Sælkeraganga við Gardavatn 15.- 22. júní 2027

Töfrandi blanda menningar, fegurðar, léttrar hreyfingar og afþreyingar við Gardavatn, stærsta vatn Ítalíu

Hvað býðst þér í Sælkeragöngu við Garda?

  • Þægilegar gönguferðir þar sem þú upplifir hið daglega líf í sveit og borg
  • Ef einhver er ekki upplagður til göngu er ávallt hægt að komast á áfangastað með leigubíl og hitta hópinn
  • Gisting á sama hóteli alla ferðina, í bænum Peschiera á góðum stað við vatnið
  • Stuttar akstursleiðir
  • Sælkeramáltíðir á völdum veitingastöðum, borðvín og vatn innifalið
  • Einstök upplifun: Þú siglir á Gardavatni og stígur á land í fallegustu þorpunum
  • Upplifa óperuflutning í sjálfri Arenunni í Verona
  • Heimsókn í vínkjallara
  • Mjög mikið innifalið
  • Notalegar samverustundir með ferðafélögunum
  • Hámarksfjöldi í hóp 25 manns og akstri haldið í lágmarki
  • Lausar stundir og næði til ráðstöfunar að vild

FERÐADAGSKRÁ

DAGUR 1 – þriðjudagur 15. JÚNÍ

Flogið með Icelandair til Feneyja með flugi: FI 948 KEFVCE 08:20 – 14:45
Rúta bíður á flugvelli  og ekið rakleiðis á gististað.
Gist á: Hótel Puccini, nýlegu, vel staðsettu fjölskyldureknu hóteli við vatnið í bænum Peschiera, í sjö nætur m/morgunverði
18:00 Áætlaður komutími á hótel, innritun
19:20 Fordrykkur og kvöldverður á skemmtilegum veitingastað með útsýni yfir vatnið, innifalinn.

DAGUR 2 -miðvikudagur 16. júní

Morgunverður á hóteli.
10:00 Göngum frá hótelinu að ferjuhöfninni í Peschiera
11:00 Siglum með einkabát yfir til Gardone þar sem við skoðum okkur um. Einnig heimsækjum við Heller garðinn þar sem náttúra og nútímalist mætast á ævintýralegan hátt. Hádegisverður á skemmtilegum veitingastað í Gardone, innifalinn
15:45 Siglum yfir til bæjarins Garda þar sem við fáum smá frjálsan tíma til að skoða okkur um
18:00 Rúta flytur okkur til baka á hótel
Kvöldið frjálst

DAGUR 3 – fimmtudagur 17. júní

09:30  Rúta flytur okkur til bæjarins Bardolino þaðan sem við hefjum gönguferð með innlendum leiðsögumanni upp á höfðann La Rocca sem gnæfir yfir bæina Garda og Bardolino ( 2t, ca 250m hækkun)
Eftir stutt myndastopp höldum við aðra leið til baka og endum heima í garði hjá henni Elenu, þar sem okkar bíður heimagerður matur og vín, innifalinn
Þeir sem kjósa að sleppa göngunni geta skoðað sig um í Bardolino og farið með rútunni þaðan í hádegisverðinn
15:00 Förum með rútu aftur heim á hótel
Kvöldverður á eigin vegum

DAGUR 4– föstudagur 18. júní

Morgunverður á hóteli
Frjáls dagur í Peschiera

Dagur 5 –laugardagur 19. júní

Morgunverður á hóteli og morguninn frjáls
13:00 Dagsferð til Verona, ekið að fallegum útsýnisstað, gengið um frægustu torg og stræti gömlu miðborgarinnar með innlendum leiðsögumanni í 1,5 klst.
16:00 Síðdegið er frjálst
19:00 Óperu-kvöldverður á glæsilegum stað í hjarta borgarinnar,innifalinn
21:15 Óperusýning í Arenunni þar sem við sjáum Aida eftir Giuseppe Verdi, innifalin
Kl. 00:30 rúta heim á hótel.

Dagur 6 –sunnudagur 20. júní

Morgunverður á hóteli
09:30  Ökum til Bardolino þaðan sem við hefjum göngu meðfram vatninu til bæjarins Lazise ( 5km) þar sem við fáum frjálsa stund fyrir hádegisverð.
13:00 3ja rétta hádegisverður í Lazise með vatni og borðvíni, innifalinn
Að hádegisverði loknum siglum við aftur til Peschiera
Kvöldverður á eigin vegum

DAGUR 7 -mánudagur 21. JÚNÍ

Morgunverður á hóteli
Fyrri partur dags er frjáls
17:30 Höldum af stað með rútu á fallegan vínbúgarð í sveitinni þar sem við fáum að kynnast framleiðslunni og skoða vínkjallarann
Lokakvöldverður. Að kynningu lokinni verður borinn fram glæsilegur lokakvöldverður, innifalinn
21:30 Rúta flytur okkur heim á hótel

DAGUR 8-þriðjudagur 22. júní

Morgunverður á hóteli og útritun
11:00 Rúta flytur okkur frá hóteli á Feneyjaflugvöll
FI 949 VCEKEF 15:55 -18:53

Verð á mann í tvíbýli kr. 444.700,-

Staðfesting kr. 70.000,- SKILMÁLAR FARARSNIÐS
Vinsamlega tilgreinið herbergisfélaga í athugasemdasvæði á greiðslusíðu

Hægt er að nýta hnappinn hér að neðan ef skipta á greiðslu milli tveggja korta

Verð miðast við gengi og flugverð í ágúst 2026. Athugið að lágmarksþáttaka er 20 manns. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina er hún endurgreidd að fullu.

INNIFALIÐ:

  • Flug með Icelandair til og frá Feneyjum
  • Skattar og lendingagjöld
  • Innrituð taska (23 kg) og handfarangur
  • Rútuakstur frá og til flugvallar
  • Allur annar rútuakstur samkvæmt þessari dagskrá
  • Gisting á góðu hóteli í sjö nætur
  • Morgunverður í sjö daga
  • Þrír ríkulegir hádegisverðir með vatni og borðvíni og kaffi á eftir
  • Þrír glæsi-kvöldverðir á völdum veitingastöðum, með vatni og borðvíni og kaffi á eftir
  • Heimsókn í vínkjallara og vínkynning
  • Miðar á óperusýningu í Arenunni
  • Ferjumiðar á Gardavatni
  • Aðgangur að Heller garðinum
  • Allar skoðunar- og gönguferðir sem nefndar eru í dagskrá
  • Íslensk fararstjórn
  • Innlendir leiðsögumenn

EKKI INNIFALIÐ:

  • Gistináttagjald
  • Þjórfé

SKILMÁLAR FARARSNIÐS

Fararstjóri

Guðbjörg Magnúsdóttir

Guðbjörg Magnúsdóttir er Mosfellingur í húð og hár.  Hún lauk námi í ítölsku og ferðamálafræði frá HÍ ásamt því að vera leiðsögumaður og ljósmyndari. Ítölsk menning, samfélag og matargerð skipa stóran sess í lífi hennar.

Guðbjörg þekkir afar vel til Ítalíu og menningar landsins enda hefur hún verið þar með annan fótinn frá 1994.

Posted on Google Google
Brynhildur Björg Jónsdóttir profile picture
Brynhildur Björg Jónsdóttir
392 days ago
Google star 1Google star 2Google star 3Google star 4Google star 5Trustindex verifies that the original source of the review is Google.
Fór með Fararsniði til Garda og nágrennis og á eiginlega ekki til orð að lýsa upplifun minni. Ekki bara endalaust gaman í hópi 55 Oddfellowsystra frá Akranesi heldur og ekki síst frábær skipulagning og fararstjórn hjá Guðbjörgu og Björk og sáum og upplifðum svo margt fallegt og skemmtilegt. Mæli algjörlega með Fararsniði og á eftir að skoða aðrar ferðir með þeim. Takk, takk.
Posted on Google Google
Sigríður Bjarnadóttir profile picture
Sigríður Bjarnadóttir
392 days ago
Google star 1Google star 2Google star 3Google star 4Google star 5Trustindex verifies that the original source of the review is Google.
Frábær ferð með yndislegum fararstjórum, allt uppá 10, matur, ferðir og skemmtun. Takk kærlega fyrir dásamlega daga við Garda vatnið.

FYRIRSPURNIR OG FORGANGSLISTI

Fyrirspurnir: bokanir@fararsnid.is

Viltu vera á forgangslista?  Skráning á póstlista