Hreyfigleði í Toskana & Cinque Terre 23.-30. júní 2027

Í þessari skemmtilegu og fjölbreyttu hreyfiferð upplifum við meðal annars andstæður í sveit og borg, víðerni og þröngar götur miðaldaþorpa, einstaka náttúrufegurð og matarmenningu.

HVAÐ BÝÐST ÞÉR Í HREYFIGLEÐIFERÐ ?

  • Skemmtilegur en nokkuð krefjandi göngudagur í þjóðgarði í Appenninafjöllunum þar sem útsýni nær langt á haf út -jafnvel til Korsíku á góðum degi – Viðmið að komast nokkuð auðveldlega upp að Steini í Esjunni.
  • Rafmagnshjólaferðir með sælkeraívafi þar sem við kynnumst mat og menningu.
  • Ferð inn í Giaredo gilið sem er engu líkt, þar þræðum við árfarveg milli klettaveggja og kynnumst lífríkinu. Kanóaferð frá Lerici inn í undurfagrar víkur sem eru einungis færar sjóleiðina. Heimsókn í miðaldabæinn Pontremoli þar sem við fáum innsýn í einstaka sögu svæðisins, skoðum barokkhöll og röltum um vikulegan markað í bænum. Heimsókn í Vínsamlag í Cinque terre og fáum að smakka framleiðsluna.
  • Glæsilegar máltíðir og alþýðlegar í bland þar sem við kynnumst hugmyndafræði slowf-ood hreyfingarinnar
  • Einstakur áfangastaður: Við heimsækjum lítt þekkta náttúruperlu Toskana héraðs sem kallast Lunigiana. Svæðið liggur við rætur Appenninafjallgarðsins og skartar einstakri náttúru og fjölda miðaldaþorpa. Við heimsækjum einnig þekktari svæði eins og Lerici og Cinque Terre þjóðgarðinn.
  • Gisting á góðum hótelum m/morgunverði: 4 nætur í sveitagistingu í Lunigiana og 3 nætur í hafnarborginni La Spezia.
  • Notalegar samverustundir með ferðafélögunum
  • Lausar stundir og næði til að ráðstafa að vild
  • FYRIR HVERJA ER HREYFIGLEÐI Á ÍTALÍU: alla sem eru í ágætis formi (geta gengið upp að Steini í Esjunni nokkuð auðveldlega), hafa ánægju af fjölbreyttri hreyfingu úti í náttúrunni og njóta lífsins í góðum félagsskap.

FERÐADAGSKRÁ

miðvikudagur 23.júní – Ferðadagur

Flogið til Mílanó í beinu flugi FI 590 5.Sept KEFMXP 09:00-15:20  Rúta ekur okkur rakleiðis til Toskana héraðs (2,5t)
19:30 Innritun á sveitahótel í útjað ri Pontremoli í Lunigiana
Komuskál og glæsilegur kvöldverður á hótelinu með vatni, borðvíni og kaffi, innifalinn

fimmtudagur 24. júní

08:00 Morgunverður á hóteli
09:00 Höldum af stað á vit ævintýra dagsins. Við fáum blautbúninga, flotvesti og hjálma og höldum inn í Giaredo gilið sem er ævintýri líkast
14:30 Rúta flytur okkur til baka á hótel en á leiðinni stoppum við í „Birreficio“ – bjórgerð, fáum létta hressingu og handverksbjór, innifalið
16:00 Áætluð koma á hótel og síðdegið frjálst
20:00 Kvöldverður á hóteli, innifalinn (drykkir ekki innifaldir)

föstudagur 25.júní

07:00 Morgunverður á hóteli
08:00 Leggjum af stað með rútu upp í Appenninafjöllin( 1,25t ). Við hefjum gönguna í þjóðgarðinum sem kallast Parco Nazionale Appennino Tosco-Emiliano og liggur á mörkum Emilia Romagna héraðs og Toskana. Fyrsti áfangi er frá fjallaskála Lagdei (1250 m.) upp að vatninu Lago Santo sem er einstök vin í 1.500 m. hæð. Annar áfangi göngunnar er að ná tindinum Monte Marmagna ( 1.852) þar sem við stöndum á mörkum héraðanna tveggja og á góðum degi er hægt að horfa yfir Po dalinn í norðri og Korsíku í suðri
Síðbúinn sveita hádegisverður borinn fram, ásamt vatni og borðvíni í fjallaskála við Lago Santo á leiðinni niður, innifalinn
16:00 Rúta flytur okkur heim á hótel
20:00 Kvöldverður á hóteli, innifalinn (drykkir ekki innifaldir)

Laugardagur 26.júní

08:00 Morgunverður á hóteli, útritun og farangur settur í geymslu.
09:30 Göngum af stað með staðarleiðsögumanni frá hóteli í átt að miðbæ Pontremoli þar sem við kynnumst sögu staðarins, skoðum barokk höll og kíkjum á vikulegan markað í bænum
Frjáls tími í Pontremoli t.d til að skoða bæinn, verslanir, kíkja á kastalann sem hefur að geyma safn af einstökum styttum frá járnöld „Statue Stele“ og snæða hádegisverð.
Síðdegið frjálst til að rölta um eða njóta við sundlaugarbakkann
20:00 Kvöldverður á hóteli, innifalinn (drykkir ekki innifaldir)

sunnudagur 27.júní

08:00 Morgunverður á hóteli, útritun og farangur settur í geymslu.
09:00 Við höldum af stað með rútu sem flytur okkur áfram að þorpinu Filattiera þar sem rafmagnsreiðhjól bíða okkar og við leggjum af stað í hjólaferð þar sem við þræðum sveitir og kastalaþorp frá miðöldum.
13:00 Léttur hádegisverður í sveitinni þar sem við fáum afurðir beint frá býli í einstöku umhverfi. Innifalinn
15:00 Að hjólaferð lokinni höldum við af stað með rútu til La Spezia.
Innritun á hótel Firenze e Continentale í hjarta borgarinnar.
Kvöldið frjálst í La Spezia

mánudagur 28.júní

Morgunverður á hóteli
09:10 Göngum saman frá hótelinu að íþróttaleikvanginum í La Spezia, þar sem rafmagnsreiðhjól bíða okkar
09:30 Hjólum með innlendum leiðsögumönnum að þjóðgarðinum Cinque Terre
12:15 Stoppum á leiðinni í vínsamlagi Cinque Terre þjóðgarðsins þar sem við fáum að bragða á framleiðslunni. Innifalið
Hádegisverður frjáls í bænum Manarola
15:30 Hittumst á fyrirfram ákveðnum stað og hjólum saman til La Spezia
Kvöldið frjálst í La Spezia

þriðjudagur 29.júní

Morgunverður á hóteli
09:00 Förum saman með rútu til bæjarins Lerici þar sem næsta ævintýri bíður okkar
09:30 Kanóaferð frá Lerici þar sem við siglum meðfram strandlengjunni í einstöku umhverfi, inn í víkur sem eru aðeins aðgengilegar sjóleiðina
12:30 Frjáls tími í Lerici til að skoða sig um og fá sér hressingu
14:20 Siglum með ferju yfir til Portovenere sem má segja að sé inngangur að Cinque Terre þjóðgarðinum. Við göngum saman um bæinn og fáum frjálsan tíma til að upplifa stemninguna á eigin hraða
16:00/17:00/18:00/19:00 Ferjan siglir til baka frá Portovenere til La Spezia
Hverjum og einum er í sjálfsvald sett hvenær hann snýr aftur heim á hótel
Kvöldið frjálst

miðvikudagur 30.júní

Morgunverður á hóteli, brottskráning og uppgjör reikninga
08:45 Haldið af stað í átt að Mílanó flugvelli (3,25t).  Stoppað á leiðinni fyrir hressingu og WC
13:20 Innskráning í heimflug: FI 591 12. Sept MXP-KEF 16:20-18:35

Verð á mann í tvíbýli kr. 412.700,-

Staðfesting kr. 70.000,- SKILMÁLAR FARARSNIÐS
Vinsamlega tilgreinið herbergisfélaga í athugasemdasvæði á greiðslusíðu

Ef skipta á greiðslu milli tveggja korta er hægt að nota hlekkinn hér að neðan:

Verð miðast við gengi og flugverð í september 2026. Athugið að lágmarksþáttaka er 18 manns. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina er hún endurgreidd að fullu.

INNIFALIÐ:

  • Flug með Icelandair til og frá Mílano Malpensa
  • Skattar og lendingagjöld
  • Töskur og handfarangur
  • Rútuakstur frá og til flugvallar
  • Allur annar akstur samkvæmt þessari dagskrá
  • Gisting á góðum hótelum í Pontremoli og La Spezia í 7 nætur 
  • Morgunverður í sjö daga
  • Þrír alþýðlegir hádegisverðir með vatni og húsvíni/bjór
  • Fordrykkur og glæsilegur kvöldverður á komukvöldi með vatni, borðvíni og kaffi
  • 3x kvöldverðir á hóteli í Pontremoli, drykkir ekki innifaldir
  • Aðgangur í barokkhöll
  • Vínkynning og smakk í Vínsamlagi Cinque Terre þjóðgarðsins
  • Allar skoðunar-, hjóla-, kanóa-, gilja- og gönguferðir sem nefndar eru í dagskrá
  • Íslensk fararstjórn
  • Innlendir leiðsögumenn

EKKI INNIFALIÐ

  • Þjórfé
  • Gistináttagjald

Fararstjórn

Guðbjörg Magnúsdóttir

Guðbjörg Magnúsdóttir er Mosfellingur í húð og hár.  Hún lauk námi í ítölsku og ferðamálafræði frá HÍ ásamt því að vera leiðsögumaður og ljósmyndari. Ítölsk menning, samfélag og matargerð skipa stóran sess í lífi hennar.

Guðbjörg þekkir afar vel til Ítalíu og menningar landsins enda hefur hún verið þar með annan fótinn frá 1994.

Posted on Google Google
Sigurður Magnússon profile picture
Sigurður Magnússon
133 days ago
Google star 1Google star 2Google star 3Google star 4Google star 5Trustindex verifies that the original source of the review is Google.
Það er óhætt að mæla með Hreyfiferð í Toscana og Cinque Terre á vegum Fararsniðs. Þar er boðið upp á fjölbreytta hreyfingu, þar sem margir þurftu að teygja þægindarammann eða jafnvel stíga út fyrir hann. Allt varð það þó auðvelt og skemmtilegt þegar á reyndi, ekki síst vegna frábærrar fararstjórnar Guðbjargar, sem hefur einstakt lag á að skapa gott andrúmsloft í hópnum og láta öllum líða vel, þrátt fyrir að verkefnin gætu verið krefjandi. Svo er Ítalía alltaf jafn yndisleg heim að sækja.
Posted on Google Google
Elin Kristjansdottir profile picture
Elin Kristjansdottir
133 days ago
Google star 1Google star 2Google star 3Google star 4Google star 5Trustindex verifies that the original source of the review is Google.
Hreyfigleði í Toskana og Cinque Terre, þvílík upplifun í einni ferð. Skipulagið upp á tíu og hver einasti dagur í ferðinni var skemmtilegur og ,,vá mómentin" voru ansi mörg. Óhætt að mæla með þessari ferð og Guðbjörg fararstýra heldur vel utan um hópinn og gerir það alveg frábærlega vel.
Posted on Google Google
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir profile picture
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
450 days ago
Google star 1Google star 2Google star 3Google star 4Google star 5Trustindex verifies that the original source of the review is Google.
Frábær ferð núna í júní 2025 Hreyfigleði í Toskana og Cinque Terre þar sem var hjólað, gengið, vaðið, siglt, nutum rólegheita í sveitinni og ys og þys borgarinnar. Skemmtilegir ferðafélagar sem við kynntumst, hópurinn var passlega stór. Allt afar vel skipulagt hjá Fararsnið. Guðbjörg fararstjóri er frábær og hélt mjög vel utan um hópinn okkar. Kærar þakkir fyrir samveruna og skemmtilega ferð. Sigrún Matthea Sigvaldadóttir og Már Sigurbjörnsson.
Posted on Google Google
Elin Thorsteinsdóttir profile picture
Elin Thorsteinsdóttir
474 days ago
Google star 1Google star 2Google star 3Google star 4Google star 5Trustindex verifies that the original source of the review is Google.
+0
Við hjónakornin erum alsæl með Hreyfigleðiferðina okkar og mælum svo sannarlega með Fararsniði og Guðbjörgu. Fagmennskan var í fyrirrúmi og allt stóðst okkar væntingar og rúmlega það. Við þökkum kærlega fyrir okkur og frábæra samveru ❤️ Elín og Bjarni
Posted on Google Google
Selma Guðmunda Jónsdóttir profile picture
Selma Guðmunda Jónsdóttir
476 days ago
Google star 1Google star 2Google star 3Google star 4Google star 5Trustindex verifies that the original source of the review is Google.
Frábær ferð í alla staði, vel skipulög ferð, fjölbreytt og skemmtileg afþreying. Guðbjörg fararstjóri yndisleg og hefur hún mikla þekkingu á svæðinu. Mæli með þessari ferð fyrir alla sem langar í hreyfigleði 🥰
Posted on Google Google
Björk Guðbrandsdóttir profile picture
Björk Guðbrandsdóttir
761 days ago
Google star 1Google star 2Google star 3Google star 4Google star 5Trustindex verifies that the original source of the review is Google.
Ég er nýkomin heim úr Hreyfigleðiferð í Toskana, og er óhætt að segja að ferðin hafi bæði uppfyllt ,,hreyfingu og gleði,,. Frábærir farastjórar, gott skipulag, fjölbreytt og góð dagskrá. Ég er strax farin að skoða aðrar ferðir sem Fararsnið er með í boði fyrir næsta haust. Takk kærlega fyrir mig.

FYRIRSPURNIR OG FORGANGSLISTI

Fyrirspurnir: bokanir@fararsnid.is

Skráning á póstlista