Tvær bombur í desert

Fyrsti  í aðventu er runninn upp og áfram höldum við að brasa í eldhúsinu eins og við lofuðum. Nú eru það tveir eftirminnilegir og vinsælir eftirréttir úr Vínuppskeruferðunum, Semifreddo og Freyðivínshlaup. 

Sá fyrri útleggst sem Hálfkaldur eða Hálffrosinn á okkar ylhýra en er þekktari undir heitinu Semifreddo og fæst víða á Ítalíu í ýmsum útfærslum. Þessi réttur hentar kannski ekki þeim sem vilja takmarka hitaeininga inntöku en er því betri fyrir vikið –  Er líka ekki alveg óþarfi að telja þær um hátíðarnar? 

Rétturinn er nú kannski ekki al-ítalskur og má finna útfærslur í nágrannalöndunum, Parfeit í Frakklandi og Semifrío á Spáni. Hann dregur nafnið sitt af því að hann frýs ekki alveg í gegn – rétt eins og rjómaísinn hennar mömmu. Verður hann þá velúrkenndur og rennur ljúflega niður.

Semifreddo – „Hálfkaldur” ís
f/6 manns

Innihald: 
½ l. rjómi 
180 gr. sykur 
60 gr. Vatn
100 gr. Eggjahvítur 
200 gr. Hnetukrókant eða daim kurl

Aðferð:

  1. Rjóminn er stífþeyttur. 
  2. Sjóðum saman sykur og vatn til að leysa sykurinn upp og látið standa aðeins. 
  3. Eggjahvíturnar eru stífþeyttar, þá hellum við heitri sykurblöndunni í mjórri bunu samanvið og hrærum áfram í 10-15 mínútur, eða þar til við fáum þétta blöndu. 
  4. Rjómanum og marengs blandað varlega saman ásamt muldu krókanti eða daim kurli. 
  5. Sett í lokað ílát og fryst í amk 5 klst. eða yfir nótt. Gott er að taka ísinn út 10-15 mín áður en hann er borinn fram. 

Seinni rétturinn vekur jafnan mikla aðdáun  – er fallegur, einfaldur og ferskur á bragðið en það er hlaup búið til úr sætu Moscato freyðivíni með ferskum ávöxtum- fullkominn áramótaréttur.  Til að toppa máltíðina er best að gæða sér á samsvarandi vínglasi með. Galdurinn er að halda búbblunum í hlaupinu sem gerir það svo ómótstæðilegt. Þá er gott að eiga góða að og meistarakokkurinn Friðrik V. var ekki lengi að finna einfalda lausn á þeirri áskorun.

Moscato  freyðivínshlaup
f/6 manns

Innihald: 
375 ml. Moscato freyðivín (½ flaska) – má vera annað sætt freyðivín.
5 matarlímsblöð
2 msk sykur
Fersk ber t.d jarðaber, bláber, brómber eða hindber. 

Aðferð: 

  1. Matarlímsblöð lögð í bleyti í köldu vatni þar til þau verða mjúk.
  2. Hitið 1 dl af freyðivíninu upp að suðu, bætið sykrinum út í og leyfið honum að leysast upp. 
  3. Kreistið allt vatn úr matarlíminu, setjið út í pottinn með blöndunni og hrærið rólega þar til límið er uppleyst. 
  4. Hellið blöndunni í skál, bætið restinni af freyðivíninu samanvið og hrærið varlega ( til að eyða ekki búbblunum). 
  5. Berjum komið haganlega fyrir í 6 formum eða skálum og blöndunni hellt yfir. 
  6. Kælið í ísskáp í amk 3 tíma- má vera yfir nótt.

Gott er að bera þetta fram með afganginum af freyðivíninu. 

Blúndukörfur í bónus 

Við bættum einni „bónus” uppskrift við en hún hefur reyndar ekkert með Vínupperskuferðirnar að gera- Blúndukörfur, litlar braðggóðar skálar sem glæsilegt er að bera Semifreddo fram í, nú eða rjómaísinn hennar mömmu fyrir þá íhaldssömu. Þær er auðvelt að útbúa daginn áður og eiga tilbúnar þegar að veislunni kemur.

Blúndukörfur
f/6 manns

Innihald: 
50 gr. smjör
50 gr. síróp
50 gr. sykur 
50 gr. hveiti

Aðferð: 

  1. Bræðið saman smjör, sýróp og sykur þannig að úr verði fljótandi karamella. 
  2. Takið af hitanum og sigtið hveitið út í. 
  3. Hrærið saman svo úr verði deig sem er látið er standa við stofuhita góða stund. 
  4. Skiptið deiginu í 6 jafn stórar kúlur, 
  5. Fletjið 2 kúlur í einu út í hring á ofnplötu og bakið tvær saman við 175 gráðu hita þar til kökurnar eru orðnar „gullnar”. 
  6. Takið plötuna út og leyfið kökunum að kólna smá stund eða þar til hægt er að taka deigið af plötunni með pönnukökuspaða. 
  7. Kökunum er komið fyrir ofan á glösumi eða litlum skálum þannig að þær leggist yfir, verði að körfu og harðni. Þá eru þær fjarlægðar og þeimi snúið við. 
  8. Endurtakið með hinar kúlurnar tvær og tvær í einu.

Þetta er upplagt að útbúa deginum áður. 

Góða skemmtun og buon appetito !

Leave a Reply

Discover more from Fararsnið

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading