Vínuppskeruferð til Ítalíu 30.sept-7. okt. 2024

Vínuppskeruferð

Hvað býðst þér í Vínuppskeruferðinni til Soave-Valpolicella-franciacorta-barolo?

  • Þægilegar gönguferðir þar sem þú upplifir hið daglega líf í sveit og borg
  • Gist á fallegum herragarði á mörkum Valpolicella og Soave, einnig í miðborg Tórínó
  • Sælkeramáltíðir á völdum veitingastöðum, borðvín og vatn innifalið
  • Einstök upplifun: Þú heimsækir þrjá vínkjallara, hvern með sínu sérkenni
  • Notalegar samverustundir með ferðafélögunum og tækifæri til að eignast nýja
  • Lausar stundir og næði til að vera þú sjálf(ur)
  • Allt sem nefnt er í dagskrá er innifalið í verði, nema annars sé getið

Fararstjórn: Ásta og Guðbjörg

UPPSELT !

Sendið okkur línu á bokanir@fararsnid.is eða í síma 611 8811 fyrir bókun eða fyrirspurnir

FERÐADAGSKRÁ

DAGUR 1 – MÁNUDAGUR 30. SEPtember

Flogið með Icelandair til Mílanó á flugi FI 590 30 SEP KEFMXP 0820 1430 
Rúta bíður okkar og við ökum af stað til Soave vínsvæðisins, þar sem við gistum á gömlum herragarði í fjórar nætur m/morgunverði.
Kl. 18:30 Komið á gististaðinn okkar, Villa de Winckels.
Kl. 19:30 Móttökudrykkur.
Kl. 20:00 Kvöldverður á Villa de Winckles, innifalinn í verði.

DAGUR 2 – ÞRIÐJUdagur 01. OKTÓBER

Morgunverður á hóteli.
Kl. 10:30 Haldið í dagsferð til Verona.
Kl. 11:30  Komið til Verona.  Stutt rútu- og gönguferð sem lýkur við Arenuna.
Kl.14:00 FRJÁLS TÍMI Í VERONA. Hádegisverður á eigin vegum.
Kl. 19:00 Glæsilegur kvöldverður með sérvöldum borðvínum og vatni, í höll við elsta torg borgarinnar.  Vínin eru öll frá Valpolicella kjallaranum Cecilia Beretta INNIFALINN Í VERÐI. 
Kl.21:30 Rúta flytur okkur aftur heim á hótel.

DAGUR 3 – MIÐVIKUDAgur 02. október

Morgunverður á hóteli.
Kl.10:00 Rúta sækir okkur á hótelið og við höldum upp í Lessinia þjóðgarðinn norður af hótelinu.
Kl.10:30 Heimsókn til ostabónda og við fáum að heyra um ostagerðina og smökkum ýmsar aðrar afurðir hans.
Kl.11:15 Göngum um sveitina, ca. 1,5 tími.  Landið er þarna nokkru hærra en hótelið okkar og getur verið svalara þar að morgni til.
Kl.13:00 Léttur hádegisverður úr héraði. Einnig er hægt að kaupa osta og pylsur, innifalinn í verði.
Kl.14:30 Rúta sækir okkur og flytur okkur á gististað.
Kl.15:00 Komið til Villa de Winckels
Kl.16:00 Matreiðslunámskeið á VILLA DE WINCKELS.  Skipt niður í hópa og 4-5 réttir eldaðir, innifalið í verði.
Kl.19:30 Fordrykkur og svo er kvöldverðurinn það sem við höfum eldað á námskeiðinu, innifalið í verði.

DAGUR 4 – FIMMTUdagur 03. október

Morgunverður á hóteli.
Kl.10:30 Rúta sækir okkur og við ökum til ólívubónda og fáum að smakka framleiðslu hans, t.d. mismuninn á jómfrúarolíu og “undanrennunni”, innifalið í verði. Einnig er hægt að versla af framleiðanda.
Kl.12:30 Ekið til Soave, 20 mínútna akstur. Við skoðum vínframleiðsluferlið í COFFELE vínkjallaranum, sem varð fyrstur til að fá vottun á lífrænni framleiðslu.
Kl.15:30 Nú göngum við í átt að gamla bænum, sem allur stendur innan borgarmúra.  Þessi ganga tekur ca. 2 klst. Gengið um vínekrurnar, á gömlum dráttarvélaslóðum, hvergi erfiðar brekkur, fyrir þá sem eru í góðu gönguformi og hreyfa sig reglulega hér heima á Íslandi, þó sumar séu nokkuð langar. Gott er að hafa með sér göngustafi þar sem leiðin liggur meira niður í móti.
Kl.18:00 Vínsmökkun, fjórar tegundir, úrvals Soave-vín úr Garganega þrúgunni og léttar veitingar með, innifalið í verði.
Frjáls tími í gamla bænum og kvöldverður á eigin vegum.
Kl.21:30 Rútan flytur okkur aftur í gististað.

DAGUR 5 – fÖSTUDagur 04.október

Morgunverður á hóteli, brottskráning og uppgjör reikninga.
Kl.09:00 Rúta flytur okkur í Lombardia héraðið þar sem við fáum að kynnast Franciacorta freyðivínum.
Kl.10:30 Heimsókn í Franciacorta vínkjallara þar sem við lærum um framleiðsluferlið og smökkum á vínunum, innifalið í verði.
Kl.12:30 Hádegisverður á litlum fjölskyldureknum veitingastað, innifalið í verði.
Kl.14:00 Höldum af stað í átt til Torino.
Kl.17:00 Komið á hótel í miðborginni – innskráning í herbergi sem eru ekkert öðru líkt, enda hótelið gert úr tveim samliggjandi villum frá mesta uppbyggingartíma borgarinnar.
Kl.19:00 Röltum í bæinn, um glæsileg torg “hinnar ítölsku Parísar”, með áberandi kaffihúsum, verslunum og veitingastöðum.
Kl.20:00 Kvöldverður á fallegum stað, með víni og vatni, innifalið í verði.
Kl.22:00  Röltum til baka heim á hótel.

DAGUR 6 – laugardagur 05. október

Morgunverður á hóteli.
FRJÁLS DAGUR Í TORINO – EKKERT SKIPULAG

DAGUR 7 – SUNNUdagur 06. október

Morgunverður á hóteli.
Kl.10:00 Morguninn frjáls.
Kl.15.00 Lagt af stað til Barolo þar sem við getum gengið um þenna litla fallega bæ í stutta stund áður en að vínsmakkinu og kvöldverðinum kemur.
Kl. 18:00 Heimsókn í vínkjallarann Marchesi di Barolo og svo er kvöldverður með sérvöldum vínum frá kjallaranum, innifalinn í verði.
Kl.21:30 Rúta flytur okkur aftur heim á hótel.

DAGUR 8 – MÁNUDagur 07. október

Morgunverður og brottskráning og uppgjör reikninga.
Kl. 10:30 Ekið af stað til Malpensa flugvallar (ca.1,5 klst.) Ekkert stopp á leiðinni.
Kl. 12:30 Innskráning fyrir heimflug: FI591 1530 1745
PS. Einhverjar tímasetningar gætu hnikast til og þá tilkynnum við það í upphafi ferðar.

Innifalið

  • Flug með Icelandair til og frá Milano
  • Skattar og lendingargjöld
  • Töskur og handfarangur
  • Rútuakstur frá og til flugvallar
  • Allur annar rútuakstur samkvæmt þessari dagskrá
  • Gisting á fjögurra stjörnu hótelum í sjö nætur
  • Morgunverður í sjö daga
  • Tveir léttir hádegisverðir með vatni og borðvíni.
  • Fimm glæsi-kvöldverðir á völdum veitingastöðum, með vatni og borðvíni og kaffi á eftir
  • Matreiðslunámskeið
  • Heimsóknir í vínkjallar og vínsmökkun
  • Heimsókn til ostabónda, þar sem framleiðslan er sýnd og smökkuð
  • Heimsókn í ólívuolíusamlag, kynning á ferlinu og smökkun á mismunandi olíum
  • Allar skoðunar og gönguferðir sem nefndar eru í dagskrá
  • Innlendir leiðsögumenn
  • Íslensk fararstjórn

EKKI INNIFALIÐ

  • Þjórfé þar sem við á

SKILMÁLAR

Fararstjórn

Ásta Björk Sveinsdóttir

Reykvíkingurinn Ásta Björk hefur víðtæka reynslu af skipulagningu ferða og fararstjórn. Hún hefur skipulagt ýmsar ævintýraferðir fyrir hópa og má sem dæmi nefna afar velheppnaða blöndu af sælkerasiglingu og rafmagnsreiðhjólaferð í Króatíu.

Auk þess hefur hún verið fararstjóri í skíðaferðum til Ítalíu og Austurríkis, árshátíðarferðum víða um Evrópu, fótboltaferðum og mótsferðum fyrir unglingalandslið HSÍ.

Guðbjörg Magnúsdóttir

Guðbjörg Magnúsdóttir er Mosfellingur í húð og hár.  Hún lauk námi í ítölsku og ferðamálafræði frá HÍ ásamt því að vera leiðsögumaður og ljósmyndari. Ítölsk menning, samfélag og matargerð skipa stóran sess í lífi hennar.

Guðbjörg þekkir afar vel til Ítalíu og menningar landsins enda hefur hún verið þar með annan fótinn frá 1994.