Dásemdir Toskana héraðs verða dregnar fram í þessari ljúfu ferð þar sem við blöndum saman léttri hreyfingu, matar- og menningarupplifun.
HVAÐ BÝÐST ÞÉR Í SÆLKERAGÖNGU Í TOSKANA?
- Þægilegar gönguferðir þar sem þú upplifir hið daglega líf í sveit og borg
- Ef einhver er ekki upplagður í göngu er alltaf hægt að taka leigubíl og hitta hópinn
- Gist á sama gæðahótelinu allan tímann, í Montecatini Terme
- Sælkeramáltíðir á völdum veitingastöðum, borðvín og vatn innifalið
- Einstakur áfangastaður: Þú heimsækir fegurstu sveitir og borgir Toskana, Lucca, Vinci, San Giminiano o.fl., lærir að þekkja vínþrúgur héraðsins og hlýðir á klassíska tónleika í einstöku umhverfi
- Notalegar samverustundir með ferðafélögunum og tækifæri til að eignast nýja
- Lausar stundir og næði til að ráðstafa að vild
- Ferð þar sem mjög mikið er innifalið
FERÐADAGSKRÁ TOSKANA
Laugardagur 23.ágúst -ferðadagur

Flogið til Rómar í beinu flugi FI 562 02JUN KEFFCO 07:50 14:35
Ekið rakleiðis norður til Toskana, þar sem gist er á **** hóteli í sjö nætur með morgunverði
20:00 Innritun á Grand Hotel Vittoria í Montecatini Terme
21:00 Komuskál og kvöldverður á hótelinu, innifalið
sunnudagur 24.ágúst

Morgunverður á hóteli
08:30 Lagt af stað með rútu og innlendum leiðsögumanni í átt að fæðingarbæ Leonardo da Vinci, Vinci. Þar göngum við í gegnum vínræktarsvæði og endum gönguna á vínbúgarði (6 km ganga)
Við fáum að kynnast og smakka á framleiðslunni og ýmsu öðru góðgæti úr sveitinni, innifalið
14:30 Rúta flytur okkur til Vinci þar sem við skoðum safn með helstu vísinda-afrekum Leonardo da Vinci
17:00 /17:30 Áætluð heimkoma á hótel
Kvöldið frjálst
mánudagur 25.ágúst

Morgunverður á hóteli
9:30 Göngum saman niður á brautarstöð í gegnum sjarmerandi bæinn Montecatini terme
10:08 Förum með lest til Lucca
11:01 Komum til Lucca og göngum um gömlu borgarmúrana og þröngar götur gamla bæjarins með innlendri leiðsögn. Frjáls tími að gönguferð lokinni
15:00 Hópurinn hittist á fyrirfram ákveðnum stað og gengur saman til baka á brautarstöðina og lest tekin heim til Montecatini Terme
19:00 Rúta flytur okkur til bæjarins Montecarlo þar sem við snæðum glæsilegan kvöldverð, með völdu borðvíni og/eða vatni, innifalið
þriðjudagur 26.ágúst
Morgunverður á hóteli
Dagurinn frjáls
Þennan dag væri hægt að nýta til að sækja Flórens heim, fara á ströndina eða slaka á og njóta í nærumhverfinu
miðvikudagur 27.ágúst

Mongunverður á hóteli
08:30 Rúta flytur okkur til miðaldabæjarins San Gimignano sem er einstaklega vel varðveittur. Við gefum okkur góðan tíma til að rölta um með staðarleiðsögn, skoða mannlífið og njóta útsýnisins yfir hlíðar Toskana
13:15 Höldum af stað í átt að vínbúgarði þar sem við fáum að kynnast framleiðslunni, smökkum á henni og njótum léttra veitinga, innifalið
Kvöldið frjálst
fimmtudagur 28.ágúst

Morgunverður á hóteli
09:30 Förum með rútu til Pistoia þar sem við förum í borgargöngu og lærum um gamalgrónar matarhefðir, heimsækjum þekkta súkkulaðigerð og fáum að smakka, innifalið
Frjáls tími í Pistoia
14:30 Rúta flytur okkur aftur heim á hótel
19:00 röltum við upp að toglestinni upp til Montecatini Alto og sameinumst í kvöldverði á virðulegasta veitingastaðnum á aðaltorgi gamla bæjarins. Toglestin gengur til kl. 23:30 og hverjum er í sjálfsvald sett hvenær hann heldur niður úr þorpinu að kvöldverði loknum, innifalið
föstudagur 29.ágúst

Morgunverður á hóteli
09:30 röltum við upp að toglestinni sem flytur okkur upp í miðaldabæinn Montecatini Alto. Við skoðum bæinn áður en við setjum stefnuna á ólífuolíu framleiðslu litlu ofar
12:15 Heimsækjum við eitt af þekktustu ólífuolíu samlögum héraðsins og smökkum á framleiðslunni. Einnig er okkur boðið í hefðbundinn sveita mat í hádeginu, innifalið
14:15 Bóndakonan kvödd og við göngum til baka og göngum niður hlíðina aftur til Montecatini Terme (3,5km)
19:30 Við röltum upp í Tettuccio Spa og fáum okkur létta hressingu fyrir tónleika kvöldsins, innifalið
21:15 Klassískir tónleikar í ótrúlegu umhverfi, innifalið
laugardagur 30.ágúst
Morgunverður á hóteli, brottskráning og uppgjör reikninga
08:30 haldið af stað á Rómarflugvöll
Stoppað á leiðinni fyrir hressingu og WC
13:00 innskráning í heimflug: FI 563 09JUN FCOKEF 15:45 – 18:35
Verð á mann í tvíbýli kr. 385.600,-
Staðfesting kr. 70.000,- SKILMÁLAR FARARSNIÐS
Vinsamlega tilgreinið herbergisfélaga í athugasemdasvæði á greiðslusíðu
Verð fyrir einbýli kr.425.600,-
Verð miðast við gengi og flugverð í október 2024. Athugið að lágmarksþáttaka er 18 manns. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina er hún endurgreidd að fullu.
INNIFALIÐ:
- Flug með Icelandair til og frá Róm
- Skattar og lendingargjöld
- Töskur og handfarangur
- Rútuakstur frá og til flugvallar
- Allur annar rútuakstur samkvæmt þessari dagskrá
- Gisting á góðu hóteli í sjö nætur
- Morgunverður í sjö daga
- Heimsókn í vínkjallara
- Heimsókn í súkkulaðigerð
- Heimsókn í ólífusamlag
- Miðar í toglest
- Þrír alþýðlegir hádegisverðir með vatni og víni
- Þrír glæsi-kvöldverðir á völdum veitingastöðum, með vatni, borðvíni
- Einn léttur kvöldverður með vatni og víni fyrir tónleikana
- Miðar á klassíska tónleika
- Allar skoðunar og gönguferðir sem nefndar eru í dagskrá
- Íslensk fararstjórn
- Innlendir leiðsögumenn
EKKI INNIFALIÐ
- Gistináttagjald
Fararstjórn

Guðbjörg Magnúsdóttir
Guðbjörg Magnúsdóttir er Mosfellingur í húð og hár. Hún lauk námi í ítölsku og ferðamálafræði frá HÍ ásamt því að vera leiðsögumaður og ljósmyndari. Ítölsk menning, samfélag og matargerð skipa stóran sess í lífi hennar.
Guðbjörg þekkir afar vel til Ítalíu og menningar landsins enda hefur hún verið þar með annan fótinn frá 1994.
Umsagnir úr Sælkeragöngu í Toskana

„Til fyrirmyndar, Fararsnið,
á ferð um Ítalíu.
Á einu máli erum við
að allt sé upp á tíu!
Ólívur og eðalvín,
úrvalskjöt og pasta.
Ekki gráta, elskan mín,
það er engin leið að fasta!
Stefán Halldórsson“
