Eigendaskipti hjá Fararsniði

Enn dregur til tíðinda hjá Fararsniði ehf.  

Í fyrra gáfum við það út að ferðaskrifstofan væri til sölu fyrir þá sem áhuga hefðu, eða tök á að glíma við slíkan rekstur.  Nokkrir áhugasamir höfðu samband en ekkert varð úr kaupum.  

Við hjónin vorum því tilbúin til að láta Vínuppskeruferðir haustsins verða síðustu ferðir okkar og Fararsniðs, með Íslendinga til Ítalíu.  

BJÖRT FRAMTÍÐ FARARSNIÐS

Í lok síðasta mánaðar var svo haft samband við okkur og spurt hvort Fararsnið væri enn til sölu – já-á, og í gær barst okkur svo bindandi tilboð um eigendaskipti, frá og með næstu áramótum.  

Það er góð tilhugsun fyrir okkur, að þeir sem taka við eru áhugasamir um að kynna Ítalíu á sama hátt og við höfum gert og kunna vel til verka þegar kemur að ferðamennsku.  Þetta er líka ungt og kraftmikið fólk sem er tilbúið til að auka á framboð ferða, með nýjungum frá eigin brjósti.

HVAÐA FERÐIR VERÐA Í BOÐI 2023?

Síðustu dagana höfum við því unnið að því að setja upp þær ferðir sem kunnugir þekkja frá liðnum árum og hafa verið einkenni ferðavals okkar.  Sælkeragöngur til Garda og Toskana og svo þær ferðir sem strax hafa selst upp að undanförnu, Vínuppskeruferðirnar til Soave, Valpolicella og Barolo.

Enn er því tækifæri fyrir þá sem oft höfðu hugsað sér að vera með okkur í þessum ævintýrum okkar á slóðum ítalskra vína og matar og um fjöll og fáfarnar slóðir Norður Ítalíu.

Ef þú vilt fylgjast með fréttum af ferðum ársins 2023 – og forsölu – þá geturðu skráð þig hérna á póstlistann okkar.

Jón Karl og Ágústa, fararstjórar og eigendur Fararsniðs
Jón Karl og Ágústa, fararstjórar og fráfarandi eigendur Fararsniðs

Leave a Reply

Discover more from Fararsnið

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading