Töfrandi blanda menningar, fegurðar, léttrar hreyfingar og afþreyingar við Gardavatn, stærsta vatn Ítalíu
Hvað býðst þér í Sælkeragöngu við Garda?
- Þægilegar gönguferðir þar sem þú upplifir hið daglega líf í sveit og borg
- Ef einhver er ekki upplagður til göngu er ávallt hægt að komast á áfangastað með leigubíl og hitta hópinn
- Gisting á sama hóteli alla ferðina, í bænum Peschiera á góðum stað við vatnið
- Stuttar akstursleiðir
- Sælkeramáltíðir á völdum veitingastöðum, borðvín og vatn innifalið
- Einstök upplifun: Þú siglir á Gardavatni og stígur á land í fallegustu þorpunum
- Upplifa óperuflutning í sjálfri Arenunni í Verona
- Heimsókn í vínkjallara
- Notalegar samverustundir með ferðafélögunum og tækifæri til að eignast nýja
- Lausar stundir og næði til ráðstöfunar að vild
Hafið samband með því að senda póst á bokanir@fararsnid.is ef þið viljið skella ykkur með í þessu dásamlegu ferð.
FERÐADAGSKRÁ
DAGUR 1 – þriðjudagur 23. JÚNÍ

Flogið með Icelandair til Feneyja með flugi: FI 948 KEFVCE 08:20 – 15:00
Rúta bíður á flugvelli og ekið rakleiðis á gististað.
Gist á: Hótel Puccini, nýlegu, vel staðsettu fjölskyldureknu hóteli við vatnið í bænum Peschiera, í sjö nætur m/morgunverði
18:00 Áætlaður komutími á hótel, innritun
19:20 Fordrykkur og kvöldverður á skemmtilegum veitingastað með útsýni yfir vatnið, innifalinn.
DAGUR 2 -miðvikudagur 24. júní

Morgunverður á hóteli.
10:00 Göngum frá hótelinu að ferjuhöfninni í Peschiera
11:00 Siglum með einkabát yfir til Gardone þar sem við skoðum okkur um. Einnig heimsækjum við Heller garðinn þar sem náttúra og nútímalist mætast á ævintýralegan hátt. Hádegisverður á skemmtilegum veitingastað í Gardone, innifalinn
15:45 Siglum yfir til bæjarins Garda þar sem við fáum smá frjálsan tíma til að skoða okkur um
18:00 Rúta flytur okkur til baka á hótel
Kvöldið frjálst
DAGUR 3 – fimmtudagur 25. júní

09:30 Rúta flytur okkur til bæjarins Bardolino þaðan sem við hefjum gönguferð með innlendum leiðsögumanni upp á höfðann La Rocca sem gnæfir yfir bæina Garda og Bardolino ( 2t, ca 250m hækkun)
Eftir stutt myndastopp höldum við aðra leið til baka og endum heima í garði hjá henni Elenu, þar sem okkar bíður heimagerður matur og vín, innifalinn
Þeir sem kjósa að sleppa göngunni geta skoðað sig um í Bardolino og farið með rútunni þaðan í hádegisverðinn
15:00 Förum með rútu aftur heim á hótel
Kvöldverður á eigin vegum
DAGUR 4– föstudagur 26. júní

Morgunverður á hóteli
Frjáls dagur í Peschiera
Dagur 5 –laugardagur 27. júní

Morgunverður á hóteli og morguninn frjáls
13:00 Dagsferð til Verona, ekið um áhugaverðustu hverfin, gengið um frægustu torg og stræti gömlu miðborgarinnar með innlendum leiðsögumanni í 1,5 klst.
16:00 Síðdegið er frjálst
19:00 Óperu-kvöldverður á glæsilegum stað í hjarta borgarinnar,innifalinn
21:15 Óperusýning í Arenunni þar sem við sjáum La Traviata eftir Giuseppe Verdi, innifalin
Kl. 00:30 rúta heim á hótel.
Dagur 6 –sunnudagur 28. júní

Morgunverður á hóteli
09:00 Gönguferð til bæjarins Lazise. Við hefjum gönguna sem er um 10 km frá hótelinu og þræðum stíga meðfram vatninu með nokkrum góðum stoppum á leiðinni
13:00 3ja rétta hádegisverður í Lazise með vatni og borðvíni, innifalinn
Að hádegisverði loknum siglum við aftur til Peschiera
Kvöldverður á eigin vegum
DAGUR 7 -mánudagur 29. JÚNÍ

Morgunverður á hóteli
Fyrri partur dags er frjáls
17:30 Höldum af stað með rútu á fallegan vínbúgarð í sveitinni þar sem við fáum að kynnast framleiðslunni og skoða vínkjallarann
Lokakvöldverður. Að kynningu lokinni verður borinn fram glæsilegur lokakvöldverður, innifalinn
21:30 Rúta flytur okkur heim á hótel
DAGUR 8-þriðjudagur 30. júní
Morgunverður á hóteli og útritun
10:45 Rúta flytur okkur frá hóteli á Feneyjaflugvöll
FI 949 VCEKEF 16:10 -18:50
UPPSELT
Hafið samband ef þið viljið nota tækifærið og skella ykkur með í þessa vinsælu ferð með því að senda okkur póst á bokanir@fararsnid.is
Verð á mann í tvíbýli kr. 437.300,-
Verð miðast við gengi og flugverð í október 2025. Athugið að lágmarksþáttaka er 20 manns. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina er hún endurgreidd að fullu.
INNIFALIÐ:
- Flug með Icelandair til og frá Feneyjum
- Skattar og lendingagjöld
- Töskur og handfarangur
- Rútuakstur frá og til flugvallar
- Allur annar rútuakstur samkvæmt þessari dagskrá
- Gisting á góðu hóteli í sjö nætur
- Morgunverður í sjö daga
- Þrír ríkulegir hádegisverðir með vatni og borðvíni og kaffi á eftir
- Þrír glæsi-kvöldverðir á völdum veitingastöðum, með vatni og borðvíni og kaffi á eftir
- Heimsókn í vínkjallara og vínkynning
- Miðar á óperusýningu í Arenunni
- Ferjumiðar á Gardavatni
- Aðgangur að Heller garðinum
- Allar skoðunar- og gönguferðir sem nefndar eru í dagskrá
- Íslensk fararstjórn
- Innlendir leiðsögumenn
EKKI INNIFALIÐ:
- Gistináttagjald
- Þjórfé
Fararstjóri

Guðbjörg Magnúsdóttir
Guðbjörg Magnúsdóttir er Mosfellingur í húð og hár. Hún lauk námi í ítölsku og ferðamálafræði frá HÍ ásamt því að vera leiðsögumaður og ljósmyndari. Ítölsk menning, samfélag og matargerð skipa stóran sess í lífi hennar.
Guðbjörg þekkir afar vel til Ítalíu og menningar landsins enda hefur hún verið þar með annan fótinn frá 1994.
FYRIRSPURNIR OG FORGANGSLISTI
Fyrirspurnir: bokanir@fararsnid.is
Viltu vera á forgangslista? Skráning á póstlista
