Sælkeragöngur, frábær hugmynd

Okkur þykir það benda til þess að ferðirnar okkar vekji forvitni, jafnvel hrifningu, þegar  þær seljist upp svo fljótt sem raunin er. Margar ferðir seldust upp hjá okkur fyrir áramót en nokkur sæti eru þó eftir í Sælkeragöngu við Gardavatnið, í seinni Toskanaferðinni og örfá til Grikkalands.

Sælkeragöngur, næði til að njóta

Margir hafa rætt hugmyndafræðina í ferðunum okkar.  Þessa hugmynd að bjóða upp á ferðir sem gera ráð fyrir einhverri hreyfingu flesta eða alla daga.  Nota góð hótel, velja veitingastaði, sem á einhvern hátt skara fram úr, eða eru dæmigerðir fyrir héraðið eða borgina.

Skipta ekki um hótel nema alger nauðsyn krefji og flétta kynningu á daglegu lífi heimamannsins  saman við ferðadagskrána, frekar en löngum fyrirlestrum um ártöl og aristókrata.  Ferðir eins og Vínuppskeruferðin er til dæmis sett upp í miðju vínhéraði, fjarri stórborg og þá er rökrétt að kynna fyrir farþegum allt hitt sem sveitin hefur upp á að bjóða.

Sælkeragöngur, menning og munaður

Á hinn bóginn, þegar farið er til Torino, eða Toskana liggur beint við að beina augum að listum og menningu.  Hið stórkostlega verk Leonardos da Vinci, „Síðasta kvöldmáltíðin“ er í lítilli kapellu í miðborg Milano og frá Torino til Milano eru tæpir tveir tímar í akstri.  Það er svo ekki eins og Milano státi ekki af öðru en þessu verki, miðborgin er eitt alsherjar ævintýri.

Einnig vitum við að sjálf Endurreisnarstefnan í öllum listum á uppruna sinn í Toskana og hana má sjá í hverju skúmaskoti Flórensborgar, liggur við.  Flórens er þó þesskonar borg að einn dagur þar er bara til að kveikja í fólki að koma þangað aftur og þá til lengri dvalar.

Eina viðbót höfum við svo sett í ferðirnar okkar á síðustu árum, en hún er sú að hafa í hverri ferð einhvern viðburð á menningarlegu nótunum.  Við förum á klassíska eða óperutónleika í Toskanaferðinni.  Í Gardaferðinni förum við öll og sjáum og heyrum AIDU í Arenunni í Verona.  Í Torinoferðinni förum við og sjáum “Síðustu kvöldmáltíðina” eftir Leonardo da Vinci.  Í Vínuppskeruferðinni er það menning og mannlíf “sveitarinnar” sem við einblínum á og í Grikklandi er það töfrandi blanda fornrar menningar, náttúru og innlendra kræsinga.

Leave a Reply

Discover more from Fararsnið

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading