Töfrandi blanda náttúrufegurðar, menningar og matar í þessari einstöku ferð. Fararsnið leggur áherslu á að ferðast í litlum hópum, sameiginlegar máltíðir á vel völdum stöðum þar sem matar-og vínmenning svæðisins er í hávegum höfð og eru þær innifaldar í verði. Gisting er valin af kostgæfni og hótel ávallt staðsett miðsvæðis í þeim borgum sem dvalið er í. Leitast er við að halda dagleiðum í akstri eins stuttum og kostur er á og sjá til þess að nægur tími gefist til að njóta. Þetta er einstaklega glæsileg ferð og mikið innifalið í verði.
Hvað býðst þér í vorferð til Sikileyjar
- Gist á 4-5* hótelum með morgunverði sem staðsett eru miðsvæðis
- Morgunflug með Icelandair til Rómar og þaðan til Palermo með Italian Airways, flogið heim frá Catania í gegnum Róm (farangur innritaður alla leið og íslenskur fararstjóri fer með hópnum frá Íslandi)
- Sælkeramáltíðir á völdum veitingastöðum með drykkjum þar sem við kynnumst matarmenningu hvers svæðis
- Einstök upplifun í blöndu af sögu, byggingarlist, matarmenningu og töfrandi náttúrufegurð
- Notalegar samverustundir með ferðafélögunum og tækifæri til að eignast nýja félaga
- Lausar stundir og næði til að njóta að vild
- Hámark 30 manns í ferð
- Akstri haldið í lágmarki
- Allt sem nefnt er í dagskrá er innifalið í verði, nema annars sé getið
Fararstjórn: Guðbjörg Magnúsdóttir
UPPSEL
FERÐADAGSKRÁ
DAGUR 1 – Miðvikudagur 28.apríl

07:50 Brottför með Icelandair til Rómar með flugi FI562 þar sem við millilendum. Þaðan höldum við áfram til Palermo
18:20 Lending í Palermo
Rúta bíður á flugvellinum í Palermo og flytur okkur á hótel í hjarta borgarinnar.
Innritun á Eurostar Hotel Centrale Palace
20:00 Komuskál og kvöldverður á hóteli, innifalinn
DAGUR 2 – FIMMTUDAGUR 29.apríl

Morgunverður á hóteli
09:30 Höldum af stað fótgangandi frá hóteli ásamt staðarleiðsögumanni til að skoða Palermo sem er einstaklega lífleg borg. Við komum víða við í þessari göngu t.d í Dómkirkjunni, Palantína kapellunni sem staðsett er í höll Normanna (Palazzo dei Normanni) þar sem ólíkir menningarheimar mætast og bera í glæsileik sínum, stjórnkænsku eða visku Normanna-konunga glöggt vitni. Einnig skoðum við skammarlega gosbrunninn „Fontana della Vergogna” og endum svo ferðina á líflegum matarmarkaði þar sem við fáum að bragða á nokkrum af vinsælustu götubitum borgarbúa, innifalið.
Síðdegi og kvöldið frjálst
DAGUR 3 – FÖSTUDAGUR 30.APRÍL

Morgunverður á hóteli.
09:30 Við tökum stefnuna á bæinn Monreale með viðkomu í hinni stórkostlegu dómkirkju sem geymir einstök mósaíkverk og skreytingar þar sem gotneskur, býsanskur og arabískur stíll renna saman á töfrandi máta.
Frá Monreale höldum við áfram til Cefalú, heillandi hafnarbæjar sem af augljósum ástæðum var valinn einn af fallegustu bæjum Ítalíu en þar má m.a. finna byggingar frá valdatímum Araba og síðar Normanna.
13:00 Hádegisverður að hætti heimamanna úr hráefni beint úr hafinu, vatni, víni og kaffi, innifalinn.
Frjáls tími í Cefalú eftir hádegisverð.
17:30 Áætluð koma heim á hótel.
Frjálst kvöld í Palermo
DAGUR 4 – LAUGARDAGUR 1.maí

Morgunverður á hóteli
Frjáls dagur í Palermo
DAGUR 5 – SUNNUDAGUR 2.maí

Morgunverður og útritun af hóteli
08:00 Þennan dag færum við okkur frá vesturströnd Sikileyjar yfir á austurströndina og endum daginn í Siracusa þar sem við dveljum næstu 2 nætur.
Um morguninn stoppum við í Piazza Armerina þar sem við hittum leiðsögumann, skoðum og fræðumst um sögu Villa Romana del Casale (rómversku Casale höllina) sem byggð var á 3 – 4 öld e.kr. Höllin lá grafin og gleymd um aldir eftir að aurskriða huldi hana með öllu. Við uppgröft komu í ljós einstaklega vel varðveittar mósaikmyndir sem þekja um 3500 fm gólfflöt. Tvímælalaust mikilvægasti vitnisburður um rómverska menningu á Sikiley enda hefur höllin verið á heimsminjaskrá Unesco frá árinu 1997.
Að heimsókn lokinni fáum við frjálsan tíma til að slaka á og fá okkur hádegishressingu áður en við leggjum aftur af stað til Siracusa
16:30 Innritun á Hótel Ortea Palace 5* hótel sem staðsett er á frábærum stað á Ortigia eyjunni í Siracusa.
19:30 Kvöldverður með vatni og víni að hætti heimamanna á veitingastað hótelsins, innifalinn.
DAGUR 6 – MÁNUDAGUR 3.maí

09:00 Hittumst í anddyri hótelsins og göngum af stað með staðarleiðsögumanni sem kynnir okkur fyrir þessari einstöku borg þar sem forn-grikkir réðu ríkjum öldum saman og síðar Rómverjar, Arabar og margar aðrar þjóðir sem hafa sett svip á umhverfi og menningu.
Frjáls dagur og kvöld í Siracusa að því loknu
DAGUR 7 – ÞRIÐJUDAGUR 4.maí

Morgunverður og útritun
09:30 Í dag verður stefnan tekin norður á bóginn, til Giardini Naxos þar sem við ætlum að dvelja næstu 4 næturnar. Áður en við yfirgefum Siracusa stoppum við og skoðum Neapolis fornminjasvæðið frá tímum grikkja og rómverja þar sem meðal annars má finna einstakar steinnámur.
13:00 Hádegisverður, innifalinn
16:30 Innritun á Delta hótel Giardini Naxos
18:30 Fordrykkur á hótelinu, innifalinn
Kvöldið frjálst
DAGUR 8 – MIÐVIKUDAGUR 5.maí

09:00 Höldum af stað með rútu frá hótelinu til Taormina sem stendur hátt yfir Giardini Naxos. Göngum með staðarleiðsögumanni um Taormina sem er hvað frægust fyrir stórfenglegt grísk- rómversk útileikhús sem stendur fyrir ofan bæinn. Þaðan er ægifagurt útsýni til hafs og til Etnu. Við kynnumst sögunni og fáum innsýn í samfélagið sem reisti þessi ótrúlegu mannvirki sem enn standa. Mannlífið í bænum hefur orðið mörgum að innblæstri enda var þetta einn vinsælasti áfangastaður listamanna á 19. og 20.öldinni.
Í Taormina er margt að sjá, t.d Corvaja höllina sem ber ýmsum tímabilum sikileyskrar sögu vitni.
13:00 Hádegisverður að hætti heimamanna á veitingastað í borginni með vatni, víni og kaffi, innifalinn.
Frjáls tími
17:00 Heimferð til baka á hótel.
Kvöldið frjálst
DAGUR 9 – FIMMTUDAGUR 6.maí

Morgunverður á hóteli
09:30 Höldum með rútu að vínbúgarði í norðurhlíðum Etnu þar sem við fáum að kynnast víngerðinni og bragða á afurðum sem ræktaðar eru á þessu einstaklega gjöfula landsvæði.
Hádegisverður beint frá býli með vatni, víni og kaffi, innifalinn.
Kvöldið frjálst.
DAGUR 10- FÖSTUDAGUR 7.maí

Frjáls dagur í Giardini Naxos þar sem hægt er að slaka á við ströndina eða sundlaugina, fara í siglingu, göngu eða gera það sem hvern langar.
DAGUR 11- laugardagur 8.maí
Morgunverður á hóteli og útritun
07:00 Förum með með rútu á flugvöllinn í Catania
10:15 Flug AZ1710 til Rómar
15:45 Flug FI931 til Keflavíkur
18:40 Lending í Keflavík
Dagskráin gæti breyst lítillega en verður það þá tilkynnt í upphafi ferðar
Verð á mann í tvíbýli kr. 724.300,-
Staðfesting kr. 70.000,- SKILMÁLAR FARARSNIÐS
Vinsamlega tilgreinið herbergisfélaga í athugasemdasvæði á greiðslusíðu
Verð miðast við gengi og flugverð í júlí 2026. Athugið að lágmarksþáttaka er 20 manns. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina er hún endurgreidd að fullu.
Innifalið
- Flug með Icelandair til/frá Róm og flug með ITA til Palermo og heim frá Catania
- Skattar og lendingargjöld
- Innrituð taska (23kg) og handfarangur
- Rútuakstur frá og til flugvallar á Sikiley
- Allur annar rútuakstur samkvæmt þessari dagskrá
- Gisting á fjögurra og fimm stjörnu hótelum í tíu nætur
- Morgunverður í tíu daga
- Tveir kvöldverðir með borðvíni, vatni og kaffi
- Tvisvar fordrykkur á hóteli
- Fimm hádegisverðir með borðvíni, vatni og kaffi
- Heimsókn í vínkjallara
- Matarmarkaðsrölt með staðarleiðsögumanni og smakki á vinsælustu götubitum Palermóbúa
- Allar skoðunarferðir sem nefndar eru í dagskrá
- Aðgöngumiðar í: Grísk/rómverksa leikhúsið í Taormina, Casale höllina í Piazza Armerina, Neapolis fornminjasvæðið, dómkirkjuna í Monreale og Palatina kapelluna í Normanna höllinni í Palermo
- Innlendir leiðsögumenn
- Íslensk fararstjórn allan tímann
EKKI INNIFALIÐ
- Þjórfé þar sem við á
- Gistináttagjald
Fararstjóri

Guðbjörg Magnúsdóttir
Guðbjörg Magnúsdóttir er Mosfellingur í húð og hár. Hún lauk námi í ítölsku og ferðamálafræði frá HÍ ásamt því að vera leiðsögumaður og ljósmyndari. Ítölsk menning, samfélag og matargerð skipa stóran sess í lífi hennar.
Guðbjörg þekkir afar vel til Ítalíu og menningar landsins enda hefur hún verið þar með annan fótinn frá 1994.
Einhverjar spurningar? Sendið tölvupóst á netfangið: bokanir@fararsnid.is
