Hjólaferð og sigling í Króatíu 16.-23. ágúst 2025- UPPSELT

Króatía er einstök nátturuperla við Adriahafið en henni tilheyra yfir þúsund eyjar og eru 48 þeirra í byggð. Við munum sigla á snekkju með rafmagnsreiðhjól í farteskinu milli nokkurra þessarra eyja, gista um borð og hjóla á eyjunum. Dagleiðir eru mislangar og tveir dagar miðlungs erfiðir. Góður tími gefst til að njóta náttúrunnar og synda í tærum sjónum. Þessi ferð sameinar skemmtilega blöndu af hreyfingu, afslöppun og góðum mat- blanda sem svíkur engan.
Split -Split

Hvað býðst þér í siglingu og hjólaferð í Króatíu?

  • Sigling frá Split á góðri snekkju með 20 káetum
  • Gist er í þægilegum 2ja manna káetum með salerni og sturtu
  • Hálft fæði á snekkju
  • Rafmagnsreiðhjól
  • Flug er ekki innifalið en Fararsnið getur veitt upplýsingar um heppilegar flugtengingar. Tækifæri til að tengja ferðina við aðra áfangastaði.

Fararstjórn: Ásta Björk Sveindóttir

UPPSELT

FERÐADAGSKRÁ

DAGUR 1 – laugardagur 16.ágúst-Brač

12:00-12:30 Innritun um borð í MS Liberty við höfnina í Split þar sem dregið verður í káetur.
13:00 Hádegisverður um borð og fararstjórafundur. Sigling frá Split til  eyjunnar Brač.
Hjólaleið: Supertar – Milna – 20km. Erfiðleikastig 3/5.
Hjólaleiðin á fyrsta degi er stutt, eða um 20km, enda eru allir að kynnast hjólunum sínum sem hver og einn hefur til umráða alla ferðina, hjólað á malbiki og malarstíg. Stoppum til að fá okkur hressingu og hægt að skella sér til sunds.
Kvöldverður á eigin vegum
Gist verður við eyjuna Brač í bænum Milna

DAGUR 2 – sunnudagur 17. ágúst-Brač

07:30 Morgunverður hefst um borð 
09:00 Lagt af stað í hjólaferð um eyjuna og hjólað verður frá Milna til Bol, stoppað til að fá okkur hressingu og sundsprett.
13:00 Hádegisverður á eyjunni, heimsækjum bændur og fáum máltíð beint frá býli, ekki innifalinn.
Hjólaleið: Milna – Bol, 52 km. Erfiðleikastig 5/5, hjólað á malbiki og malarstíg.
Gist verður við eyjuna Brač í bænum Bol
Kvöldverður í snekkjunni

DAGUR 3 – mánudagur 18.ágúst – HVAR

6:30 Siglt til eyjunnar Hvar
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst og hjólað um hæðir Hvar og stoppað í Stari Grad sem er einn af elstu bjæum Evrópu
13:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni
Hjólaleið: Jelsa – Hvar 32 km. Erfðleikastig 2/5, hjólað á malbiki og malarstíg.
Gist verður við eyjuna Hvar í bænum Hvar.
Kvöldverður á eigin vegum

DAGUR 4 – þriðjudagur 19.ágúst-vis

06:30 Siglt til eyjunnar Vis 
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst
12:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni
Hjólaleið: Vis – Komiza- Vis 33 km
Gist verður við eyjuna VIS
Kvöldverður um borð í snekkjunni – Skipstjórakvöldverður- þetta kvöld klæðumst við hvítu

DAGUR 5 – miðvikudagur 20.ágúst -Korčula

6:30 Siglt til eyjunnar Korčula
7:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst
13:00 Hádegisverður í sveitinni, gillveisla beint frá býli, ekki innifalinn.
Hjólaleið: Vela Luka – Korčula 59 km. Erfðleikastig 5/5, hjólað á malbiki og malarstíg.
Gist verður við bæinn Korčula
Kvöldverður um borð í snekkjunni

DAGUR 6 – fimmtudagur 21.ágúst-Pelješac

6:30 Siglt til eyjunnar Kučište
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Lagt af stað í hjólaferð 
13:00 Hádegisverður í snekkjunni
Hjólaleið: Trstenik – Kučište 31 km. Erfðleikastig 3/5, hjólað á malbiki.
Gist verður við Makarska
Kvöldverður á eigin vegum

DAGUR 7 – föstudagur 22.ágúst-Omiš

6:30 Siglt til eyjunnar Omiš
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Lagt af stað í hjólaferð 
13:00 Hádegisverður um borð
Hjólaleið: Omiš – Podgrađe – Omiš – 27 km. Erfðleikastig 3/5, hjólað á malbiki.
Siglt til Split
Kvöldverður á eigin vegum í Split

DAGUR 8 – laugardagur 23.ágúst-Split

07:30 Morgunverður hefst um borð og við yfirgefum skipið eigi
síðar en kl 09:00 
Þökkum fyrir góða viku

Verð miðast við gengi í september 2024. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina vegna ónægrar þáttöku er hún endurgreidd að fullu.

Verð á mann í tvíbýli kr. 371.400,-

Staðfesting kr. 120.000,- SKILMÁLAR FARARSNIÐS

UPPSELT

Verð miðast við gengi í september 2024. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina vegna ónægrar þáttöku er hún endurgreidd að fullu.

Greiðsla 2 – eindagi er 20 vikum fyrir brottför, kr. 125.700
Lokagreiðsla – eindagi er 10 vikum fyrir brottför, kr. 125.700

Fararstjórn

Ásta Björk Sveinsdóttir

Reykvíkingurinn Ásta Björk hefur víðtæka reynslu af skipulagningu ferða og fararstjórn. Hún hefur skipulagt ýmsar ævintýraferðir fyrir hópa og má sem dæmi nefna afar velheppnaða blöndu af sælkerasiglingu og rafmagnsreiðhjólaferð í Króatíu.

Auk þess hefur hún verið fararstjóri í skíðaferðum til Ítalíu og Austurríkis, árshátíðarferðum víða um Evrópu, fótboltaferðum og mótsferðum fyrir unglingalandslið HSÍ.

Innifalið

  • Sigling í 8 daga gisting í 7 nætur
  • 7 x morgunverðarhlaðborð
  • 5 x 3 rétta hádegisverður um borð
  • 2 x Kvöldverður um borð 3ja rétta
  • 1 x “Captains Dinner” um borð eitt kvöld, hvíta  kvöldið
  • Leiga á rafmagnshjólum í viku ásamt hjólatösku
  • Reyndir leiðsögumenn í öllum hjólaferðum
  • Kaffi, te, vatn, ávextir og hnetur alla daga um borð
  • Frítt Internet

EKKI INNIFALIÐ

  • Flug til og frá Króatíu 
  • Gisting fyrir/eftir siglingu
  • Drykkir um borð, (ekki er heimilt að neyta eigin drykkja í matsal og á útidekki)
  • 2 x Hádegisverður, beint frá býli, (2 x 30 eur)
  • Ferðamanna- og hafnarskattar (50 eur á mann)
  • Þjórfé fyrir léttadrengi að taka hjól í og úr snekkjunni (20 eur á mann)
  • Þjórfé um borð í lok ferðar fyrir áhöfn og hjólaleiðsögumenn

ANNAÐ

  • Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og / eða heimilistryggingum
  • Fararsnið áskilur sér rétt til að fella niður ferðina ef þáttaka er ekki næg eða vegna ytri aðstæðna
  • Kannið evrópska sjúkratryggingakortið ykkar
  • Allar frekari upplýsingar veitir Ásta Björk s: 611 8811