Króatía er einstök nátturuperla við Adriahafið en henni tilheyra yfir þúsund eyjar og eru 48 þeirra í byggð. Við munum sigla á snekkju með rafmagnsreiðhjól í farteskinu á milli nokkurra þessarra eyja, gista um borð og hjóla á eyjunum. Dagleiðir eru mislangar og tveir dagar miðlungs erfiðir. Aðstoðarbíll fylgir hópnum og hægt er að fá far með honum ef þurfa þykir. Góður tími gefst til að njóta náttúrunnar og synda í tærum sjónum. Þessi ferð sameinar skemmtilega blöndu af hreyfingu, afslöppun og góðum mat- blanda sem svíkur engan.
Dubrovnik – Trogir
Hvað býðst þér í hjól og siglingu í Króatíu?
- Sigling frá Dubrovnik-Trogir á mjög góðri snekkju með 16 káetum
- Gist er í þægilegum 2ja manna káetum með salerni og sturtu
- Hálft fæði á snekkju
- Bíll fylgir hópnum með vatn og létta hressingu
- Rafmagnsreiðhjól
- Innlendur hjólaleiðsögumaður með áralanga reynslu
- Flug er ekki innifalið en Fararsnið getur veitt upplýsingar um heppilegar flugtengingar. Tækifæri til að tengja ferðina við aðra áfangastaði.
Fararstjórn: Ásta Björk Sveindóttir
Aðrar dagsetningar í boði
FERÐADAGSKRÁ
DAGUR 1 – laugardagur 5.JÚNÍ-sobra-pomena

12:oo-12:30 Innritun um borð í MS President við höfnina í Dubrovnik
13:00 Smáréttir um borð og farastjórafundur
Sigling frá Dubrovnic til Sobra
Við hjólum á eyjunni Mljet sem er þjóðgarður og skoðum þar náttúrufyrirbæri s.s saltvötn með einstöku sjávarvistkerfi. Benediktínusar-klaustur frá 12.öld stendur á eyju í þjóðgarðinum. Munkar höfðu þar aðsetur í uþb. 600 ár en yfirgáfu eyjuna árið 1808.
Hjólaleið: Hjólað á fyrsta degi frá Sobra til Pomena
Hjólaleiðin á fyrsta degi er þægileg , um 30km.
Kvöldverður um borð
Gist við bæinn Pomena
DAGUR 2 – sunnudagur 6.JÚNÍ-Trstenik

06:30 Siglt til Trstenik
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Lagt af stað í hjólaferð dagsins
13:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni
Hjólaleið: Hjólum frá Trstenik til Kuciste, 30 km
Staðurinn er vinnsæll til seglbrettaiðkunar því vindurinn er brettafólki einstaklega hagstæður og hægt að fara tvisvar sinnum út yfir daginn. Fjöldi seglbretta og litadýrð þeirra setja skemmtilegan svip á svæðið.
Siglt til Korčula og gist þar
Kvöldverður á eigin vegum
DAGUR 3 – mánudagur 7.JÚNÍ – Korčula

07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst
13:30 Hádegisverður um borð
Eyjan Korčula skartar einstakri náttúrufegurð og gróðursæld. Gamli bærinn sem allur er innan múra og leiðir okkur um steinlögð stræti og úthugsað borgarskipulag. Hann er oft kallaður litla Dubronvik vegna fegurðar, menningar og mikillar sögu. Eyjarskeggjar halda því fram að landkönnuðurinn Marco Polo hafi fæðst í bænum þó ekki séu allir á einu máli um það.
Hjólaleið: Korčula – Vela Luka 59km
Siglum til VIS
Kvöldverður um borð
DAGUR 4 – þriðjudagur 8.JÚNÍ – VIS

07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst
13:00 Hádegisverður um borð
Vis er eyjan sem lengi vel var lokuð vegna hernaðaráforma Titos. Eyjan er sú ósnortnasta af króatísku eyjunum enda opnaðist hún ekki fyrr en 1989. Við hjólum til Komiža sem er lítið og ákaflega myndrænt sjávarþorp, eitt það elsta og mikilvægasta við Adriahafið. Sérkennilegir trébátar eru nánast táknmynd þorpsins en þeir voru gerðir til að þola langar siglingar fyrir opnu hafi.
Í Komiža voru nokkrar senur kvikmyndarinnar Mamma Mia 2 teknar og sjáum við einhverja af tökustöðunum.
Hjólaleið: Vis – Komiza- Vis 33 km
Siglt verður til Hvar
Gist verður við Hvar
Kvöldverður á eigin vegum
DAGUR 5 – miðvikudagur 9.JÚNÍ -Hvar

07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst og leið okkar liggur um hæðir Hvar. Við stoppum í Stari Grad sem er einn af elstu bæjum Evrópu. Grikkir fundu þennan fallega stað 384 f.kr. enda er bærinn einn af þeim bæjum þar sem Dalmatíu-stemningin blómstar enn.
13:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni
Hjólaleið: Jelsa – Hvar 33 km. Erfðleikastig 4/5, hjólað á malbiki og malarstíg.
Gist verður við bæinn Hvar
Hvar er vinsæll áfangastaður fræga fólksins og lúxussnekkjur liggja þar við bryggju. Það er aldrei að vita hvern við rekumst á þegar við röltum um bæinn.
Hjólaleið: Hvar – Jelsa 33 km
Kvöldverður á eigin vegum
DAGUR 6 – fimmtudagur 10.JÚNÍ-Brač

07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Lagt af stað í hjólaferð
13:00 Hádegisverður á eyjunni, heimsækjum bændur og fáum máltíð beint frá býli, ekki innifalinn, 40 eur.
Gist verður við bæinn Milna sem er fallegur strandbær á vesturströnd eyjarinnar Brač.
Hjólaleið: Bol – Milna 53 km
Skipstjórakvöldverður um borð, hvíta kvöldið
DAGUR 7 – föstudagur 11.JÚNÍ-Brač

07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Lagt af stað í hjólaferð
13:00 Hádegisverður um borð
Við hjólum frá Milna til bæjarins Supertar sem hýsir stjórnsýslu eyjunnar Brač þar sem um 14.000 manns búa en hún er sú þriðja stærsta í eyjaklasanum.
Hjólaleið: Milna – Supertar 20km
Siglt til Trogir
Kvöldverður á eigin vegum í Trogir
DAGUR 8 – laugardagur 12.JÚNÍ-Trogir

07:30 Morgunverður hefst um borð og við yfirgefum skipið eigi síðar en kl 09:00
PS. Einhverjar tímasetningar gætu hnikast til og þá tilkynnum við það í upphafi ferðar.
Verð á mann í tvíbýli kr. 424.000,-
Staðfesting kr. 120.000,- SKILMÁLAR FARARSNIÐS
Vinsamlega tilgreinið herbergisfélaga í athugasemdasvæði á greiðslusíðu
Greiðsla 2 – greiðist eigi síðar en 25 janúar 2027, kr. 152.000 á mann
Lokagreiðsla – greiðist eigi síðar en 26. apríl 2027, kr. 152.000 á mann
Verð miðast við gengi í ágúst 2026. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina vegna ónægrar þáttöku er hún endurgreidd að fullu.
Viltu vita meira? Sendu okkur skilaboð á bokanir@fararsnid.is
Fararstjórn

Ásta Björk Sveinsdóttir
Reykvíkingurinn Ásta Björk hefur víðtæka reynslu af skipulagningu ferða og fararstjórn. Hún hefur skipulagt ýmsar ævintýraferðir fyrir hópa og má sem dæmi nefna afar velheppnaða blöndu af sælkerasiglingu og rafmagnsreiðhjólaferð í Króatíu.
Auk þess hefur hún verið fararstjóri í skíðaferðum til Ítalíu og Austurríkis, árshátíðarferðum víða um Evrópu, fótboltaferðum og mótsferðum fyrir unglingalandslið HSÍ.
Innifalið
- Sigling í 8 daga gisting í 7 nætur
- 7 x morgunverðarhlaðborð
- 6 x 3 rétta hádegisverður um borð
- 1 x Kvöldverður um borð 3ja rétta
- 1 x “Captains Dinner” um borð eitt kvöld, hvíta kvöldið
- Leiga á góðum rafmagnshjólum í viku
- Reyndir leiðsögumenn í öllum hjólaferðum
- Bíll fylgir hópnum
- Kaffi, te, vatn og kruðerí alla daga um borð
- Frítt Internet
EKKI INNIFALIÐ
- Flug til og frá Króatíu
- 1 x Hádegisverður, beint frá býli, 40 evrur
- Ferðamanna- og hafnarskattar, 50 evrur á mann
- Gisting fyrir/eftir siglingu
- Drykkir um borð, (ekki er heimilt að neyta eigin drykkja í matsal og á útidekki)
- Þjórfé um borð í lok ferðar fyrir áhöfn og hjólaleiðsögumen
ANNAÐ
- Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og / eða heimilistryggingum
- Fararsnið áskilur sér rétt til að fella niður ferðina ef þáttaka er ekki næg eða vegna ytri aðstæðna
- Hafið ávallt með ykkur evrópska sjúkratryggingakortið
- Allar frekari upplýsingar veitir Ásta Björk s: 611 8811
