Gardavatnið þarf vart að kynna fyrir íslenskum ferðalöngum en einn af fjölmörgum undurfögrum bæjum sem raða sér meðfram vatninu er Sirmione. Bærinn stendur á tanga sem skagar langt út í þetta stærsta stöðuvatn Ítalíu. Sirmione er einn af viðkomustöðum okkar í Sælkeragöngu við Garda enda einstakur staður vegna sögu, menningar og náttúrufegurðar.
Scaligero kastalinn

Í Sirmione er að finna einn best varðveitta kastala á Ítalíu en hann var byggður á 13.og 14. öld af Scala fjölskyldunni. Nafnið hljómar eflaust kunnuglega í eyrum margra vegna óperuhússins fræga í Mílanó sem nefnt er eftir fjölskyldunni en hún var valdamikil á norð-austur Ítalíu. Kastalinn hefur þjónað mörgum hlutverkum í gegnum tíðina og var á tímabili nýttur sem fangelsi þegar Frakkar og Austurríkismenn réðu ríkjum á norður Ítalíu. Þessi mikilfenglegi kastali er á lista yfir vinsælustu viðkomustaði á Ítalíu og gefst hverjum og einum tími til að skoða safnið sem þar er, í frítímanum.
Afturgangan í óveðrinu
Sagan segir, að í kastalanum hafi búið ung hjón, hin ægifagra Arice og eiginmaður hennar hann Ebengardo. Í miklu óveðri sem gekk yfir Gardavatnið óskaði feneyskur riddari, Elaberto að nafni, eftir næturskjóli hjá ungu hjónunum sem reyndist auðsótt. Riddarinn gat hinsvegar ekki látið sér nægja að horfa á hinu fögru Arice heldur gerði hann tilraun til að ræna henni. Hún öskraði og varðist hetjulega en með þeim afleiðingum að Elaberto stakk hana til bana. Eiginmaðurinn varð var við lætin, kom inn og sá konu sína liggjandi á blóði sínu . Í örvæntingu sinni réðst hann á riddarann sem beið bana í átökunum.
Ebengardo lifði ekki lengi eftir þetta og dó úr sorg. Enn þann dag í dag þegar veður er vont má sjá hann ráfa um kastalann í leit að sinni heittelskuðu Arice.
Rómverskur lúxus

Á 1.öld f.kr hófu Rómverjar að byggja glæsileg 3ja hæða lúxushíbýli yst á tanganum sem Sirmione bærinn stendur á og kallast Grotte di Catullo. Í dag er þetta einn merkasti fornleifauppgröftur Ítalíu og einstakt dæmi um glæsibyggingar rómverja frá þessum tíma.
Upp úr jörðinni í Sirmione streymir steinefnaríkt vatn sem talið er heilsubætandi. Líklegt er að Rómverjar hafi vitað af heilsubætandi eiginleikum þess þegar á fyrstu öld. Á 20. öldinni hófu menn að nýta þessar heilsulindir á markvissan hátt með því að bjóða fólki upp á heilsumeðferðir.
Sælkeragöngur við Garda
Fararsnið býður upp á tvær Sælkeragöngur við Garda næsta sumar og þar munum við meðal annars þræða götur og upplifa stemninguna í þessum einstaka bæ sem Sirmione er.
Sælkeraganga við Garda 11.-18.júní 2024
Sælkeraganga við Garda 18.-25.júní 2024
Ef einhverjar spurningar vakna eða vinahópurinn/saumaklúbburinn er að velta fyrir sér að bóka ferð saman er hægt að hafa sambandi á bokanir@fararsnid.is eða í síma 611 8811.
Ferðakveðja,
Ásta og Guðbjörg
