Hreyfigleði – fyrir þig?

Í júní höldum við í  Hreyfigleðiferð til Toskana og Cinque Terre í þriðja sinn. Jómfrúarferðin fyrir 2 árum lukkaðist ákaflega vel þrátt fyrir að veðurguðirnir hefðu skorað á okkur – en íslenski hópurinn sem kom úr fremur slöku sumarveðri á Íslandi lét það ekki á sig fá! Stemningin var frábær og ný upplifun á hverjum degi. 

Hreyfigleði-hugmyndin varð til vegna samblands af óskum ferðafélaga okkar og eigin áhuga á þessu ferðamynstri. Því ekki að hreyfa sig mátulega í fríinu, hafa það huggulegt á eftir í góðri gistingu og gera vel við sig í mat og drykk? Þetta er í grunninn sama hugsun og í vinsælum Sælkeragöngum Fararsniðs en hér er enn meiri áhersla lögð á hreyfinguna.

Er Hreyfigleði fyrir þig?

Þetta er ferð sem hentar þeim sem vilja njóta en ekki þjóta en hafa jafnframt gaman af því að hreyfa sig í fríinu. Þeir sem komast upp að steini í Esjunni án mikilla átaka eiga ekki í vandræðum með hreyfihluta þessarar ferðar. Það þarf enginn að hafa siglt á kanóa eða klætt sig í blautbúning áður – Að reyna það í fyrsta skipti saman er bara hluti  ævintýrisins. Oft er hægt að finna „léttari útgáfu“ af hreyfingunni, gerist þess þörf. 

Gist í sveit og borg 

Fyrstu 4 næturnar gistum við í Lunigiana sem er nyrsti hluti Toskana héraðs, við rætur Appenninafjallanna. Nánar tiltekið í útjaðri miðaldabæjarins Pontremoli þar sem við njótum sveitasælu og einstakrar fjallasýnar. Stór garður með sundlaug og púttvelli umlykur hótelið og í eldhúsinu er áhersla lögð á að framreiða aðeins úr hráefni af svæðinu. Í Lunigiana er slow food hugmyndafræðin áberandi en hún varð til sem öflugt andsvar við skyndibita bylgjunni. Kjörið tækifæri gefst á meðan dvalið er í Pontremoli til að nýta hótelgarðinn eftir fjölbreytta hreyfingu hvers dags og slaka á. 

Á fimmta degi færum við okkur á malbikið – yfir til hafnarborgarinnar La Spezia þar sem við gistum þrjár síðustu næturnar á hótel Firenze e Continentale sem er mjög vel staðsett í miðbænum, rétt við brautarstöðina (sem er heppilegt ef einhverjir vilja framlengja ferðina). 

La Spezia, sem er einskonar inngangur í Cinque Terre þjóðgarðinn, er ekki stór borg en hefur blómstrað á undanförnum árum með aukinni ferðaþjónustu og komu skemmtiferðaskipa. Því má finna þar fjölbreyttar verslanir, góð veitingahús af ýmsum toga, líflegt mannlíf og skemmtilega höfn. 

Hreyfingin

Fjölbreytt hreyfing bíður okkar í þessari ferð. Í Lunigiana hjólum við á milli fallegra miðaldaþorpa og sveita, göngum upp eftir árfarvegi inn í fallegt gil þar sem við þurfum að synda á köflum, förum í fjallgöngu upp í Appenninafjöllin og göngum þar í sameiginlegum þjóðgarði tveggja héraða, Toskana og Emilia Romagna.

Ef einhver treystir sér ekki alla leið upp á topp í fjallgöngunni má hinkra miðja vegu  upp við fallegt vatn, Lago Santo og skoða sig um á meðan hópurinn fer alla leið.

Í seinni hluta ferðarinnar hjólum við í Cinque Terre þjóðgarðinum og förum í kanóa/kayaksiglingu meðfram strandlengjunni frá bænum Lerici þar sem við könnum fallegar víkur á leið okkar. 

Matarmenning

Í fyrri hluta ferðarinnar er fullt fæði innifalið þar sem við kynnumst matarhefðum Toskana héraðs og Lunigiana svæðisins en þegar komið er til La Spezia er hádegisverður og kvöldverður á eigin vegum enda er þar fjölda veitingahúsa að finna og gefst því gott tækifæri til að prófa sig áfram og gæla við bragðlaukana. 

Það er  tilhlökkunarefni að bjóða uppá aðra ferð um þetta skemmtilega svæði á mörkum Toskana og Liguria og upplifa þar í góðum félagsskap einstaka náttúrufegurð, menningu og matarhefðir.  

Þetta höfðu ferðafélagar að segja eftir seinustu ferð

„Takk fyrir frábæra ferð og fararstjórn í dásamlegu umhverfi. Mæli sannarlega með þessari skemmtilegu hreyfiferð! Veðrið var kannski ekki upp á 10 hjá okkur en það gerir minna til í góðum félagsskap og með Guðbjörgu fararstjóra sem leysir alla hnúta farsællega.” – Kristjana Sigurgeirsdóttir

„Ég er nýkomin heim úr Hreyfigleðiferð í Toskana, og er óhætt að segja að ferðin hafi bæði uppfyllt ,,hreyfingu og gleði,,. Frábærir farastjórar, gott skipulag, fjölbreytt og góð dagskrá. Ég er strax farin að skoða aðrar ferðir sem Fararsnið er með í boði fyrir næsta haust.” – Björk Guðbrandsdóttir

Tími til að bóka

Það eru aðeins 20 sæti í boði í hverri ferð og salan hefur farið vel af stað enda er þetta kjörin ferð til að njóta með maka eða vinum í skemmtilegu umhverfi. Svo er auðvitað upplagt að tryggja sér sæti núna og nýta ferðina sem hvatningu til að hreyfa sig reglulega í vetur! 

Nánari ferðadagskrá er að finna hér:
Hreyfigleði í Toskana og Cinque Terre 15.-22. júní

Hreyfigleði í Toskana og Cinque Terre 5. -12. september

 

Ert þú með hóp í huga?

Ef svo er getum við einnig skoðað í sameiningu sérferð í þessum dúr sumarið 2027 sem fellur sem best að ykkar þörfum. 

Ef einhverjar spurningar vakna eða vinahópurinn/saumaklúbburinn er að velta fyrir sér að bóka ferð saman er hægt að hafa samband á bokanir@fararsnid.is  eða í síma 776 0875. 

Leave a Reply

Discover more from Fararsnið

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading