Hjól og sigling í Grikklandi 14. – 22. september 2026- UPPSELT

Grikkland er sannkallað draumaland sem gaman er að skoða og það munum við gera á skútu og á rafmagnshjólum, bæði á meginlandinu og á eyjum.
Dagleiðir eru mislangar en ættu að vera frekar auðveldar allflestum sem hafa einhverja reynslu af því að hjóla. Við munum gefa okkur tíma til að synda í sjónum og njóta lífsins saman. Þessi ferð sameinar skemmtilega blöndu af hreyfingu, afslöppun og menningarupplifun ásamt því að borða góðan grískan mat – blanda sem svíkur engan.

HVAÐ BÝÐST ÞÉR Í HJÓL OG SIGLINGU Í GRIKKLANDI?

  • Siglt frá hafnarborginni Piraeus.
  • Gist á snekkjunni Aegeotissa II og tvær nætur í Nafplio.
  • Hálft fæði á snekkjunni ásamt auka hádegisverði og kvöldverði
  • Rafmagnsreiðhjól
  • Notalegar samverustundir með ferðafélögunum og tækifæri til að kynnst nýjum.
  • ATH flug er ekki innifalið – tækifæri til að tengja ferðina við aðra áfangastaði. Fararsnið getur aðstoðað við að finna heppilegar flugleiðir.

Fararstjórn: Ásta Björk Sveindóttir

UPPSELT

FERÐADAGSKRÁ 

MánuDAGUR 14. SEPTEMBER

Ferðin hefst við Piraeus höfnina í Aþenu og við komum okkur fyrir í skútunni sem við höfum fyrir okkur næstu 6 nætur.
13:00 Siglum á fyrsta áfangastað sem er bærinn Nea Epidauros.
19:00 Kvöldverður um borð og fararstjórafundur.

ÞRIÐJUDAGUR 15. SEPTEMBER

Morgunverður um borð.
09:30
Hjólaferð hefst
Við hjólum á meginlandinu í dag og á leið okkar munum við stoppa hjá ólífubónda, fræðast um framleiðsluna og smakka á henni.
Þá hjólum við til Ligourio, lítils bæjar við hið fræga Epidavros leikhús sem er eitt af undrum fornaldar og eitt best varðveitta leikhús Grikklands.
13:00 Hjólum til baka að skútunni.
14:30 Siglum af stað til eyjarinnar Poros.
19:00 Kvöldverður um borð.

MiðvikuDAGUR 16. SEPTEMBER

Morgunverður um borð
09:30 Hjólaferð hefst
Við hjólum á eyjunni Poros sem oft er kölluð friðareyjan því þar hittust sendifulltrúar ýmissa landa á 19. öld til að funda og til að koma á friði. Þar má enn sjá minjar hofs sem reist var um 5 öldum fyrir krist og  tileinkað  sjávarguðinum Poseidon.
Við fáum okkur hádegisverð á eyjunni, ekki innifalið.
15:30 Siglum á næsta áfangastað sem er eyjan Hydra.
19:00 Kvöldverður um borð.

fimmtuDAGUR 17. SEPTEMBER

Morgunverður um borð
10:00 Í dag verður ekki hjólað heldur förum við í gönguferð um eyjuna Hydru. Þar eru ekki leyfðir bílar svo við munum njóta hennar fótgangandi. Þetta er eyja listamanna og mikil draumaeyja. Nafnið Hydra þýðir vatn en eyjan var í fornöld rík af náttúrulegum vatnsuppsprettum sem nú hafa þornað upp að mestu. Við munum kíkja á húsið sem Leonard Cohen keypti og dvaldi lengi í.
Fáum okkur hádegisverð á eyjunni, ekki innifalið.
14:00 Siglum af stað til næstu eyjar sem er Spetses.
19:00 Kvöldverður um borð.

föstuDAGUR 18. SEPTEMBER

Morgunverður um borð
09:30 Hjólaferð hefst.
Við hjólum um eyjuna Spetses sem er síðasta eyjan í Saronísku eyjakeðjunni. Eyjan var kölluð „kryddeyjan“ en á miðöldum var þar mikið verslað með krydd.
Á 18 – 19. öld bjó á eyjunni frelsishetjan Laskarina Bouboulina, þjóðhetja Grikkja en hún var m.a. fræg fyrir að láta smíða eigið herskip og taka þátt í frelsisstríðinu gegn Tyrkjum.
Við fáum okkur hádegisverð á eyjunni, ekki innifalið.
15:00 Siglum af stað til Leonidio sem er á meginlandinu.
19:00 Kvöldverður um borð.

laugarDAGUR 19. SEPTEMBER

Morgunverður um borð
09:30 Við hjólum að Moni Elonis, klaustri frá 16. öld en það hangir utan í klettavegg og er stórfenglegt á að líta. Við munum svo snæða hádegisverð á ströndinni, innifalið.
15:00 Siglum til Nafplio.
19:00 Kvöldverður um borð.

sunnuDAGUR 20. SEPTEMBER

Morgunverður um borð
Kl. 09:30 hjólaferð hefst og munum við hjóla til Argolida og skoða okkur um á þessu forna svæði og enda svo hjólaferðina okkar í Nafplio sem er lítill bær þar sem við ætlum að eyða næstu tveimur dögum í. Á meðan við hjólum mun farangurinn okkar vera færður yfir á hótel þar sem við gistum í tvær nætur.
Kl. 19:00 kvöldverður í Nafplio, innifalinn.

mánuDAGUR 21. SEPTEMBER

Morgunverður á hóteli
Dagurinn frjáls í Nafplio
Siðasta dag ferðarinnar sem er frídagur er hægt að rölta á eigin vegum um þröngar götur þessa fyrrum höfuðstaðar Grikklands, kíkja í litríkar verslanir eða kaffihús, fara í göngu, skoða virki,eða bara hvíla lúin bein, sleikja sólina og búa sig undir heimferð.

þriðjuDAGUR 22. SEPTEMBER

Morgunverður á hóteli, brottskráning og uppgjör reikninga.
09:00 Brottför með rútu á flugvöllinn í Aþenu, fyrir þá sem það vilja

UPPSELT

Verð á mann í tvíbýli kr. 516.900,-

Staðfesting kr. 120.000,- SKILMÁLAR FARARSNIÐS
Vinsamlega tilgreinið herbergisfélaga í athugasemdasvæði á greiðslusíðu

Verð miðast við gengi í ágúst 2025 og getur breyst.
Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina vegna ónægrar þáttöku er hún endurgreidd að fullu.

INNIFALIÐ:

  • Gisting í skútu í 6 nætur og tvær nætur á hóteli í Nafplio 
  • Morgunverður í átta daga ásamt kvöldverðum í skútunni
  • Einn hádegisverður við ströndina með vatni 
  • Heimsókn til ólífubónda með smakki og léttum veitingum
  • Kvöldverður í Nafplio
  • Allar skoðunar og hjólaferðir sem nefndar eru í dagskrá
  • Rúta á flugvöllinn í Aþenu á lokadegi
  • Íslensk fararstjórn
  • Innlendir leiðsögumenn

EKKI INNIFALIÐ

  • Gistináttagjald
  • Hádegisverðir á hjóladögum

Fararstjórn

Ásta Björk Sveinsdóttir

Reykvíkingurinn Ásta Björk hefur víðtæka reynslu af skipulagningu ferða og fararstjórn. Hún hefur skipulagt ýmsar ævintýraferðir fyrir hópa og má sem dæmi nefna afar velheppnaða blöndu af sælkerasiglingu og rafmagnsreiðhjólaferð í Króatíu.

Auk þess hefur hún verið fararstjóri í skíðaferðum til Ítalíu og Austurríkis, árshátíðarferðum víða um Evrópu, fótboltaferðum og mótsferðum fyrir unglingalandslið HSÍ.

FYRIRSPURNIR OG FORGANGSLISTI

Fyrirspurnir: bokanir@fararsnid.is

Viltu vera á forgangslista?  Skráning á póstlista