Það getur verið snúið að lýsa heilli borg í stuttu máli. Hvernig dregur maður saman sögu hennar, menningu og eiginleika í eina heild?
Kannski með því að varpa ljósi á þau element sem mynda þessa heild.
Við erum með frábæra ferðadagskrá í mótun og okkur langar að kynna ykkur fyrir karakter Valencia. Hugmyndin er að fara í könnunarleiðangra inn í ólík hverfi borgarinnar.
Gamla borgin: Minjar, Márahverfið og Mercado Central
Hótelið okkar stendur nálægt Ráðhústorginu og við byrjum á því að kanna nærumhverfið með innlendum leiðsögumanni. Gegnt Silkimarkaðnum stendur stærsti yfirbyggði matvælamarkaður Evrópu, Mercado Central og spölkorni lengra er Drottningartorgið.
Öll þessi svæði hafa tekið umskiptum síðustu ár, hér eru Valenciubúar engir eftirbátar Parísar og annarra stórborga. Það er sannarlega mikill sjónarmunur, en með víkjandi bílaumferð hafa líka loftgæði og hljóðvist gjörbreyst til hins betra.
Leið okkar liggur í líka gegnum Carmen, göturnar eru eins og völundarhús eins og þekkist í mörgum Máraborgum Norður-Afríku. Tilgangurinn er að skapa skjól fyrir brennandi sólu og gera óvinaherjum erfitt að komast inn í borgina.
Við tökum okkur gott eftirmiðdagshlé og tökum svo annan göngutúr um kvöldið til að prófa mismunandi afbrigði tapasrétta frá norðri og suðri.
Að loki dags ættu allir að þekkja sig nógu vel í miðborginni til að njóta sín utan við skipulagða dagskrá. Hvort sem það eru kaffihúsin, söfn eða verslanir sem heilla, þá er það allt í göngufæri frá hótelinu, mest innan við 10 mínútur.
Turia-garðurinn, Borg Vísinda og Lista
Næst víkkum við hringinn og göngum nú um stærsta almenningsgarð Spánar. Turia-garðurinn er grænt belti sem hlykkjast í gegnum borgina miðja, með leikvöllum, listaverkum, æfingavöllum, kaffihúsum og klasa nútímabygginga sem nefnist Borg Vísinda og Lista.
Þar má finna Vísindasafnið, Sædýrasafnið, Óperuhöllina og þar er Berklee tónlistarskólinn með útibú frá Boston.
Svæðið hefur orðið vinsælt fyrir kvikmyndaupptökur á vísindaskáldsögum, vegna þess hve framúrstefnulegar byggingarnar eru. Til dæmis eru þyrluatriðin og fleiri útitökur úr sjónvarpsþáttunum West World tekin þar.
Í Turia-garðinum má lesa söguna í formi byggingarlistar, brýrnar eru allt frá tímum Rómverja, sumar hannaðar fyrir aðkomu konunga eða óvinaherja eftir atvikum, aðrar fyrir bílaumferð nútímans.
Og rómatíkin er allsráðandi á Blómabrúnni (sástu myndbandið?).
Ruzafa, Paella-kennsla og Nýji almenningsgarðurinn
Það er ómissandi að heimsækja Ruzafa-hverfið, allt annar karakter heldur en miðborgin. Það hefur mjög heildstæðan byggingarstíl frá því um þarsíðustu aldamót og eflaust er það breiðum gangstéttum og göngugötum að þakka hve mikið úrvalið er af kaffihúsum og veitingastöðum.
Mannlífið er sannarlega fjölbreytt, varla að finna þar tómar götur allan sólarhringinn, en þó sjaldan mannmergð eða troðning. Þar standa skranbúðir og hönnunarbúðir hlið við hlið, hverfið er eiginlega bær í borg, því varla þarf að fara út fyrir hverfið eftir aðföngum eða afþreyingu.
Við mælum okkur mót við Ruzafa-markaðinn og þar hefst matreiðslunámskeiðið, nú skal elda Paella-réttinn, sem á uppruna sinn í Valencia.
Eftir góða skemmtun og frábærar veitingar tökum við snúning í nýja almenningsgarðinum sem opnaði 2019 og margir missa af, en hann leynir á sér.
Sjávarþorpið Cabanyal og ströndin
Þetta gamla fiskimannaþorp er í miklu uppáhaldi margra, það kallast á einhvern hátt á við húsastíl Kúbu, fyrir þau sem þangað hafa komið. Það festist í skipulagsdeilum í áratugi og stóð algjörlega í stað.
En loksins var fallið frá því að kljúfa hverfið með hraðbraut og fékk þá nauðsynlegt viðhald og andlitslyftingu.
Vilja ekki allir fara á ströndina? Eftir göngu um Cabanyal-hverfið röltum við meðfram ströndinni og snæðum hádegisverðinn þar.
Daginn eftir verður svo frjáls dagur, engin skipulögð dagskrá og þá geta þau sólþyrst fengið útrás fyrir strandlífið, nú rata allir á ströndina!
Og svo allt hitt…
Hér var örlítið tæpt á nokkrum atriðum úr ferðadagskránni, gaman verður að útlista hana nánar þegar hún er fullmótuð.
Við leggjum okkur fram um að hafa dagskrána afslappaða, staðsetjum okkur á góðu hóteli þannig að mestallt er í göngufæri, bæði afþreyingin og við skulum ekki gleyma því, sælkeramáltíðirnar!
Meira um það síðar.
