Einstök Týrólastemning í Schladming

Jibbý – komið nýtt ár sem þýðir bara eitt, SKÍÐAFERÐ í vændum.Tilfinningin að fara að telja niður í að komast úr kuldanum á eyjunni okkar í norðri í fannhvítar og sólríkar skíðabrekkur í Austurríki er ólýsanleg. Kíki öðru hvoru á flugmiðann minn og skoða hvaða sæti ég valdi mér í fluginu tilhlökkunin er svo skemmtileg.

Undanfarin ár hef ég farið til Austurríkis, nánar tiltekið til Schladming. Þegar ég lendi í Salzburg veit ég að nú er einungis rétt rúmur klukkutími í rútu og þá er skíðadraumurinn hafinn.

Útiveran og vinalegheitin

Fátt er betra en að byrja nýtt ár á birtu og heilbrigðri hreyfingu ásamt því að hlúa vel að góðri næringu í góðum félagsskap. 

Það fyrsta sem  fer í gegnum hugann á meðan á stuttri rútuferðinni stendur er hvað ég hlakka til að vakna snemma og borða góðan morgunverð, hitta Gunther hótelstjóra og aðstoðarkonu hans Juliu. Ég hugsa líka um brasið á fyrsta degi við að fara í skíðagallann og smella skíðaklossunum sem á hverju ári virka of þröngir en að sjálfsögðu er það alltaf bara vitleysa.

En hugurinn fer um víðan völl og allt í einu erum við byrjuð að klifra upp brekkuna í átt að hótelinu okkar og rútan aðeins búin að setja í lægri gírinn og tilhlökkunin eykst. Þessi yndislegi bær sem tekur alltaf svo vinalega á móti mér er allt í einu leiksviðið mitt í heila viku. Upplifunin af því að vakna snemma og bruna niður ný troðnar brekkunar er ólýsanleg. Nú er bara að finna hótelherbergið og finna út hvernig herbergjalottóið hefur fallið í þetta skiptið. Ég fæ alltaf gott herbergi, stundum stórt og þá upplifi ég mig sem prinsessu en alltaf er ég mjög sátt og ég arka glöð niður í skíðageymslu með klossana  mína inn í minn einka upphitaða skáp, það þarf ekki mikið til að gleðja konuna frá eyjunni í norðri.

Úr herbergisglugganum sé ég kirkjuklukkurnar eða skíðabrekkurnar allt eftir lottóvinningnum um herbergið en hvort tveggja er mjög tilkomumikið enda er þetta lottó sem ber alltaf vinning.

Nú fer hugurinn aðeins lengra inn í vikuna ég spyr manninn minn, hvort við eigum ekki að fara snemma einn daginn í bæinn og fara á uppáhalds kaffihúsið okkar. Að sjálfsögðu fæ ég jákvætt svar og þá er bara spurning hvort við eigum að fara með gamla skíðstólnum sem er eins og fyrstu skíðalyfturnar voru í Bláfjöllum eða taka strætó. Oftast veljum við stólinn enda er það einstaklega rómantísk salíbuna í bæinn sem er bæði skemmtilegur og fullur af áhugaverðum verslunum sem er alveg “nauðsynlegt” að reka nefið aðeins inn í.

Ég er rifin upp úr draumum mínum með  símhringingu og ég minnt á  velkominsdrykkinn  á hótelbarnum, ég dríf mig í skóna og skunda  niður stigann til að hitta samferðafólk mitt enda stutt í að dýrindis kvöldmáltíð verði borin fram á hótelinu. Spurningunum um næsta dag, hvert sé förinni heitið, hvar eigi að hittast í hádeginu osfrv. þeim verður svarað að morgni. Nú er bara að njóta.

Skíðaferð í flóruna

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna nýja ferð í ferðaflóru Fararsniðs, Skíðaferð til Schladming í Austurríki 27.janúar – 3.febrúar 2024. Ferðin fer í almenna sölu kl 18. sunnudaginn 18. júní og hafa því skíðaglaðir póstlista vinir forskot fram að þeim tíma. 

Schladming er frábært skíðasvæði sem hefur upp á alla kosti skíðamennskunnar að bjóða.

Svigskíði, fjallaskíði og stutt í góðar gönguskíðabrautir og ekki skemmir fyrir að í brekkunum er boðið upp á sleðaferðir á gömlu fallegu trésleðunum sem við öll þekkjum.

Hingað til hafa hópferðir ekki verið í boði til Shcladming frá Íslandi en þar sem Fararsnið leggur upp með að ferðast í litlum hópum bauðst okkur einstaklega gott hótel með enn betri þjónustu. Ekki skemmir fyrir að sama fjölskyldan hefur rekið hótelið í fjölda ára. Hótelið var allt tekið í gegn 2020 og er glæsileg viðbygging með sundlaug og gufum ásamt notalegum hvíldar bekkjum.

Schladming er skíðastaður, sem vert er að heimsækja. Skíðasvæðið samanstendur af fjórum fjöllum,í röð inn dalinn. Mjög auðvelt er að komast milli svæða og tekur ekki langan tíma að skíða milli þeirra. 

Hvert svæði hefur á að skipa fjölda „mislitra” brekka, sem segja til um erfiðleika. Svartar brekkur eru erfiðastar, þá rauðar og loks bláar.

Góðir veitingastaðir eru mjög víða í hverju fjalli og þar finna allir eitthvað við hæfi. Afgreiðslan er innt af hendi fljótt og oftar en ekki er fólkið klætt í þjóðlegum búningum “lederhosen og dirndl”, sem er litríkur klæðnaður og eykur á einstaka stemningu austurrísku alpanna. Bærinn sem er gamalt námuvinnsluþorp er einstaklega vinalegur og líflegur, með fjölda kaffihúsa, veitingastaða og áhugaverðra verslana. 

Schladming hefur verið valið eitt af svæðum heimsbikarsins í svigi og er þá mikil „þjóðhátíðar” stemning í bænum, allir flykkjast út til að vera með og hylla skíðakappana. 

Aðal-fararstjórinn í þessari einstöku ferð er Guðmundur Jakobsson sem hefur mikla reynslu af skíðasvæðum í Evrópu og þó sérstaklega í Schladming en þangað hefur hann komið alloft. Guðmundur hefur þjálfað skíði í yfir 30 ár ásamt því að hafa verið fararstjóri og liðsstjóri á þrennum ólympíuleikum og sjö heimsmeistaramótum í alpagreinum. Guðmundur er stoðtækjasmiður og Vesturbæingur.

Með skíðakveðju, Ásta

Leave a Reply

Discover more from Fararsnið

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading