Valencia fyrir fólkið
Það er ekki ofsögum sagt að Valencia sé einstaklega heillandi borg. Hún er sérlega vinaleg og þægileg að ferðast um þrátt fyrir að vera þriðja stærsta borg Spánar.
Eitt af því sem vakti athygli mína þegar ég kom þar fyrst er hversu margt hefur verið gert til að bæta lífsgæði íbúa með skemmtilegri blöndu af grænum svæðum og frjóum hugmyndum.
Turia garðurinn

Að koma í þennan ótrúlega garð í Valenciu-borg á Spáni var mikil upplifun. Garðurinn sem er staðsettur í gömlum árfarvegi þar sem fljótið Turia streymdi í gegnum borgina en flaut gjarnan yfir bakka sína með tilheyrandi tjóni.
Árið 1957 í október varð þar stórflóð sem tók mörg mannslíf og eyðilagði fjölda bygginga. Borgin efndi í kjölfarið til hugmyndasamkeppni og niðurstaðan var sú að áin var beisluð og færð suður fyrir borgina sem er einstakt verkfræðiafrek út af fyrir sig. Þetta varð til þess að fyrsti vísir af garðinum leit dagsins ljós árið 1986 en þessi hluti garðsins er oft nefndur „Borg vísinda og lista”. Í dag er hann skemmtileg blanda útivistarperlu og menningar sem gaman er að eyða degi í, hvort heldur sem er gangandi eða hjólandi.
9 km á hjólhesti
Ég kaus að kanna garðinn á hjóli en margar hjólaleigur er að finna í borginni. Hjólandi um garðinn þverann og endilangann og naut ég hverrar mínútu af þeim 9 km sem garðurinn er.
Eitt af sérkennum Valenciu-borgar er að hún hefur allt upp á að bjóða sem stórborg hefur en jafnframt skemmtilega strönd. Ég hóf hjólaferðina frá ströndinni og kom að garðinum við byggingar sem hýsa listasöfn, en þær eru frekar framúrstefnulegar líkt og óperuhúsið, Ég kannaði vísindasafnið sem er alveg stórfenglegt og sjávardýrasafnið sem þykir stórbrotið.
Agndofa naut ég þess staldra við og að virða fyrir mér einstakan arkitektúr í samblandi við skemmtilegt útivistarsvæði.
Eftir góða stund við byggingarnar hélt ég förinni áfram en þá blöstu við aðrar áherslur í garðinum fallega. Tók þá við brúarhluti garðsins, en flestar eru þær frá 14. 15. og 16. öld en svo koma nýrri brýr inn á milli. Ég gerði mér ferð á blómabrúnna sem skartar 27.000 tegundum blóma sem komið er haganlega fyrir á brúnni en árstíðirnar stýra því hvaða blóm verða fyrir valinu hverju sinni. Rósatímabilið var í gangi þegar ég fór þar um og var brúin ævintýralega falleg.
Gúlliver

Turia garðurinn er hugsaður fyrir fólkið og ekki hafa börnin verið undanskilin í skipulaginu. Næsta sem ég hjólaði fram á var frumlegur leikvöllur fyrir börn í anda Gúllivers í Putalandi. Leiktækin í garðinum eru öll byggð á stórri styttu sem er af Gulliver sjálfum og alls kyns rennibrautir og klifurbrautir tengdar við hann. Garðurinn iðaði allur af börnum og fullorðnum við leik.
Mjög stórt íþróttasvæði er inni í garðinum þar sem hver völlurinn tók við af öðrum, fótbolta, tennis og badminton… já það er nefnilega hægt að spila badminton úti á Spáni þar sem rokið feykir ekki fjöðrinni af vellinum eins og á Íslandi.
Eftir 9 km langa hjólaferð í gegnum garðinn fannst mér ég hafa upplifað svo margt skemmtilegt að ég er full eftirvæntingar fyrir komandi vori í Valencia
Í lokin er svo skemmtileg útlegging á „Þorraþræl“ Kristjáns fjallaskálds, sem hann Jón Karl sló fram þegar hann bauð konu sinni til Valencia, um miðjan febrúar:
Nú er veður vænt í
Valensíuborg,
tölt um fögur torg
trauðla vekur sorg.
Hér er grasið grænt í
görðum til og frá
tifa tápleg strá
í Turiá.
„Marar“brúin breið
ber mig rétta leið
þar er gatan greið
gönguferðin heið.
Engri ró er rænt í
rólegheita bæ
sólin rís úr sæ
ég syng og hlæ.
Þegar Þorri heyrir
þennan gleðisöng
vetrarveðrin ströng
vill hann gerist löng.
Upp hann kulda keyrir
klaka fellir á
Frón, svo freri þá –
flesta hrjá.
Hér í suðri sól
sest á dal og hól,
hvergi grát né gól
greina má um ból.
Hitinn engur eirir
alla gleður þó
hérna finn ég fró
á Flamingó.
Horfir í hríðarbilinn
hryggur landi minn
æ, hver andskotinn
ekki’er veturinn
enn við okkur skilinn
„Ófærð“ brestur þá
yfirdrifin á
allra skjá.
Víst ég vildi nú
vænni bjóða frú
greitt, í góðri trú,
að gæsku minni hlú.
Kynda ástarylinn
út að borða smá
ljúft er lífið hjá,
Valensíá.
Kveðja, Ásta Björk
