Vínuppskeruferð til Ítalíu 22.-29. sept. 2026 – UPPSELT

Við þræðum nokkur af vinsælustu vínsvæðum Ítalíu, sveitir og glæsilegar borgir í þessarri skemmtilegu vínuppskeruferð. Léttar göngur, sælkeramáltíðir og skemmtilegur félagsskapur í litlum hóp- blanda sem svíkur engan.

Hvað býðst þér í Vínuppskeruferðinni til Soave-Valpolicella-franciacorta-barolo?

  • Þægilegar gönguferðir þar sem þú upplifir hið daglega líf í sveit og borg
  • Ef einhver er ekki upplagður í göngu má alltaf finna aðra valkosti
  • Gist á fallegum herragarði á mörkum Valpolicella og Soave í fjórar nætur
  • Gist á frábæru hóteli í hjarta Torino í þrjár nætur
  • Sælkeramáltíðir á völdum veitingastöðum, borðvín og vatn innifalið
  • Einstök upplifun: Heimsókn í þrjá vínkjallara, hvern með sínu sérkenni ásamt heimsókn í osta- og ólífuolíugerð
  • Notalegar samverustundir með ferðafélögunum og tækifæri til að eignast nýja
  • Lausar stundir til að ráðstafa að vild
  • Lítill hópur – hámark 25 manns
  • Allt sem nefnt er í dagskrá er innifalið í verði, nema annars sé getið

Fararstjórn: Guðbjörg Magnúsdóttir

UPPSELT

FERÐADAGSKRÁ

DAGUR 1 – þriðjudagur 22. SEPtember

Flogið með Icelandair til Feneyja með flugi FI 948 20 SEP KEFVCE 08:20-15:00 
Rúta bíður okkar og við ökum af stað til Valpolicella vínsvæðisins (ca 1,5t) , þar sem við gistum á gömlum herragarði í fjórar nætur m/morgunverði
18:00 Komið á gististað, herragarðinn Villa de Winckels þar sem við gistum næstu fjórar nætur
19:00 Móttökudrykkur
19:30 Kvöldverður á Villa de Winckles, innifalinn í verði

DAGUR 2 – miðvikudagur 23. SEPtember

Morgunverður á hóteli
10:30 Haldið í dagsferð til Verona
11:30  Komið til Verona.  Stutt rútu- og gönguferð sem lýkur við Arenuna
14:00 FRJÁLS TÍMI Í VERONA. Hádegisverður á eigin vegum
17:30 Hittumst á fyrirfram ákveðnum stað í Verona og göngum saman í átt að rútu sem flytur okkur á fjölskyldurekinn vínbúgarð í sveitinni. Þar tekur Sabina á móti okkur með drykk, kynnir fjölskylduna og framleiðsluna í ægifögru umhverfi.
Margrétta kvöldverður að ítölskum hætti með vínpörun úr framleiðslunni í sveitasælunni, innifalinn í verði
21:30 Rúta flytur okkur aftur heim á hótel

DAGUR 3 – fimmtudagur 24. SEPtember

Morgunverður á hóteli
10:00 Rúta sækir okkur á hótelið og við höldum upp í Lessinia þjóðgarðinn norður af hótelinu
10:30 Heimsókn til ostabónda og við fáum að heyra um ostagerðina og smökkum á framleiðslunni
11:15 Göngum um sveitina, ca. 1,5 tími.  Landið er þarna nokkru hærra en hótelið okkar og getur verið svalara þar að morgni til
13:00 Léttur hádegisverður úr héraði. Einnig er hægt að kaupa osta og pylsur, innifalinn í verði
Að loknum hádegisverði höldum við aftur heim á hótel
16:30 Matreiðslunámskeið á VILLA DE WINCKELS.  Skipt niður í hópa og 4-5 réttir eldaðir, innifalið í verði
19:30 Fordrykkur og svo verður kvöldverðurinn sem við elduðum á námskeiðinu borinn fram, innifalið í verði

DAGUR 4 – föstudagur 25. SEPtember

Morgunverður á hóteli
10:30 Rúta sækir okkur og við ökum til ólívubónda og fáum að smakka framleiðslu hans, t.d. mismuninn á jómfrúarolíu og “undanrennunni”, innifalið í verði. Einnig er hægt að versla af framleiðanda
12:30 Ekið til Soave, 20 mínútna akstur. Við skoðum vínframleiðsluferlið í COFFELE vínkjallaranum, sem varð fyrstur til að fá vottun á lífrænni framleiðslu
15:00 Nú göngum við í átt að gamla bænum, sem allur stendur innan borgarmúra.  Þessi ganga tekur ca. 2 klst. Gengið um vínekrurnar, á gömlum dráttarvélaslóðum, hvergi erfiðar brekkur fyrir þá sem eru í góðu gönguformi þó sumar séu nokkuð langar. Gott er að hafa með sér göngustafi þar sem leiðin liggur meira niður á við
18:00 Vínsmökkun með léttum veitingum í vínkjallara Coffele sem staðsettur er innan borgarmúra Soave, innifalið í verði
19:00 Frjáls tími og kvöldverður á eigin vegum.
21:30 Rútan flytur okkur aftur í gististað

DAGUR 5 – laugardagur 26. SEPtember

Morgunverður á hóteli, brottskráning og uppgjör reikninga.
08:45 Rúta flytur okkur í Lombardia héraðið þar sem við fáum að kynnast Franciacorta freyðivínum
10:30 Heimsókn í Franciacorta vínkjallara þar sem við lærum um framleiðsluferlið og smökkum á vínunum, innifalið í verði
12:30 Hádegisverður á litlum fjölskyldureknum veitingastað í Franciacorta, innifalið í verði
14:00 Höldum af stað í átt til Torino

17:00 Komið á hótel sem staðsett er í hjarta Torino. Innritun á hótel Turin Palace þar sem við dveljum næstu 3 nætur
19:00 Röltum saman um miðborgina og kynnum okkur helstu torgin í „hinni ítölsku París”, þar sem gömul og ný kaffihús, verslanir og veitingastaðir eru í röðum við glæsilegar breiðgötur
Kvöldið er frjálst eftir göngutúrinn

DAGUR 6 – sunnudagur 27. SEPtember

Morgunverður á hóteli.
Morguninn frjáls
15:00 Lagt af stað til Barolo þar sem við fáum smá tíma til að rölta um þetta fallega miðaldaþorp á eigin hraða.
18:00 Heimsókn í vínkjallarann Marchesi di Barolo þar sem við kynnumst sögunni og framleiðslunni áður en kvöldverður með völdum vínum frá kjallaranum verður reiddur fram, innifalinn í verði
21:30 Rúta flytur okkur aftur heim á hótel

DAGUR 7 – mánudagur 28. SEPtember

Morgunverður á hóteli.
FRJÁLS DAGUR Í TORINO – EKKERT SKIPULAG

DAGUR 8 – þriðjudagur 29. SEPtember

Morgunverður og brottskráning og uppgjör reikninga
11:00 Ekið af stað til Malpensa flugvallar (ca.1,5 klst.) Ekkert stopp á leiðinni.
13:20 Innskráning fyrir heimflug: FI591 16:20- 18:35
PS. Einhverjar tímasetningar gætu hnikast til og þá tilkynnum við það í upphafi ferðar

Umsagnir úr Vínuppskeruferðum

UPPSELT

Verð á mann í tvíbýli kr. 429.900,-

Staðfesting kr. 70.000,- SKILMÁLAR FARARSNIÐS
Vinsamlega tilgreinið herbergisfélaga í athugasemdasvæði á greiðslusíðu

Verð fyrir einbýli kr.509.900,-

Verð miðast við gengi og flugverð í október 2025. Athugið að lágmarksþáttaka er 20 manns. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina er hún endurgreidd að fullu.

Innifalið

  • Flug með Icelandair til Feneyja og frá Milano Malpensa
  • Skattar og lendingargjöld
  • Töskur og handfarangur
  • Rútuakstur frá og til flugvallar
  • Allur annar rútuakstur samkvæmt þessari dagskrá
  • Gisting á herragarði í 4 nætur og 3 nætur á mjög góðu 4* hóteli í hjarta Torino
  • Morgunverður í sjö daga
  • Tveir léttir hádegisverðir með vatni og borðvíni
  • Fjórir glæsi-kvöldverðir á völdum veitingastöðum, með vatni, borðvíni og kaffi á eftir
  • Matreiðslunámskeið
  • Heimsóknir í vínkjallara og vínsmökkun
  • Heimsókn til ostabónda, þar sem við kynnumst framleiðsluferlinu og fjölskyldunni
  • Heimsókn í ólívuolíugerð, kynning á ferlinu og við lærum að smakka olíuna
  • Allar skoðunar og gönguferðir sem nefndar eru í dagskrá
  • Innlendir leiðsögumenn
  • Íslensk fararstjórn

EKKI INNIFALIÐ

  • Þjórfé þar sem við á
  • Gistináttagjald

SKILMÁLAR

Fararstjórn

Guðbjörg Magnúsdóttir

Guðbjörg Magnúsdóttir er Mosfellingur í húð og hár.  Hún lauk námi í ítölsku og ferðamálafræði frá HÍ ásamt því að vera leiðsögumaður og ljósmyndari. Ítölsk menning, samfélag og matargerð skipa stóran sess í lífi hennar.

Guðbjörg þekkir afar vel til Ítalíu og menningar landsins enda hefur hún verið þar með annan fótinn frá 1994.