Sælkeraganga og rétturinn sem sló í gegn

Daginn er farið að lengja og hugur okkar farinn að reika til Ítalíu. Sælkeralandsins þar sem einstök virðing er borin fyrir hráefninu og alúð er lögð í matargerðina. Það þarf nefnilega ekki að vera flókið að töfra fram dýrindis rétti ef hráefnið er ferskt og gott – einfaldleikinn er að endingu bestur. 

Eggaldin að hætti Parmabúa

Melanzane alla Parmigiana eða eggaldin að hætti parmabúa er vinsæll en einfaldur réttur sem sló heldur betur í gegn í Sælkeragöngum Fararsniðs síðastliðið sumar. Svo mjög, að hörðustu kjötætur reyndu að múta matreiðslumeistaranum til að ljóstra uppskriftinni upp, án árangurs. 

Við stöllur gerðum tilraun til að leika þetta eftir í eldhúsinu heima. Það lukkaðist dásamlega og við deilum uppskriftinni hér að neðan fyrir áhugasama.

Allskonar upplifun

Hreyfingar og stefnur eins og slow-food, slow-travel/hægferðir og cittá-slow/hæglætisbær (stefna sem Djúpivogur tók t.d upp) eru sem betur fer orðnar fyrirferðameiri í umræðunni. Þær miða allar m.a. að því að hægja á sér, bera virðingu fyrir náttúrunni og umhverfinu, upplifa og njóta- en ekki þjóta. 

Slow food samtökin voru stofnuð á Ítalíu árið 1986 í kjölfar mikilla mótmæla vegna opnunar skyndibitastaðar rétt við Spænsku þrepin í Róm.  Tilgangurinn var meðal annars að efla meðvitund neytenda fyrir góðu, hreinu hráefni, framleiddu með sjálfbærum hætti þannig að það sé sanngjarnt fyrir bæði framleiðendur og neytendur og nota hreinar afurðir úr héraði. Sem dæmi bjóða veitingastaðir í anda slow food á Ítalíu upp á staðbundna rétti en sú nálgun gerir það að verkum að hvert svæði býður með stolti upp á svæðisbundna rétti og því er fjölbreytnin mikil milli landshluta. 

 Á Ítalíu er þessi nálgun ekki bara hugmynd á pappír – eða fyrir einhverja sérvitringa,  heldur er eins og að hún sé í blóði þjóðarinnar. Þorri ítölsku þjóðarinnar myndi ekki kaupa jarðaber utan uppskerutíma á þeirra svæði né ólífuolíu sem merkt væri „ólífur frá Evrópusambandslöndum” heldur leitast fólk við að kaupa vörur og hráefni frá framleiðendum úr nærumhverfinu. 

Þetta er stefna sem Fararsnið hefur haft að leiðarljósi í skipulagningu ferða sinna. Að fá holla hreyfingu í fallegu umhverfi, borða staðbundinn mat á völdum stöðum og njóta hans í skemmtilegum félagsskap. En eins og sagt er á Ítalíu – það eldist enginn við matarborðið. 

Melanzane alla Parmigiana:

Innihald: 
3 stór eggaldin 
Olífuolía
1 laukur
1 hvítlauksgeiri
1,5 tsk þurrkað oregano
2 dósir/eða flöskur góðir niðursoðnir tómatar ( 800g í heildina)
30g basilika (má sleppa) 
3 lúkur rifinn parmesan ostur 
2 lúkur brauðraspur
2 kúlur af Burrata osti (eða mozzarella)

Aðferð:

  1. Skerið eggaldinið í 1cm þykkar sneiðar, penslið með ólífuolíu og grillið þar til það mýkist á grillpönnu/air-fryer/ofni eða grilli-kælið sneiðarnar á bakka.
  2. Ofninn hitaður í 190 gráður ( undir og yfirhiti).
  3. Skerið lauk og hvítlauk smátt og steikið létt í potti ásamt þurrkuðu oreganói. Bætið tómötum útí og sjóðið í ca 15 mínútur eða þar til sósan þykknar. Kryddið með salti og pipar eftir smekk og bætið basiliku út í ef þið eigið hana til (hægt er að mauka sósuna með töfrasprota eða í blandara).
  4. Þá hefst samsetningin í eldfast mót: Setjið lag af tómatsósu í botninn og þekið með eggaldinsneiðum ( eins og lasagna). Dreifið smá parmesan osti og rífið burrata ost yfir með fingrunum.. Endurtakið svo 1-2 önnur lög með sama hætti ( fer eftir stærð fatsins sem þið notið). Við endum svo á lagi af tómatsósu, burrata osti, parmesan og brauðraspi.
  5. Bakið í ca 30 mínútur við 190 gráður – eða þar til yfirborðið er orðið gullið og aðeins stökkt. Buon appetito 

Sagnir úr Sælkeragöngu

Sælkeragangan til Toskana þótti vel heppnuð og sérlega áhugaverð og fjölbreytt.  Sigurður Bergsson tók forsíðumyndina í þjóðgarðinum.

Flóran og Fánan

Fjórði dagur er sá sem oftast kemur á óvart hjá ferðalöngunum.  Gangan er afar þægileg, engar brekkur en mikið útsýni í sveitinni.  Stærsti þjóðgarður Toskana og verndasvæði 60 fuglategunda, sem sumarhverjar voru horfnar úr Toskana um miðja síðustu öld, ýmist vegna ofveiði eða þurkunar lands.  Á leið okkar urðu einnig fágætar og framandi plöntur og tré. Eftir hressandi gönguferðina snérum við aftur heim á hótel og áttum frjálsan dag til kl. 17:00.  Þá heimsóttum við vínsérfæðing “sommelier” sem kynnti fyrir okkur helstu vínhéruð og helstu þrúgur Ítlaíu.  Mikið var smjattað og rætt um mismunandi bragð og eftirbragð, angan og lit.  Engir dallar á borðinu til að skila vínunum og gladdi það alla.  

Lesa áfram „Sagnir úr Sælkeragöngu“

Dásemdir Toskana

Fyrsta ferð sumarsins til Ítalíu var Sælkerganga til Toskana.  Hótelið okkar í Montecatini Terme er frábærlega staðsett, með góðan sundlaugargarð og mjög glæsilega dekuraðstöðu, fyrir þá sem vilja. 20 manns áttu þar saman 9 sólríka og fallega daga við holla hreyfingu, mat og drykk.  Hópurinn var víða að af landinu og á ýmsum aldri.  Það eina sem allir deildu var áhugi fyrir náttúrunni, hæfilegri dagskrá og notalegum kvöldum í góðum hópi.

Lesa áfram „Dásemdir Toskana“