eyjunni, heimsækjum bændur og fáum máltíð beint frá býli, ekki innifalinn, 35 eur.
Hjólaleið: Milna – Bol, 51 km. Erfiðleikastig 5/5, hjólað á malbiki og malarstíg.
Gist verður við eyjuna Brač í bænum Bol
Kvöldverður um borð
DAGUR 3 – mánudagur 10.Ágúst – HVAR

6:30 Siglt til eyjunnar Hvar
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst og hjólað um hæðir Hvar og stoppað í Stari Grad sem er einn af elstu bæjum Evrópu
13:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni
Hjólaleið: Jelsa – Hvar 33 km. Erfðleikastig 4/5, hjólað á malbiki og malarstíg.
Gist verður við eyjuna Hvar í bænum Hvar.
Kvöldverður á eigin vegum
DAGUR 4 – þriðjudagur 11.Ágúst-vis

06:30 Siglt til eyjunnar Vis
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst
12:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni
Hjólaleið: Vis – Komiza- Vis 32 km
Gist verður við eyjuna VIS
Kvöldverður á eigin vegum
DAGUR 5 – miðvikudagur 12.ágúst -Korčula

6:30 Siglt til eyjunnar Korčula
7:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst
13:00 Hádegisverður í sveitinni, gillveisla beint frá býli, ekki innifalinn, 35 eur
Hjólaleið: Vela Luka – Korčula 59 km. Erfðleikastig 5/5, hjólað á malbiki og malarstíg
Gist verður við bæinn Korčula
Kvöldverður á eigin vegum
DAGUR 6 – fimmtudagur 13.ágúst-Pelješac

6:30 Siglt til Kučište
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Lagt af stað í hjólaferð dagsins
13:00 Hádegisverður í snekkjunni
Hjólaleið: Kučište – Loviste 27 km. Erfðleikastig 3/5, hjólað á malbiki.
Gist verður við Makarska
Skipstjórakvöldverður- þetta kvöld klæðumst við hvítu
DAGUR 7 – föstudagur 14.ágúst-Omiš

6:30 Siglt til eyjunnar Omiš
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Lagt af stað í hjólaferð
13:00 Hádegisverður um borð
Hjólaleið: Omiš – Podgrađe – Omiš – 25 km. Erfðleikastig 3/5, hjólað á malbiki.
Siglt til Trogir
Kvöldverður á eigin vegum í Trogir
DAGUR 8 – laugardagur 15.ágúst-Trogir

07:30 Morgunverður hefst um borð og við yfirgefum skipið eigi
síðar en kl 09:00
Þökkum fyrir góða viku
Verð miðast við gengi í ágúst 2025. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina vegna ónægrar þáttöku er hún endurgreidd að fullu.
Verð á mann í tvíbýli kr. 390.000,-
Staðfesting kr. 120.000,- SKILMÁLAR FARARSNIÐS
Vinsamlega tilgreinið herbergisfélaga í athugasemdasvæði á greiðslusíðu
Verð miðast við gengi í ágúst 2025. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina vegna ónægrar þáttöku er hún endurgreidd að fullu.
Greiðsla 2 – eindagi er 20 vikum fyrir brottför, kr. 135.000
Lokagreiðsla – eindagi er 10 vikum fyrir brottför, kr. 135.000
Aðrar brottfarir í hjól & siglingu í Króatíu;
Júní – 20. – 27.
Fararstjórn

Ásta Björk Sveinsdóttir
Reykvíkingurinn Ásta Björk hefur víðtæka reynslu af skipulagningu ferða og fararstjórn. Hún hefur skipulagt ýmsar ævintýraferðir fyrir hópa og má sem dæmi nefna afar velheppnaða blöndu af sælkerasiglingu og rafmagnsreiðhjólaferð í Króatíu.
Auk þess hefur hún verið fararstjóri í skíðaferðum til Ítalíu og Austurríkis, árshátíðarferðum víða um Evrópu, fótboltaferðum og mótsferðum fyrir unglingalandslið HSÍ.
Innifalið
- Sigling í 8 daga gisting í 7 nætur
- 7 x morgunverðarhlaðborð
- 5 x 3 rétta hádegisverður um borð
- 2 x Kvöldverður um borð 3ja rétta
- 1 x “Captains Dinner” um borð eitt kvöld, hvíta kvöldið
- Leiga á rafmagnshjólum í viku ásamt hjólatösku
- Reyndir leiðsögumenn í öllum hjólaferðum
- Kaffi, te, vatn, ávextir og hnetur alla daga um borð
- Frítt Internet
EKKI INNIFALIÐ
- Flug til og frá Króatíu
- Gisting fyrir/eftir siglingu
- Drykkir um borð, (ekki er heimilt að neyta eigin drykkja í matsal og á útidekki)
- 2 x Hádegisverður, beint frá býli, (2 x 30 eur)
- Ferðamanna- og hafnarskattar (50 eur á mann)
- Þjórfé fyrir léttadrengi að taka hjól í og úr snekkjunni (20 eur á mann)
- Þjórfé um borð í lok ferðar fyrir áhöfn og hjólaleiðsögumenn
ANNAÐ
- Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og / eða heimilistryggingum
- Fararsnið áskilur sér rétt til að fella niður ferðina ef þáttaka er ekki næg eða vegna ytri aðstæðna
- Kannið evrópska sjúkratryggingakortið ykkar
- Allar frekari upplýsingar veitir Ásta Björk s: 611 8811
