…svífur minn hugur, þegar kólna fer um heimalönd“ segir í laginu og því fer ekki fjarri að hugurinn reiki á hlýrri slóðir á köldum vetrardögum.
Króatía er einstök nátturuperla við Adriahafið en henni tilheyra yfir þúsund eyjar og eru 48 þeirra í byggð. Í vinsælu Hjólaferðunum okkar siglum við á snekkju með rafmagnsreiðhjól í farteskinu milli nokkurra þessarra eyja, gistum um borð og hjólum á eyjunum.
Gistingin fylgir okkur

Það má segja að þetta sé hinn fullkomni ferðamáti þegar króatísku eyjarnar eru sóttar heim. Það er einstök upplifun að ferðast með þessum hætti því „hótelið“ fylgir okkur alla leið og því gefst meiri tími til að njóta dvalarinnar á eyjunum.
Allar káetur eru með sér baðherbergi, loftkælingu og öryggishólfi. Góð aðstaða er á dekki til að slaka á, njóta umhverfisins og eiga skemmtilegar stundir með ferðafélögunum.
Hjóladagar – eyjahopp

Siglingaleiðin er áþekk í öllum ferðum, í sumum er þó siglt til og frá Trogir en í öðrum milli Trogir og Dubrovnik eða öfugt.
Af þeim eyjum sem við heimsækjum er helst að nefna eyjuna Vis ( sem er einn af tökustöðum Abba myndarinnar Mamma Mía), Hvar, Brač og Korčula.
Við byrjum alla hjóladaga klukkan 9 eftir góðan morgunverð um borð og njótum þess að hjóla mis-langar dagleiðir í fallegu og fjölbreyttu umhverfi. Ferðirnar eru allt frá 20 – 55 km þar sem við hjólum á nýjum rafmagnshjólum og geta allir sem kunna að hjóla komið með. Í þessum ferðum er orðatiltækið „að njóta en ekki þjóta“ í hávegum haft. Við gefum okkur góðan tíma í hjólaferðunum til að njóta náttúrunnar, taka myndir eða stinga okkur í sjóinn.
Ef einhverjir kjósa að slaka á einn og einn dag er hægt að verða eftir um borð og sigla á snekkjunni eða skoða sig um á eyjunum eftir atvikum. Einnig fylgir trússbíll hópnum á flestum dagleiðum og hægt að fá far sé vilji til þess.
Matur um borð

Morgunverðarhlaðborð með öllu því helsta, opnar í matsalnum klukkan 7:30 alla daga en árrisulum býðst kaffi/te frá klukkan 7. Hálft fæði er innifalið um borð, 3ja rétta hádegis- eða kvöldverður eftir því sem fellur betur að ferðadagskrá. Að auki býður skipstjórinn til hátíðarkvöldverðar þar sem siður er að klæðast hvítum fatnaði.
Kvöldlíf á eyjunum

Eyjarnar sem við heimsækjum hafa hver sinn sjarma með fjölbreytt framboð veitingahúsa og skemmtilegu kvöldlífi. Dásamlegt er að rölta um, kíkja í búðir, njóta mannlífs og matarmenningar í þessu einstaka umhverfi.
Tími til að bóka
Sala hefur gengið vel og káetum farið að fækka.
Nánari ferðadagskrá er að finna hér:
Hjól og sigling í Króatíu 9.- 16.maí
Hjól og sigling í Króatíu 20.- 27. júní – 3 káetur lausar
Hjól og sigling í Króatíu 8. – 15. ágúst
Hjól og sigling í Króatíu 15. – 22. ágúst– Norðureyjar
Ef einhverjar spurningar vakna eða vinahópurinn/saumaklúbburinn er að velta fyrir sér að bóka ferð saman er hægt að hafa sambandi á bokanir@fararsnid.is eða í síma 611 8811.
Ferðakveðja,
Ásta og Guðbjörg



