Uppskerugleði

Fararsnið hefur á undanförnum árum boðið upp á Vínuppskeruferðir til norður Ítalíu, ferðir sem hafa verið vinsælar bæði fyrir einstaklinga og vinahópa- enda fátt skemmtilegra en að læra, njóta og upplifa í góðum félagsskap. Norður Ítalía, frjósamasta svæði og stærsta matarkista landsins er spennandi áfangastaður á haustin. 

Þar sem færri komust að en vildu í Vínuppskeruferðina 22.september ákváðum við að setja aðra ferð í sölu 29.september – 6.október.

Gist í sveit og borg

Við upplifum andstæður í sveit og borg – friðsæld í skjóli Alpanna og iðandi mannlíf stórborgar. Gist verður í 4 nætur á herragarði rétt norðan við Verona þar sem ekkert herbergi er öðru líkt og veitingastaðurinn laðar til sín gesti víða að enda ratar hann árlega í Michelin vísinn.

Úr sveitum Veneto héraðs færum við okkur í vestur, til Torino, fyrstu höfuðborgar Ítalíu með glæsilegar byggingar og torg. Þar gistum við á mjög góðu 4* hóteli á besta stað í borginni, rétt við aðal verslunargötuna. Á efstu hæðinni er að finna „roof-top“ bar með óviðjafnanlegu útsýni til Alpafjalla og helstu kennileita borgarinnar. Fjöldinn allur af góðum veitinga- og kaffihúsum er staðsettur í nágrenninu og einn stærsti matarmarkaður Ítalíu er í göngufæri. 

Vínkjallarar og aðrar skemmtilegar heimsóknir

Í þessari ferð þræðum við vínsvæði frá austri til vestur á norður Ítalíu. Við hefjum leikinn í Veneto héraði sem liggur að Adríahafi í austri. Hér kynnumst við Valpolicella vínum, heimsækjum vínbændur í Soave, kynnumst framleiðsluferlinu, lífrænni ræktun, áskorunum og mikilvægi vísindanna í því ferli. Orðatiltækið að uppskera eins og til var sáð er ekki alveg algilt þegar veðurguðirnir og náttúruöflin taka í taumana.

Ólífuuppskeran er aðeins seinni á ferðinni en vínuppskeran og getur hún Rebecca því gefið sér tíma til að  bjóða okkur í ólífuframleiðslu fjölskyldunnar. Hún segir okkur frá því hvernig ræktun og vinnsla á gæða ólífuolíu fer fram og hvernig allir verða að leggjast á árarnar þegar uppskeran stendur sem hæst. Hún mun einnig kenna okkur að smakka og para olíu við mat- rétt eins og gert er með vín. 

Úr Veneto héraði höldum við í gegnum Langbarðaland (Lombardia hérað) þar sem við ætlum að fræðast um flaggskip ítalskra freyðivína, Franciacorta, sem eru framleidd með tímafrekri kampavínsaðferð. 

Við endum ferðalagið í Piemonte héraði þar sem við gistum í Torino en þaðan heimsækjum við Barolo, sem er sjarmerandi lítill miðaldabær og er hvað þekktastur fyrir framleiðslu Barolo rauðvína sem margir telja þau allra bestu á Ítalíu. Þar lærum við um sögu þessara rómuðu vína, fáum að skoða vínkjallara og endum kvöldið á dýrindis máltíð með pöruðum vínum.

Matarupplifun og léttar göngur

Vínuppskeruferðin er sannkölluð sælkeraferð og er hver sælkeraveislan á fætur annarri borin á borð en margverðlaunaður kokkur á herragarðinum kennir hópnum jafnframt að elda dásamlega rétti úr héraði. Einn góður ferðafélagi komst svona að orði í lok ferðar:

„Til fyrirmyndar, Fararsnið,
á ferð um Ítalíu.
Á einu máli erum við
að allt sé upp á tíu!

Ólívur og eðalvín,
úrvalskjöt og pasta.
Ekki gráta, elskan mín,
það er engin leið að fasta!“

Þessi orð lýsa stemningunni einkar vel. En holl hreyfing er nauðsynleg í bland og njótum við þess að fara í létta göngu um beykiskóg í Lessinia þjóðgarðinum, þræða vínekrur í hlíðum Soave og rölta um Verona borg. Ef einhver er ekki upplagður til göngu er í öllum tilfellum hægt að komast hjá þeim og hitta hópinn að göngu lokinni.

Frídagur í Torínó, París Ítalíu

Frjáls tími gefst í Torino sem jafnframt er oft kölluð París Ítalíu vegna franskra áhrifa og glæsilegra bygginga. Borgin hefur upp á margt að bjóða og þarf engum að leiðast á frídeginum. Gaman er t.d að rölta um borgina, njóta mannlífs, kaffihúsastemningar og markaða, fara í skoðunarferð um borgina með strætó, skoða glæsilegar hallir eða stærsta Egyptalandssafn utan Egyptalands.

Tími til að bóka

Nánari ferðadagskrá er að finna hér:
Vínuppskeruferð til Ítalíu 29.sept – 6.okt

Ef einhverjar spurningar vakna eða vinahópurinn/saumaklúbburinn er að velta fyrir sér að bóka ferð saman er hægt að hafa sambandi á bokanir@fararsnid.is eða í síma 611 8811. 

Ferðakveðja,

Ásta og Guðbjörg


Leave a Reply

Discover more from Fararsnið

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading