Hið gullna svæði Ítalíu

Fararsnið hefur á undanförnum árum boðið upp á Sælkeragöngur í Toskana á Ítaliu. Í þessum ferðum njótum við einstakrar náttúrufegurðar, léttrar hreyfingar, matar- og vínmenningar í héraðinu sem gjarnan er nefnt hið gullna svæði Ítalíu. Byggingarlistin  og myndlistin á sér enga hliðstæðu enda má segja að fæðingarstaður endurreisnarinnar sé í Toskana héraði. 

Við höfum ákveðið að bjóða tvær ferðir til Toskana á næsta ári, í lok maí / byrjun júní og í ágúst. Báðar ferðirnar seldust upp í fyrra. Við ferðumst í litlum hópum og einbeitum okkur að því að njóta þeirra listisemda sem þetta sögufræga hérað hefur að bjóða.

Gist á glæsilegu hóteli

Gist verður í bænum Montecatini Terme á Grand Hótel Vittoria sem er glæsilegt hótel í Liberty stíl. Hótelið stendur ofarlega í bænum en er þó í þægilegu göngufæri frá miðbænum. Veitingahús eru fjölmörg og bjóða uppá  úrval kræsinga. Við hótelið er sundlaug og fallegur garður þar sem hægt er að njóta hvíldar. Hótelið býður líka upp á heilsumeðferðir þar sem fá má allskyns dekur sé þess óskað.

Gangan í bæinn tekur um 7 mínútur og gaman að ganga niður breiðgötuna sem liggur frá hótelinu og var á gullaldarárum Montecatini Terme glæsileg heimreið að þessu fína hóteli.

Menningarferðir til Lucca, San Gimignano og Vinci

Ferðin til Lucca er fyrsti viðkomustaður okkar en Lucca var valdamikið borg-ríki og ein af mikilvægustu borgum Ítalíu á miðöldum. Hringlaga  borgarmúr umlykur þessa fallegu borg sem á sér merka sögu og var Leonardo da Vinci einn af nokkrum sem komu að hönnun múrsins. Við fáum innsýn inn í sögu og menningu borgarinnar með innlendri staðarleiðsögn sem enginn verður svikinn af. Puccini var fæddur og alinn upp í Lucca og var hann alla tíð mjög stoltur af heimahögunum. Eftir góða fræðslu fáum við rúman tíma til að kíkja í verslanir, fá okkur hressingu í iðandi mannlífinu, ganga um, njóta eða leigja hjól og hjóla uppi á borgarmúrnum sem er bæði aðgengileg og skemmtileg upplifun.

Næsti bær sem við heimsækjum er Vinci en þar förum við í gönguferð um æskuslóðir Leonardo da Vinci. Þann dag munum við ganga um hæðir og vínekrur, landslag sem veitti meistara Vinci mikinn innblástur. Við munum heimsækja vínbónda á leið okkar, smakka á framleiðslunni og fá hádegishressingu.
Þegar maginn er mettur höldum við áfram til Vinci þar sem okkur gefst kostur á að skoða safn sem heldur utanum helstu vísindaafrek meistara Vinci.
Óhætt er að segja að heimsókn á heimaslóðir þessa einstaka listamanns og það að kynnast betur uppruna hans og æviskeiði sé nærandi fyrir andann.

Að lokum förum við til San Gimignano og er sá dagur að margra mati hápunktur ferðarinnar. Bæjarstæði þessa ævintýralega miðaldabæjar sem í dag er oft nefndur „fimm turna bærinn“ er einstakt. Á miðöldum kepptust menn við að reisa hæsta turninn í bænum sem stöðutákn og þegar hæst stóð voru þeir orðnir ríflega 70 talsins. Það er því óhætt að líkja San Gimignano á miðöldum við skýjakljúfa New York borgar – á örlítið smærri skala.
Þegar við höfum skoðað okkur um í bænum tekur Fenzi fjölskyldan á móti okkur á vínbúgarðinum sem þau hafa rekið frá 1932. Við kynnumst framleiðslunni og fáum léttan hádegisverð þar sem afurðir beint frá býli verða bornar á borð.

Næði til að njóta á frídegi

Í ferðum Fararsniðs er jafnan reynt að tryggja frjálsan tíma til að njóta staðar og stundar að vild.

Hægt er að að fara til Viareggio skoða þennan fallega strandbæ hvort heldur sem er til að hvíla sig á ströndinni eða njóta byggingalistar og mannlífsins. Einfalt er að snúa aftur til Lucca, heimsækja Flórens eða Pistoia, ganga um Montecatini Terme og skoða þennan sögufræga heilsubæ sem á sínum tíma var mjög mikilvægur áningastaður betri borgara en þeir flykktust þangað til að bæta heilsuna í félagsskap annarra mektarmanna, sýna sig og sjá aðra.

Í bænum er einnig fjöldi matsölustaða sem gaman er að heimsækja.

Matur og menning

Ítalía öll er mikil matarkista og þykir okkur hjá Fararsniði gaman að bjóða upp á góðan mat og vín í ferðum okkar. Áhersla er lögð á svæðisbundna rétti í takt við „slow food“ stefnuna þar sem hráefnið er árstíðabundið og sótt í heimahagana. Við heimsækjum vínbændur og ólífusamlag þar sem við fáum innsýn inn í ræktunina og þær áskoranir sem henni fylgja.

Flestar máltíðir sem innifaldar eru í dagskránni eru margrétta máltíðir með víni og er hver og einn staður valinn með tilliti til einstakrar upplifunar fyrir bragðlauka og önnur skilningavit.

Til þess að næra sálina förum við m.a. í göngur í fögru umhverfi, skoðum áhugaverðar byggingar (3-7 km) og njótum létt-klassískra tónleika á einstökum stað sem er á heimsminjaskrá Unesco.

Tími til að bóka

Nánari ferðadagskrá er að finna hér:
Sælkeraganga í Toskana 28. maí – 4. júní 2026
Sælkeraganga í Toskana 24.-31. ágúst 2026

Ef einhverjar spurningar vakna eða vinahópurinn/saumaklúbburinn er að velta fyrir sér að bóka ferð saman er hægt að hafa sambandi á bokanir@fararsnid.is eða í síma 611 8811. 

Ferðakveðja,

Ásta og Guðbjörg


Föngum töfra Grikklands

Nú endurtökum við leikinn þar sem Sælkeraferðin til Grikklands lukkaðis svo vel í ár og færri komust að en vildu. Næsta ferð verður dagana 6. – 14. október. Ferðin stóðst heldur betur væntingar og hópurinn naut þess að skoða þetta einstaka land þar sem fortíð og nútíð mætast átakalaust og heillandi. Flogið verður beint til Aþenu og við dveljum í 8 nætur á tveimur stöðum, í Nafplio og Aþenu. Þar kynnumst við menningunni undir dyggri leiðsögn Dominik Brun, leiðsögu- og heimamanns og íslensks fararstjóra. Við munum líka njóta alls þess besta sem grísk matargerð hefur uppá að bjóða.

Gist á góðum hótelum

Fyrstu dagana munum við dvelja í bænum Nafplio þar sem við gistum á góðu fjölskyldureknu hóteli. Hótel Letonuevo er mjög vel staðsett í bænum og stutt í allt sem bærinn hefur uppá að bjóða. Í þessum einstaka hafnarbæ sem margir telja einn þann rómantískasta í Grikklandi er ljúft að rölta um og njóta mannlífs og menningar.

Í seinni hluta ferðarinnar dveljum við á Hótel Acropoliselect, mjög góðu og vel staðsettu hóteli  í miðborg Aþenu. Stutt er í alla þjónustu, markað og aðeins er stutt ganga að Acropolishæðinni frá hótelinu. 

Skoðunarferðir

Af fjölmörgum viðkomustöðum okkar í þessari Sælkeraferð má nefna fornminjarnar í Epidauros, Asclepios heilsuböðin, Corinth skipaskurðinn sem er bæði sá dýpsti í heimi og ákaflega tilkomumikill að ógleymdri sjálfri Acropolishæðinni í Aþenu. Við munum eiga rólegan dag á eyjunni Aegina, þar munum við ganga um, fá okkur hádegisverð og njóta lífsins.

Næði til að njóta á frídögum

Í þessari ferð eru tveir frjálsir dagar til að gera það sem hugurinn girnist. Við fáum frídag í Nafplio sem hægt væri að nýta til að rölta um, slaka á í bænum eða fara á ströndina. Tímann má ennfremur nota til að skoða Palamidi kastalann sem stendur í hlíðunum fyrir ofan bæinn og  var reistur af Feneyingum á mettíma um 1713,  en hann gegndi mikilvægu hlutverki í grísku uppreisninni.

Annar frídagur gefst svo í Aþenu í lok ferðar en þar þarf engum að leiðast enda einstaklega lífleg borg.

Að lifa til að borða eða …

Ómissandi í Sælkeraferðum Fararsniðs eru heimsóknir til vínbænda og þessi ferð er engin undantekning frá þeirri reglu. Við fáum leiðsögn um vínakrana, kynnumst framleiðsluferlinu og fáum að smakka afurðirnar. Einnig heimsækjum við ólífubónda og framleiðanda  lífræns balsamikediks og  fáum að gæða okkur á lokaafurðum þeirra. Margir þekkja grísku útgáfuna af „brennivíni” Ouzo og Tsipouro sem svipar til Grappa á Ítalíu en við fáum einnig innsýn í framleiðsluna á því. Þegar til Aþenu er komið fáum við leiðsögn um líflegan matarmarkað þar sem heimamenn versla og ferskmetið fyllir borðin.

Tími til að bóka

Nokkur sæti eru laus í þessa einstöku ferð þar sem við dekrum við öll skilningarvitin.

Nánari ferðadagskrá er að finna hér:
Sælkeraferð til Grikklands 6. – 14. október 2025

Ef einhverjar spurningar vakna eða vinahópurinn/saumaklúbburinn er að velta fyrir sér að bóka ferð saman er hægt að hafa sambandi á bokanir@fararsnid.is eða í síma 611 8811. 

Ferðakveðja,

Ásta og Guðbjörg