Fyrir stuttu sýndi ríkissjónvarpið heimildarmynd með eldhúsgyðjunni sívinsælu henni Nigellu Lawson þar sem hún kynnti fyrir okkur guðmóður ítalskrar matargerðar í Bretlandi. Sú merkiskona er á tíræðisaldri og heitir Anna del Conte, afkastamikill matreiðslubókahöfundur í Bretlandi. Ástríða og nálgun Önnu á matargerð hefur heillað bresku þjóðina um árabil, verið bæði heimiliskokkum og matreiðslumönnum innblástur. Yfirskrift myndarinnar er „Kokkurinn sem breytti lífi okkar” og má enn finna á sarpinum hjá RUV.
Einfaldleikinn er bestur
Anna del Conte fæddist í Mílanó en í seinni heimsstyrjöldinni fluttist hún með foreldrum sínum til Emilia-Romagna héraðs þar sem fjölskylduvinur skaut yfir þau skjólshúsi meðan á stríðinu stóð. Þar bjó fjölskyldan í miðri matarkistu Po-sléttunnar og naut fjölbreytts fæðuframboðs í takt við árstíðirnar. Anna lærði við þessar aðstæður að töfrarnir í matargerð væru fólgnir í einfaldleikanum: virðingu fyrir góðu hreinu hráefni og ástríðu fyrir matseldinni. Gott ferskt hráefni þarf ekki flókna matreiðslu enda eru matreiðslubækur henna skrifaðar fyrir venjulegt fólk en ekki Michelin kokka. Matreiðslan snýst um að næra.
Vínuppskeruferðir og Sælkeragöngur
Þegar ég hlustaði á Önnu del Conte rann upp fyrir mér að þessi nálgun væri einmitt það sem Fararsnið hefur lagt mikla áherslu á í Sælkeragöngum og Vínuppskeruferðum. Í ferðum Fararsniðs er ekki innifalið hálft fæði á hóteli eins og víða tíðkast heldur er lögð sérstök áhersla á að velja einstaka veitingastaði sem venjulegur ferðamaður rambar ekki svo auðveldlega inn á á ferðalagi sínu. Hráefnið er fengið úr héraði, maturinn unninn frá grunni á staðnum og pastað rennt í eldhúsinu fyrr um daginn. Ástríðan fyrir matargerðinni skilar sér beint til gestanna, upplifun sem eykur skilning á þeim svæðum sem ferðast er um.
Fyrsta vínuppskeruferðin er uppseld hjá okkur í ár en nokkur sæti eru enn laus 25. september og 2.október. Í þeim ferðum fáum við kennslu í ítalskri matargerð, kynnumst ostagerð, ólífusamlagi, heimsækjum vínkjallara, snæðum glæsilegar máltíðir og fáum holla hreyfingu í bland.
Kveðja, Guðbjörg
