Dásemdir Toskana héraðs verða dregnar fram í þessari ljúfu ferð þar sem við blöndum saman góðri hreyfingu, matar- og menningarupplifun í litlum hóp.
HVAÐ BÝÐST ÞÉR Í HJÓLAFERÐ Í TOSKANA?
- Skemmtilegar hjólaferðir á rafmagnsreiðhjólum þar sem þú upplifir sveitasælu, vínekrur, miðaldabæi, matarmenningu og notalegheit
- Gist á sama gæðahótelinu allan tímann, í Montecatini Terme
- Ávallt hjólað út frá hóteli
- Sælkeramáltíðir og sveitamatur í bland á völdum veitingastöðum
- Einstakur áfangastaður: Þú heimsækir fegurstu sveitir Toskana héraðs, fjarri fjölmennum ferðamannastöðum
- Notalegar samverustundir með ferðafélögunum
- Lausar stundir til að ráðstafa að vild
- Fyrir hverja er reiðhjólaferð í Toskana? Alla þá sem hafa gaman af því að hjóla, njóta umhverfisins og upplifa ítalska menningu. Kjörorð ferðarinnar er að njóta en ekki þjóta.
FERÐADAGSKRÁ TOSKANA
sunnudagur 30.Ágúst-ferðadagur

Flogið til Rómar í beinu flugi FI 562 28 MAI KEFFCO 08:15-15:00
Ekið rakleiðis norður til Toskana, þar sem gist er á Grand Hotel Vittoria 4* hóteli í sjö nætur með morgunverði. Á leiðinni munum við stoppa til að rétta úr okkur og næra.
21:00 Innritun á Grand Hotel Vittoria í Montecatini Terme
mánudagur 31. Ágúst

Morgunverður á hóteli
09:00 Hittum innlenda hjólaleiðsögumenn á hótelinu þar sem við fáum rafmagnsreiðhjól afhent. Þegar við höfum stillt hjólin leggjum við af stað í hjólaferð dagsins en í dag verður stefnan tekin á Valdinievole dalinn. Dalurinn er þekkt ólífuræktarsvæði með fjölda lítilla þorpa sem eru umkringd ræktarlegum hlíðum.
13:00 Í hádeginu munum við heimsækja eitt af þekktustu ólífusamlögum héraðsins þar sem við fræðumst um framleiðsluferlið. Fjölskyldan sem stendur vaktina í samlaginu býður okkur til hádegisverðar þar sem framreiddur verður dæmigerður sveitamatur að hætti Toskana-búa, innifalið.
Vegalengd: 30-40 km.
Hækkun: 600/750 m.
19:00 Göngum saman að toglest sem flytur okkur upp í þorpið Montecatini Alto
19:30 Kvöldverður á völdum veitingastað á aðaltorgi þorpsins m/vatni og borðvíni, innifalið. Að kvöldverði loknum förum við með toglestinni aftur til Montecatini Terme.
þriðjudagur 01.september

Morgunverður á hóteli
9:00 Hjólin bíða klár fyrir utan hótelið. Í dag verður ferðinni heitið á æskuslóðir Leonardo da Vinci í gegnum landsvæði sem veitti meistara Vinci einstakan innblástur. Á leiðinni til bæjarins Vinci hjólum við milli Montalbano hæðanna og vínekra.
11:30 Okkur gefst færi á að skoða safn með helstu vísindaafrekum Leonardo da Vinci. Að því loknu stoppum við hjá ungum vínbændum þar sem við fáum léttan hádegisverð og smökkum á framleiðslunni, innifalið.
Hjólum til baka á hótel.
Vegalengd: 55-64 km.
Hækkun: 550/640 m.
Hjólaleið að mestu á malbiki og stuttir kaflar á malarvegum.
Kvöldið frjálst í Montecatini Terme
miðvikudagur 02.september

Morgunverður á hóteli
9:00 Í dag verður ferðinni heitið til miðaldaþorpsins Montecarlo sem er þekkt vínræktarsvæði. Svæðið sem við hjólum í gegnum er sögusvið Gosa, við munum stoppa hjá aldargömlu og fallegu eikartré sem kemur við sögu í ævintýrinu sívinsæla.
Léttur hádegisverður að hætti heimamanna, innifalinn.
Vegalengd: 45-54 km.
Hækkun: 220/300 m.
Hjólaleið að mestu á malbiki.
Kvöldið frjálst í Montecatini Terme
fimmtudagur 03.september

Morgunverður á hóteli
Dagurinn frjáls
Þeir sem vilja slaka á geta skellt sér í sund eða lesið bók á sundlaugarbakkanum við hótelið, rölt um, kíkt í búðir og komið við á elsta kaffihúsinu í bænum með heimamönnum. Einnig er hægt að ganga að litlum en fallegum dropasteinshelli sem liggur rétt ofan við bæinn. Fyrir þá sem vilja er auðvelt að taka lest til Flórens, Lucca eða kíkja á ströndina í Viareggio.
föstudagur 04.september

Morgunverður á hóteli
9:00 Í dag munum við heimsækja náttúrverndarsvæðið „Padule di Fucecchio” sem er 1.800 hektara votlendissvæði, eitt það stærsta á Ítalíu. Svæðið sem nú hefur verið friðað var vinsælt veiðisvæði allt frá miðöldum og skartar í dag einstöku fugla- og plöntulífi.
Á leiðinni munum við stoppa á bar þar sem við fáum léttan hádegisverð og Brigidini í desert en það eru gómsætar anískökur sem aðeins eru framleiddar á þessu svæði,innifalið.
Vegalengd: 39-45 km.
Hækkun: 200/250 m.
Hjólaleið að mestu á malbiki en stuttir kaflar á möl.
19:30 Við röltum saman í kvöldverðarhlaðborð sem verður framreitt í Tettuccio Spa sem er einstök bygging á heimsminjaskrá UNESCO, í kjölfarið býðst okkur að njóta klassískra tónleika, innifalið.
laugardagur 05.september

Morgunverður á hóteli
9:00 Í dag hjólum við eftir þekktri göngu/hjólaleið sem kallast á ítölsku „Via della Fiaba” eða ævintýrastígurinn sem liggur að Collodi, fæðingarstað Gosa. Við hjólum í gegnum ólífu- og vínræktarsvæði, miðaldaþorpið Pescia og forna steinstíga. Í Collodi skoðum við ævintýralegan hallargarð Villa Garzoni sem er í glæsilegum barokk stíl þar sem ekkert hefur verið til sparað. Ef tími gefst til lítum við inn í skemmtilegt fiðrildasafn sem staðsett er í garðinu.
13:00 Hádegisverður að hætti Toskanabúa á sveitabýli, innifalinn.
Vegalengd: 45-50 km.
Hækkun: 200/350 m.
Hjólaleið að mestu á malbiki en stuttir kaflar á möl. Auðvelt.
19:30 Göngum saman á skemmtilegan veitingastað í nágrenni hótelsins þar sem okkar bíður ekta íslensk pítsuveisla með öllu tilheyrandi, innifalið.
sunnuudagur 06.september
Morgunverður á hóteli, brottskráning og uppgjör reikninga
08:00 haldið af stað á Rómarflugvöll
Stoppað á leiðinni fyrir hressingu og WC
13:30 innskráning í heimflug: FI 563 6. SEPT FCOKEF 15:45-18:35
Verð á mann í tvíbýli kr. 399.100,-
Staðfesting kr. 70.000,- SKILMÁLAR FARARSNIÐS
Vinsamlega tilgreinið herbergisfélaga í athugasemdasvæði á greiðslusíðu
Verð fyrir einbýli kr. 425.700,-
Verð miðast við gengi og flugverð í ágúst 2025. Athugið að lágmarksþáttaka er 20 manns. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina er hún endurgreidd að fullu.
INNIFALIÐ:
- Flug með Icelandair til og frá Róm
- Skattar og lendingagjöld
- Töskur og handfarangur
- Rútuakstur frá og til flugvallar
- Gisting á 4 * hóteli í sjö nætur
- Morgunverður í sjö daga
- Heimsókn í vínkjallara
- Heimsókn í ólífusamlag
- Miðar í toglest
- Fimm alþýðlegir hádegisverðir með vatni og víni
- Þrír kvöldverðir á völdum veitingastöðum, með vatni, borðvíni
- Allar hjólaferðir sem nefndar eru í dagskrá
- Rafmagnsreiðhjól
- Íslensk fararstjórn
- Innlendir leiðsögumenn
EKKI INNIFALIÐ
- Gistináttagjald
- Þjórfé utan skipulagðrar dagskrár

Ásta Björk Sveinsdóttir
Reykvíkingurinn Ásta Björk hefur víðtæka reynslu af skipulagningu ferða og fararstjórn. Hún hefur skipulagt ýmsar ævintýraferðir fyrir hópa og má sem dæmi nefna afar velheppnaða blöndu af sælkerasiglingu og rafmagnsreiðhjólaferð í Króatíu.
Auk þess hefur hún verið fararstjóri í skíðaferðum til Ítalíu og Austurríkis, árshátíðarferðum víða um Evrópu, fótboltaferðum og mótsferðum fyrir unglingalandslið HSÍ.
