Nú víkur sögu aftur að hópi kennara, sem sameinaði námsferð til Ítalíu við Sælkeragöngu til Garda. Kennarar Grenivíkurskóla flugu til Mílanó 24. ágúst og dvöldu eina viku við Gardavatnið í sólskini og þurrkatíð. Ókosturinn við að fara á þessum tíma er að skólar eru ekki komnir af stað og kennarar ekki mættir til starfa. Skólar hefjast á Ítalíu um miðjan september og kennarar mæta til verka þann 01.09.
Ég var kominn í samband við mjög virtan kennara úr Veneto héraðinu, sem hefur áralanga reynslu í flytja erindi á ensku. Hún er enskukennari, en vegna víðtakra starfa sinna fyrir fræðsluyfirvöld, hefur hún yfirgripsmikla þekkingu á skólahaldi frá öllum hliðum.
Hún byggði kynningu sína á fyrirlestrum og pallborðsumræðum. Í héraðinu norðan við Veneto eru reknir fámennisskólar í allra minnstu sveitunum og var áhugavert fyrir kennara Grenivíkurskóla að heyra lausnir Ítalanna við þesskonar aðstæðum.
Líkt og kennarar Fossvogsskóla í júní, áttu svo kennarar lausar stundir þess á milli og þá var svipuð dagskrá í boði og verið hafði í júní. Berjarunnar, sem í júní höfðu aðeins borið sætukoppa eða grænjaxla stóðu nú bláir, rauðir eða grænir af berjaklösum. Grenivíkurskóli kemur áfram við sögu í næsta pistli.



