Hjólaferð og sigling í Króatíu 6.-13. september 2025 UPPSELT

Króatía er einstök nátturuperla við Adriahafið en henni tilheyra yfir þúsund eyjar og eru 48 þeirra í byggð. Við munum sigla á snekkju með rafmagnsreiðhjól í farteskinu milli nokkurra þessarra eyja, gista um borð og hjóla á eyjunum. Dagleiðir eru mislangar og tveir dagar miðlungs erfiðir. Góður tími gefst til að njóta náttúrunnar og synda í tærum sjónum. Þessi ferð sameinar skemmtilega blöndu af hreyfingu, afslöppun og góðum mat- blanda sem svíkur engan.
Split – Dubrovnik

Hvað býðst þér í siglingu og hjólaferð í Króatíu?

  • Sigling frá Split á góðri snekkju með 20 káetum
  • Gist er í þægilegum 2ja manna káetum með salerni og sturtu
  • Hálft fæði á snekkju
  • Rafmagnsreiðhjól
  • Flug er ekki innifalið en Fararsnið getur veitt upplýsingar um heppilegar flugtengingar. Tækifæri til að tengja ferðina við aðra áfangastaði.

Fararstjórn: Ásta Björk Sveindóttir

UPPSELT

FERÐADAGSKRÁ

DAGUR 1 – Laugardagur 6.september–Šolta

12:00-12:30 Innritun um borð í MS President við höfnina í Split
13:00 Hádegisverður um borð og fararstjórafundur
Sigling frá Split til  eyjunnar Šolta
Hjólaleið: Rogač – Maslinica – Rogač 20km. Erfiðleikastig 1/5, hjólað á malbiki.
Við munum stoppa í litlum bæ, Maslinica og hoppa í sjóinn og fá okkur hressingu
Hjólaleiðin á fyrsta degi er stutt, um 20km, enda eru allir að kynnast hjólunum sínum sem hver og einn hefur til umráða alla ferðina
Gist verður við Rogač
Kvöldverður á eigin vegum

DAGUR 2 – sunnudagur 7.september-Brač

06:30 Siglt til eyjunnar Brač 
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst
13:00 Hádegisverður beint af býli þar sem borinn verður fram grillmatur ásamt vatni og víni að hætti heimamanna.
Við munum stoppa á leiðinni í snekkjuna og fá okkur sundsprett og hressingu
Hjólaleið: Milna – Bol, 52 km. Erfiðleikastig 5/5, hjólað á malbiki og malarstíg.
Gist verður við bæinn Bol
Kvöldverður um borð í snekkjunni

DAGUR 3 – Mánudagur 8. september -Hvar

06:30 Siglt til eyjunnar Hvar
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst
13:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni 
Hjólaleið: Jelsa – Hvar 32 km. Erfðleikastig 4/5, hjólað á malbiki og malarstíg.
Við munum stoppa á leiðinni, skoða okkur um og fá okkur hressingu
Einnig munum við stoppa og henda okkur í sjóinn þegar við förum frá höfninni og siglum að næturstað okkar
Gist verður við eyjuna Hvar
Kvöldverður á eigin vegum á eyjunni Hvar

DAGUR 4 – Þriðjudagur 9.september – Vis

06:30 Siglt til eyjunnar Vis
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst
13:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni 
Hjólaleið: Vis–Komiza-Vis 33km, Erfiðleikastig 4/5, hjólað á malbiki.
Kvöldverður á eigin vegum á eyjunni VIS
Gist verður við Vela Luka

DAGUR 5 – miðvikudagur 10.september – Korčula

06:30 Siglt til eyjunnar Korčula
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst
13:00 Hádegisverður hjá bændum í sveitinni og snæðum við afurðir frá þeim
Hjólaleið: Vela Luka – Korčula 59 km. Erfðleikastig 5/5, hjólað á malbiki og malarstíg
Gist verður við eyjuna Korčula
Kvöldverður um borð í snekkjunni

DAGUR 6 – fimmtudagur 11.September-Miljet

06:30 Siglt til Mijet
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Lagt af stað í hjólaferð um þjóðgarðinn Miljet. Miljet er einstaklega gróskumikið svæði með tveimur saltvatnslónum og stórbrotnu útsýni. Við munum svo stinga okkur til sunds í þjóðgarðinum.
13:00 Hádegisverður um borð
Hjólaleið: Í þjóðgarðinum 23 km. Erfiðleikastig 1/5, hjólað á malbiki og malarstíg.
Gist við Miljet
Kvöldverður – Capteins dinner – þetta kvöld klæðumst við hvítu

DAGUR 7 – Föstudagur 12.september-Šipan

06:30 Siglt til Šipan
07:30 Morgunverður hefst um borð 
09:00 Lagt af stað í hjólaferð.
13:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni
Hjólaleið: hjólað um Šipan 12 km. Erfiðleikastig 1/5 hjólað á malbiki.
Gist verður í Dubrovnik
Kvöldverður á eigin vegum í Dubrovnik

DAGUR 8 – laugardagur 13.september-Dubrovnik

07:30 Morgunverður hefst um borð og við yfirgefum skipið eigi síðar en kl.09:00 

Þökkum fyrir góða viku

PS. Einhverjar tímasetningar gætu hnikast til og þá tilkynnum við það í upphafi ferðar.

UPPSELT

Verð á mann í tvíbýli kr. 371.400,-

Staðfesting kr. 120.000,- SKILMÁLAR FARARSNIÐS
Vinsamlega tilgreinið herbergisfélaga í athugasemdasvæði á greiðslusíðu

Greiðsla 2 – eindagi er 20 vikum fyrir brottför, kr. 125.700
Lokagreiðsla – eindagi er 10 vikum fyrir brottför, kr. 125.700

Verð miðast við gengi í október 2024. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina er hún endurgreidd að fullu.

Fararstjórn

Ásta Björk Sveinsdóttir

Reykvíkingurinn Ásta Björk hefur víðtæka reynslu af skipulagningu ferða og fararstjórn. Hún hefur skipulagt ýmsar ævintýraferðir fyrir hópa og má sem dæmi nefna afar velheppnaða blöndu af sælkerasiglingu og rafmagnsreiðhjólaferð í Króatíu.

Auk þess hefur hún verið fararstjóri í skíðaferðum til Ítalíu og Austurríkis, árshátíðarferðum víða um Evrópu, fótboltaferðum og mótsferðum fyrir unglingalandslið HSÍ.

Innifalið

  • Sigling í 8 daga gisting í 7 nætur
  • 7 x morgunverðarhlaðborð
  • 5 x 3 rétta hádegisverður um borð
  • 2 x Kvöldverður um borð 3ja rétta
  • 1 x “Captains Dinner” um borð eitt kvöld, hvíta  kvöldið
  • Leiga á rafmagnshjólum í viku
  • Reyndir leiðsögumenn í öllum hjólaferðum
  • Kaffi, te, vatn, ávextir og hnetur alla daga um borð
  • Frítt Internet

EKKI INNIFALIÐ

  • Flug til og frá Króatíu 
  • Gisting fyrir/eftir siglingu
  • Drykkir um borð, (ekki er heimilt að neyta eigin drykkja í matsal og á útidekki)
  • 2 x Hádegisverður, beint frá býli, (2 x 30 eur)
  • Ferðamanna- og hafnarskattar (60 eur á mann)
  • Þjórfé fyrir léttadrengi að taka hjól í og úr snekkjunni (20 eur á mann)
  • Þjórfé um borð í lok ferðar fyrir áhöfn og hjólaleiðsögumenn

ANNAÐ

  • Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og / eða heimilistryggingum
  • Fararsnið áskilur sér rétt til að fella niður ferðina ef þáttaka er ekki næg eða vegna ytri aðstæðna
  • Kannið evrópska sjúkratryggingakortið ykkar
  • Allar frekari upplýsingar veitir Ásta Björk s: 611 8811