Dagurinn framundan er enn í dag skemmtilegasti göngudagurinn í ferðunum okkar, að mínu mati. Farþegar sem ferðast hafa í fleiri ferðir með okkur telja líka að hann standi upp úr, þegar horft er til baka á þær ferðadagskrár sem boðið er upp á.

Kl. 10:00 leggjum við upp frá hótelinu okkar, eftir gömlum dráttarvélar slóða, sem skásker brekkuna og þar sem hryggurinn upp af hótelinu er talsvert hár, þá er þessi ganga nokkuð lengi á fótinn í byrjun. Hún er samt ekki brött og fljótlega erum við komin á malbik, sem sker hlíðina á hinn veginn.
Í brekkulok og jafnvel fyrr höfum við tekið vatns pásu og blásið mæðinni, en framundan er nokkuð flatt yfirferðar. Þaðan er líka magnað útsýni yfir vatnið og Garda bæinn, sem lúrir á bakka vatnsins. Til vinstri getur að líta syðstu fjöll Dólómítanna í fjarska en nær eru fallegir heimilisgarðar beggja vegna götunnar.

Við fylgjum brún hryggjarins og göngum ýmist á malbiki, þéttum skógarstígum og grasi grónum slóðum. Við stöldrum aðeins hjá vínekrum og jafnvel kíví ræktun á leið okkar, nú til vesturs í átt að vatni, fram hjá gömlum klausturgarði þar til við komum í skarð sem greinir eldfjallið La Rocca frá annarri ennþá eldri eldstöð.

Áður en haldið er upp á höfðann er gott að vita hvað bíður okkar, jákvætt og neikvætt.
NEIKVÆTT
- Framundan er brattasti hluti göngunnar.
- Á leiðinni eru ójafnar klungur og betra að hafa stafi.
- Það getur verið hált á berginu.
JÁKVÆTT
- Sneiðingurinn var áður fær hestakerrum og því vel breiður.
- Við erum ekkert að flýta okkur.
- Útsýnið á ystu brún er engu líkt og við fyllumst stolti yfir getu okkar.

Á höfðanum gefum við okkur góðan tíma, tökum myndir og þarna uppi er ómögulegt að vera ekki í góðu skapi. Við færum okkur á syðri hluta höfðans og horfum þar eftir gönguleiðinni sem við gengum til Bardolino tveim dögum fyrr. Af þessum hluta höfðans stökkva ofurhugar í svifdrekum sínum og láta uppdrifið halda sér á lofti svo lengi sem vill.
GPS mæling sýnir okkur að við erum í sömu hæð og hefðum við gengið á Úlfarsfell. Við förum aðra leið niður, um hlykkjóttan skógarstíg og þar þarf líka að viðhafa gætni og fara rólega.
Loks erum við komin í sama skarð og fyrr og framundan eigum við létta göngu á malbiki og um vínekrur, þar til við komum í hádegisverð í garðinum hjá henni Elenu.

Eftir ljúfenga máltíð og verðskuldaða, töltum við í rólegheitum aftur heim á hótel. Fyrsti hlutinn er niður snarbratta malbikaða götu og rétt að fara af gætni. Næsti kafli er malarvegur, áður en við styttum okkur leið yfir engi, heim á hótel og upp á dráttarvélar slóðann þar sem við byrjuðum.
Þá höfum við sem sagt verið á göngu í þrjá tíma, ekki í hring, heldur 8. Yfir hádegisverðinum hefur tíminn stöðvast og við teljum það ekki með.
Hér má sjá alla ferðadagskrána fyrir Sælkeragöngur við Garda-vatn
