Hvenær ársins er best að ferðast til Ítalíu?

Frá uppskeruhátíð í miðaldaþorpinu Bagnone, Toskana. Mynd: Lunigianaworld.it

Þetta er algeng spurning og við henni á ég ekki eitt einfalt svar….nema þá að segja að allar árstíðir séu góðar. T.d er einstök upplifun að skoða Feneyjar að vetri til og fá þá innsýn inn í hversdagslíf íbúanna sem lifa í takt við krefjandi aðstæður. Ferðamannastraumurinn á sumrin byrgir þá sýn. 

Ágústmánuður er þó sá mánuður ársins sem ég sæki Ítalíu alltaf heim – að undanskildu einu ári í miðju bankahruni. Þá urðum við að láta okkur nægja að ylja okkur við minningarnar.  

Ástæðan fyrir því er einföld – ágústmánuður er sumarleyfismánuður á Ítalíu og það má með sanni segja að Ítalir kunni að gera sér glaðan dag í fríi en þó í fullkomnu hæglæti og núvitund. Að njóta stundarinnar og upplifa saman. 

Eftirminnileg miðaldahátíð

Miðaldahatid í Filetto
Frá miðaldahátíð í Filetto, Toskana

Sumarið 2008 er mér mjög eftirminnilegt. Þá dvöldum við sonur minn á Ítalíu heilt sumar þar sem ég var að skrifa BA ritgerð í ítölsku og var viðfangsefni ritgerðarinnar, möguleikar Lunigiana (sem er hluti af Toskana) til þróunar visthæfrar ferðaþjónustu eða „eco-tourism”. Þar fjallaði ég sérstaklega um hátíðir á svæðinu eins og t.d miðaldahátíðina í Filetto í Lunigiana sem er mjög metnaðarfull. En Filetto einkar vel varðveitt, sjarmerandi lítið miðaldaþorp sem er byggt upp sem hluti af býsantískum varnarvirkjum á svæðinu. Elsta torgið er ferhyrnt og var upphaflega með varðturna á öllum hornum þar sem hægt var að fylgjast með innrásum Langbarða en í dag stendur þó aðeins einn af fjórum turnum eftir.

Syni mínum sem þá var 6 ára bauðst óvænt að taka þátt í sumarnámskeiði í Filetto sem endaði með þátttöku barnanna á miðaldahátíðinni. Sú upplifun var ólýsanleg – bæði fyrir mig sem móður og soninn einnig. Börnin voru með opnunaratriði hátíðarinnar – þau marseruðu í álfabúningum með flennistór eyru,  allskyns potta og pönnur, sleifar og ausur,  inn í gegnum borgarmúrana í humátt á eftir tónlistarstjóranum. Hann sló taktinn og börnin hermdu eftir með tiltækum verkfærum, ótrúlega taktviss og ákveðin. Þau höfðu s.s fyrir utan allskyns útileiki, íþróttir, myndlist og flr. verið í mjög markvissri taktþjálfun á sumarnámskeiðinu og árangurinn var ólýsanlegur. Því miður var þetta í tíð fyrstu-kynslóða stafrænna myndavéla og ekki mikið „fest á filmu” þetta árið. 

Enginn eldist við matarborðið

Ágúst er tími allskyns hátíða; uppskeruhátíða, miðaldahátíða, markaða, útitónleika, útikvikmyndasýninga, nú eða dansleikja á bæjartorginu. Þarna spyr enginn um aldur, allir koma saman, afar og ömmur, pabbar og mömmur og eiga  saman ánægjulegar stundir.

 „A tavola non s’invecchia” er orðatiltæki sem útleggst eitthvað á þá leið að enginn eldist við matarborðið enda þar sem ítalir koma saman, þar er matur. Oft fylla langborð heilu torgin, íbúar koma saman ásamt gestum og borða fjölrétta máltíðir að ítalskri hefð og sitja fram eftir kvöldi við mat og drykk. Ágúst einkennist af gleði sem maður fer ekki varhluta af.

Frá bæjarhátíð í miðaldaþopinu Bagnone, Toskana. Mynd: Lunigianaworld.it

Nú kunna margir að spyrja sig hvort hitinn sé of mikill í ágúst og vissulega getur það hent  að hádegissólin sé full rausnarleg. Þá er mikilvægt að skýla höfðinu og drekka vel. Á  móti kemur að þegar líða fer á ágústmánuð fer hitastigið oft að síga með kvöldinu og þá er dásamlegt að sitja úti og snæða ljúffenga kvöldmáltíð undir stjörnubjörtum himni. 

Leave a Reply

Discover more from Fararsnið

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading