Króatía er einstök nátturuperla við Adriahafið en henni tilheyra yfir þúsund eyjar og eru 48 þeirra í byggð. Við munum sigla á snekkju með rafmagnsreiðhjól í farteskinu á milli nokkurra þessarra eyja, gista um borð og hjóla á eyjunum. Dagleiðir eru mislangar og tveir dagar miðlungs erfiðir. Aðstoðarbíll fylgir hópnum og hægt er að fá far með honum ef þurfa þykir. Góður tími gefst til að njóta náttúrunnar og synda í tærum sjónum. Þessi ferð sameinar skemmtilega blöndu af hreyfingu, afslöppun og góðum mat- blanda sem svíkur engan.
Trogir -Trogir
Hvað býðst þér í hjól og siglingu í Króatíu?
- Sigling frá Trogir á góðri snekkju með 16 káetum
- Gist er í þægilegum 2ja manna káetum með salerni og sturtu
- Hálft fæði á snekkju
- Rafmagnsreiðhjól og aðstoðarbíll sem fylgir hópnum
Innlendur hjólaleiðsögumaður með áralanga reynslu - Flug er ekki innifalið en Fararsnið getur veitt upplýsingar um heppilegar flugtengingar. Tækifæri til að tengja ferðina við aðra áfangastaði.
Fararstjórn: Ásta Björk Sveindóttir
Aðrar dagsetningar í boði
FERÐADAGSKRÁ
DAGUR 1 – laugardagur 21.ágúst-Brač

12:00-12:30 Innritun um borð í MS Arca við höfnina í Trogir þar sem dregið verður um káetur.
13:00 Fararstjórafundur og léttir réttir. Sigling frá Trogir til eyjunnar Brač.
Hjólaleið: Supertar – Milna – 21 km. Erfiðleikastig 2/5.
Hjólaleiðin á fyrsta degi er stutt, eða um 21 km, enda eru allir að kynnast hjólunum sínum sem hver og einn hefur til umráða alla ferðina. Hjólað verður á malbiki og malarstígum. Stoppum til að fá okkur hressingu og hægt að skella sér til sunds.
Kvöldverður um borð í bátnum
Gist verður við eyjuna Brač í bænum Milna
DAGUR 2 – sunnudagur 22. ágúst-Brač

07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Lagt af stað í hjólaferð um eyjuna og hjólað verður frá Milna til Bol, stoppum til að fá okkur hressingu og sundsprett.
13:00 Hádegisverður á eyjunni, heimsækjum bændur og fáum máltíð beint frá býli, ekki innifalinn, 40 eur.
Komum við á fallegri strönd á leiðinni í bátinn, Gullna ströndin eða Zlatni Rat sem er ein þekktasta strönd Króatíu. Ströndin breytir um lögun eftir vindátt og sjávarföllum.
Hjólaleið: Milna – Bol, 53 km. Erfiðleikastig 5/5, hjólað á malbiki og malarstíg.
Gist verður við eyjuna Brač í bænum Bol
Kvöldverður um borð
DAGUR 3 – mánudagur 23.Ágúst – HVAR

06:30 Siglt til eyjunnar Hvar
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst og hjólað um hæðir Hvar og stoppað í Stari Grad sem er einn af elstu bæjum Evrópu. Það voru Grikkir sem fundu þennan fallega stað 384 f.kr. enda er bærinn einn af þeim bæjum þar sem Dalmatíu-stemningin blómstar enn.
13:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni
Hjólaleið: Jelsa – Hvar 33 km. Erfðleikastig 4/5, hjólað á malbiki og malarstíg.
Gist verður við eyjuna Hvar í bænum Hvar.
Hvar er vinsæll áfangastaður fræga fólksins og lúxussnekkjur liggja þar við bryggju. Það er aldrei að vita hvern við rekumst á þegar við röltum um bæinn.
Kvöldverður á eigin vegum
DAGUR 4 – þriðjudagur 24.Ágúst-vis

06:30 Siglt til eyjunnar Vis
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst
12:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni
Vis er eyjan sem lengi vel var lokuð vegna hernaðaráforma Titos. Eyjan er sú ósnortnasta af króatísku eyjunum enda opnaðist hún ekki fyrr en 1989. Við hjólum til Komiža sem er lítið og ákaflega myndrænt sjávarþorp, eitt það elsta og mikilvægasta við Adriahafið. Sérkennilegir trébátar eru nánast táknmynd þorpsins en þeir voru gerðir til að þola langar siglingar fyrir opnu hafi.
Í Komiža voru nokkrar senur kvikmyndarinnar Mamma Mia 2 teknar og sjáum við einhverja af tökustöðunum.
Hjólaleið: Vis – Komiza- Vis 32 km
Gist verður við eyjuna VIS
Kvöldverður á eigin vegum
DAGUR 5 – miðvikudagur 25.ágúst -Korčula

6:30 Siglt til eyjunnar Korčula
7:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst
13:00 Hádegisverður í sveitinni, ekki innifalinn, 40 eur.
Eyjan Korčula skartar einstakri náttúrufegurð og gróðursæld. Gamli bærinn sem allur er innan múra og leiðir okkur um steinlögð stræti og úthugsað borgarskipulag. Hann er oft kallaður litla Dubronvik vegna fegurðar, menningar og mikillar sögu. Eyjarskeggjar halda því fram að landkönnuðurinn Marco Polo hafi fæðst í bænum þó ekki séu allir á einu máli um það.
Hjólaleið: Vela Luka – Korčula 59 km. Erfðleikastig 5/5, hjólað á malbiki og malarstíg
Gist verður við bæinn Korčula
Kvöldverður á eigin vegum
DAGUR 6 – fimmtudagur 26.ágúst-Pelješac

6:30 Siglt til Kučište
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Lagt af stað í hjólaferð dagsins
13:00 Hádegisverður í snekkjunni
Staðurinn er vinnsæll til seglbrettaiðkunar því vindurinn er brettafólki einstaklega hagstæður og hægt að fara tvisvar sinnum út yfir daginn. Fjöldi seglbretta og litadýrð þeirra setja skemmtilegan svip á svæðið.
Hjólaleið: Kučište – Loviste 27 km. Erfðleikastig 3/5, hjólað á malbiki.
Gist verður við Makarska
Skipstjórakvöldverður- þetta kvöld klæðumst við hvítu
DAGUR 7 – föstudagur 27.ágúst-Omiš

6:30 Siglt til eyjunnar Omiš
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Lagt af stað í hjólaferð
09:00 Boðið verður upp á fyrir þá sem það vilja að fara í flúðasiglingu, ekki innifalið.
Það verður hægt að velja um að fara í hjólaferð eða flúðasiglingu.
13:00 Hádegisverður um borð
Hjólaleið: Omiš – Podgrađe – Omiš – 25 km. Erfðleikastig 3/5, hjólað á malbiki.
Siglt til Trogir
Kvöldverður á eigin vegum í Trogir
DAGUR 8 – laugardagur 28.ágúst-Trogir

07:30 Morgunverður hefst um borð og við yfirgefum skipið eigi
síðar en kl 09:00
Verð á mann í tvíbýli kr. 424.000,-
Staðfesting kr. 120.000,- SKILMÁLAR FARARSNIÐS
Vinsamlega tilgreinið herbergisfélaga í athugasemdasvæði á greiðslusíðu
Staðfesting kr. 120.000,- SKILMÁLAR FARARSNIÐS
Vinsamlega tilgreinið herbergisfélaga í athugasemdasvæði á greiðslusíðu
Verð miðast við gengi í ágúst 2026. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina vegna ónægrar þáttöku er hún endurgreidd að fullu.
Greiðsla 2 – eindagi er 24. mars 2027, kr. 152.000
Lokagreiðsla – eindagi er 10. júní 2027, kr. 152.000
Fararstjórn

Ásta Björk Sveinsdóttir
Reykvíkingurinn Ásta Björk hefur víðtæka reynslu af skipulagningu ferða og fararstjórn. Hún hefur skipulagt ýmsar ævintýraferðir fyrir hópa og má sem dæmi nefna afar velheppnaða blöndu af sælkerasiglingu og rafmagnsreiðhjólaferð í Króatíu.
Auk þess hefur hún verið fararstjóri í skíðaferðum til Ítalíu og Austurríkis, árshátíðarferðum víða um Evrópu, fótboltaferðum og mótsferðum fyrir unglingalandslið HSÍ.
Innifalið
- Sigling í 8 daga gisting í 7 nætur
- 7 x morgunverðarhlaðborð
- 5 x 3 rétta hádegisverður um borð
- 2 x Kvöldverður um borð 3ja rétta
- 1 x “Captains Dinner” um borð eitt kvöld, hvíta kvöldið
- Leiga á rafmagnshjólum í viku ásamt hjólatösku
- Reyndir leiðsögumenn í öllum hjólaferðum
Aðstoðarbíll fylgir hópnum - Kaffi, te, vatn, ávextir og hnetur alla daga um borð
- Frítt Internet
EKKI INNIFALIÐ
- Flug til og frá Króatíu
- Gisting fyrir/eftir siglingu
- Drykkir um borð, (ekki er heimilt að neyta eigin drykkja í matsal og á útidekki)
- 2 x Hádegisverður, beint frá býli, (2 x 40 eur)
- Ferðamanna- og hafnarskattar (55 eur á mann)
- Þjórfé um borð í lok ferðar fyrir áhöfn og hjólaleiðsögumenn
ANNAÐ
- Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og / eða heimilistryggingum
- Fararsnið áskilur sér rétt til að fella niður ferðina ef þáttaka er ekki næg eða vegna ytri aðstæðna
- Kannið evrópska sjúkratryggingakortið ykkar
- Allar frekari upplýsingar veitir Ásta Björk s: 611 8811
