Sælkeraferð til Grikklands 6.-14. október 2025

Grikkland er land sem býður upp á allt sem hugurinn girnist. Í þessari ferð heimsækjum við Aþenu, eina af elstu borgum heims með fjölda fornminja , upplifum hvernig nútíð og fortíð fléttast saman og heimsækjum sögufræga staði. Við gistum í dásamlega fallegum bæ – Napflio, skoðum Corinth skipaskurðinn, Epidaurus leikhúsið og förum í göngu á eyjunni Aegina. Einnig heimsækjum við bændur, kynnumst framleiðslunni og fáum að bragða á henni.

Hvað býðst þér í sælkeraferð í Grikklandi

  • Flug til og frá Íslandi með Icelandair og SAS
  • Gist á góðum hótelum í 8 nætur með morgunverði, 4 nætur í Napflio og 4 nætur í Aþenu
  • Allur akstur sem nefndur er í dagskrá
  • Kvöldverður á góðum veitingahúsum, fjögur kvöld
  • Grillveisla
  • Aðgangseyrir á þá staði sem nefndir eru í dagskrá
  • Sigling yfir í eyjuna Aegina
  • Íslensk fararstjórn
  • Innlend leiðsögn í öllum ferðum

Fararstjórn: Dominik Bruun og Ásta Björk Sveindóttir

2 sæti laus
Hafið samband á bokanir@fararsnid.is

FERÐADAGSKRÁ

DAGUR 1 – MÁNUdagur 6.októBER

07:40 Flogið frá Keflavíkurflugvelli til Kaupmannahafnar með Icelandair
14:30 Lagt af stað til Aþenu með SAS
18:50 Lent í Aþenu og stefnan tekin á bæinn Nafplio, þar sem við gistum fyrstu næturnar
21:30 Innritun á hótel í Nafplio

DAGUR 2 – ÞRIÐJUDAGUR 7. OKTÓBER

Morgunverður á hóteli
10:00 Rúta fer með okkur til Nemea þar sem við heimsækjum vínbónda og fáum leiðsögn um vínakurinn, fræðumst um söguna og smökkum á framleiðslunni
13:00 Heimsókn til framleiðenda lífræns ediks, bæði balsamik- og vínediks og fáum smakk, innifalið
14:00 Hádegisverður- grillveisla í fallegum garði, innifalin
16:00 Rúta heim að hóteli og kvöldið frjálst

DAGUR 3 – Miðvikudagur 8.októBER

Morgunverður á hóteli
10:00 Rúta flytur okkur til Epidauros þar sem við göngum um einstakar fornminjar, leikhús og rústir Asclepios með fornum heilsuböðum
13:00 Höldum af stað á ólífuakur þar sem lífræn ólífuolía er framreidd. Við kynnumst framleiðslunni og fáum að bragða á henni, innifalið
14:30 Heimsókn til Ouzo og Tsipouro framleiðenda þar sem við fræðumst um þessi vinsælu grísku vín og fáum að smakka, innifalið
17:00 Rúta flytur okkur heim á hótel
20:00 Kvöldverður á völdum veitingastað, innifalinn

DAGUR 4 – Fimmtudagur 9.októBER

Morgunverður á hóteli
Frjáls dagur í Nafplio, hægt að fara á ströndina eða rölta um bæinn

DAGUR 5 – FÖSTUdagur 10.október

Morgunverður á hóteli
11:00 Rúta flytur okkur til Aþenu og leið okkar liggur yfir Corinth skipaskurðinn og munum við fá að heyra sögu hans
13:00 Áætluð koma til Aþenu og innritun á hótel miðsvæðis í borginni
17:00 Heimsækjum nýtísku vínbar, fáum vínsmökkun og fræðslu um grísk vín. Léttar veitingar bornar fram, innifalið

DAGUR 6 – LAUGARdagur 11.októBER

Morgunverður á hóteli
10:00 Leggjum af stað upp á Acropolis hæðina
12:00 Göngum um líflegan matarmarkað í borginni og fáum götubita á leið okkar um þröngar götur Aþenu, innifalinn
14:00 Höldum göngunni áfram um gamla bæinn í Aþenu og fræðumst um sögu hans og menningu
Dagurinn frjáls eftir göngu og kvöldverður á eigin vegum

DAGUR 7 – SUNNudagur 12.október

Morgunverður á hóteli
09:00 Tökum metro-ið að Piraeus Port höfninni þar sem við tökum ferju til eyjunnar Aegina. Eyjan á sér langa sögu og fornminjar allt frá 5. öld fyrir krist s.s Apollo hofið en það er eitt af best varðveittu dórísku hofum Grikklands. Eyjan er einnig þekkt fyrir fallegar strendur og ljúffengan mat þar sem Aegina hnetur eru í aðalhlutverki
Hádegisverður á eigin vegum
17:00 Siglum til baka
20:00 Kvöldverður á ekta grískum stað, innifalinn

DAGUR 8 – MÁNUdagur 13.októBER

Morgunverður á hóteli
Frjáls dagur í Aþenu

DAGUR 9 – ÞRIÐJUdagur 14.októBER

Morgunverður á hóteli
10:30 Höldum af stað með rútu út á flugvöll
14:30 Heimflug með SAS og Icelandair og lent á Íslandi um kl.23:50

PS. Einhverjar tímasetningar gætu hnikast til og þá tilkynnum við það í upphafi ferðar


Verð 446.100 kr. á mann í tvíbýli

Hafið samband á bokanir@fararsnid.is eða í síma 611 8811 ef þið hafið áhuga á að bóka

Verð miðast við gengi og flugverð í nóvember 2024. Athugið að lágmarksþáttaka er 18 manns. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina er hún endurgreidd að fullu.

Fararstjórn

Ásta Björk Sveinsdóttir

Reykvíkingurinn Ásta Björk hefur víðtæka reynslu af skipulagningu ferða og fararstjórn. Hún hefur skipulagt ýmsar ævintýraferðir fyrir hópa og má sem dæmi nefna afar velheppnaða blöndu af sælkerasiglingu og rafmagnsreiðhjólaferð í Króatíu.

Auk þess hefur hún verið fararstjóri í skíðaferðum til Ítalíu og Austurríkis, árshátíðarferðum víða um Evrópu, fótboltaferðum og mótsferðum fyrir unglingalandslið HSÍ.

Innifalið

  • Flug með Icelandair og SAS til Aþenu
  • Gisting á góðum hótelum í Aþenu og Nafplios
  • 8 x Morgunverðarhlaðborð
  • 2 x Hádegisverður
  • 4 x Kvöldverður á völdum veitingastöðum
  • Grillveisla
  • Rúta samkvæmt ferðadagskrá
  • Ferjumiði til Aegina
  • Aðgangur að öllum viðkomustöðum samkvæmt ferðalýsingu
  • Íslensk fararstjórn
  • Innlend leiðsögn í öllum skoðunarferðum

EKKI INNIFALIÐ

  • Gistinattagjald
  • Þjórfé þar sem það á við

ANNAÐ

  • Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og / eða heimilistryggingum
  • Fararsnið áskilur sér rétt til að fella niður ferðina ef þáttaka er ekki næg eða vegna ytri aðstæðna