Hjólaferð og sigling í Króatíu 15.-22. ágúst 2026- Norðureyjar

Króatía er einstök nátturuperla við Adriahafið en henni tilheyra yfir þúsund eyjar og eru 48 þeirra í byggð. Við munum sigla á snekkju með rafmagnsreiðhjól í farteskinu milli nokkurra þessarra eyja, gista um borð og hjóla á eyjunum. Dagleiðir eru mislangar og tveir dagar miðlungs erfiðir. Góður tími gefst til að njóta náttúrunnar og synda í tærum sjónum. Þessi ferð sameinar skemmtilega blöndu af hreyfingu, afslöppun og góðum mat- blanda sem svíkur engan.
Trogir -Trogir

Hvað býðst þér í siglingu og hjólaferð í Króatíu?

  • Sigling frá Trogir á góðri snekkju með 18 káetum
  • Gist er í þægilegum 2ja manna káetum með salerni og sturtu
  • Hálft fæði á snekkju
  • Rafmagnsreiðhjól
  • Flug er ekki innifalið en Fararsnið getur veitt upplýsingar um heppilegar flugtengingar. Tækifæri til að tengja ferðina við aðra áfangastaði.

Fararstjórn: Ásta Björk Sveindóttir

FERÐADAGSKRÁ

DAGUR 1 – laugardagur 15.ágúst-Primošten

12:00-12:30 Innritun um borð í MS Liberty við höfnina í Trogir þar sem dregið verður í káetur.
13:00 Hádegisverður um borð og fararstjórafundur. Sigling frá Trogir til  Rogoznica
Hjólaleið: Rogoznica – Primošten – 25 km.
Hjólaleiðin á fyrsta degi er stutt, eða um 25 km, enda eru allir að kynnast hjólunum sínum sem hver og einn hefur til umráða alla ferðina, hjólað á malbiki og malarstíg.
Erfiðleikastig er 2/5, hjólað á malbiki
Við stoppum til að fá okkur hressingu á leiðinni
Kvöldverður á eigin vegum
Gist verður við Primošten sem er lítið sjarmerandi sjávarþorp byggt á eyju sem nú er búið að tengja við meginlandið með brú.

DAGUR 2 – sunnudagur 16. ágúst-Duki otak

06:30 Siglt til Vodice
07:30 Morgunverður hefst um borð 
09:00 Lagt af stað í hjólaferð og hjólað verður frá Vodice  til Murter 24 km og stoppum á leiðinni til að fá okkur hressingu
Erfiðleikastig er 2/5, hjólað á malbiki
11:30 Hádegisverður um borð og við siglum til Sali
Eftir hádegisverðinn hjólum við frá Sali – Telaščica, 18 km.
Erfiðleikastig 3/5, hjólað á malbiki
Gist verður við eyjuna Dugi otok í bænum Sali
Kvöldverður á eigin vegum í Sali

DAGUR 3 – mánudagur 17.ágúst – ZADAr

07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst og við hjólum frá Sali til Božava
13:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni
Hjólaleið: Sali til Božava 54 km.
Erfðleikastig 5/5, hjólað á malbiki
Siglum til Zadar seinnipartinn en stoppum á leiðinni og fáum tækifæri til að svamla í tærum sjónum
Gist verður í Zadar sem er höfuðborg Zadar sýslu. Í gamla bænum er að finna virkisvegg frá 16.öld sem nú er á heimsminjaskrá UNESCO en hann gegndi mikilvægu hlutverki í varnarkerfi Feneyska lýðveldisins.
Gaman er að skoða og hlusta á sjávarorgelið í Zadar en það er hljóðlistaverk eftir arkitektinn Nikola Bašić þar sem öldurnar sjá um tónlistarflutninginn.
Kvöldverður á eigin vegum í Zadar

DAGUR 4 – þriðjudagur 18.ágúst-ugljan

06:30 Siglt til eyjunnar Ugljan
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð dagsins hefst
12:00 Hádegisverður um borð í snekkjunni
Hjólaleið: Preko – Tkon 32 km
Erfiðleikastig 3/5, hjólað á malbiki og malarstíg
Gist verður við eyjuna Ugljan í bænum Tkon
Kvöldverður um borð í snekkjunni – Skipstjórakvöldverður- þetta kvöld klæðumst við hvítu

DAGUR 5 – miðvikudagur 19.ágúst -vodice

6:30 Siglt til meginlandsins til Biograd na moru
7:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Hjólaferð hefst
13:00 Hádegisverður í sveitinni, gillveisla beint frá býli, ekki innifalinn.
Hjólaleið: Biograd na moru – Vransko jezero 58 km.
Erfðleikastig 4/5, hjólað á malbiki og malarstíg
Gist verður við bæinn Vodice
Kvöldverður um borð í snekkjunni

DAGUR 6 – fimmtudagur 20.ágúst-Šibenik

6:30 Siglt til Šibenik
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Lagt af stað í hjólaferð 
13:00 Hádegisverður í snekkjunni
Hjólaleið: Vodice – Skradin – N.P.Krka 43 km.
Erfðleikastig 3/5, hjólað á malbiki og malarstíg
Gist verður við Šibenik en þessi bær var byggður upp af Króötum en ekki Rómverjum eða Grikkjum eins og flestir bæir í Króatíu. Við munum fara inn í Krk þjóðgarðinn, skoða okkur um og sjá fossana sem þykja einstakt náttúruundur.
Kvöldverður á eigin vegum

DAGUR 7 – föstudagur 21.ágúst-trogir

6:30 Siglt til Trogir
07:30 Morgunverður hefst um borð
09:00 Lagt af stað í hjólaferð dagsins
13:00 Hádegisverður um borð
Hjólaleið: Čiovo penninsula – 20 km.
Erfðleikastig 2/5, hjólað á malbiki
Kvöldverður á eigin vegum í Trogir

DAGUR 8 – laugardagur 22.ágúst-trogir

07:30 Morgunverður hefst um borð og við yfirgefum skipið eigi
síðar en kl 09:00 
Þökkum fyrir góða viku

Verð á mann í tvíbýli kr. 390.000,-

Staðfesting kr. 120.000,- SKILMÁLAR FARARSNIÐS
Vinsamlega tilgreinið herbergisfélaga í athugasemdasvæði á greiðslusíðu

Hlekkinn hér að neðan má nota til að skipta greiðslu fyrir 2 einstaklinga sem deila herbergi

Verð miðast við gengi í ágúst 2025. Ef til þess kemur að Fararsnið ákveður að fella niður ferðina vegna ónægrar þáttöku er hún endurgreidd að fullu.

Greiðsla 2 – eindagi er 20 vikum fyrir brottför, kr. 125.700
Lokagreiðsla – eindagi er 10 vikum fyrir brottför, kr. 125.700

Fararstjórn

Ásta Björk Sveinsdóttir

Reykvíkingurinn Ásta Björk hefur víðtæka reynslu af skipulagningu ferða og fararstjórn. Hún hefur skipulagt ýmsar ævintýraferðir fyrir hópa og má sem dæmi nefna afar velheppnaða blöndu af sælkerasiglingu og rafmagnsreiðhjólaferð í Króatíu.

Auk þess hefur hún verið fararstjóri í skíðaferðum til Ítalíu og Austurríkis, árshátíðarferðum víða um Evrópu, fótboltaferðum og mótsferðum fyrir unglingalandslið HSÍ.

Innifalið

  • Sigling í 8 daga gisting í 7 nætur
  • 7 x morgunverðarhlaðborð
  • 5 x 3 rétta hádegisverður um borð
  • 2 x Kvöldverður um borð 3ja rétta
  • 1 x “Captains Dinner” um borð eitt kvöld, hvíta  kvöldið
  • Leiga á rafmagnshjólum í viku ásamt hjólatösku
  • Reyndir leiðsögumenn í öllum hjólaferðum
  • Aðstoðarbíll fylgir okkur
  • Vatn, ávextir og hnetur alla daga um borð
  • Frítt Internet

EKKI INNIFALIÐ

  • Flug til og frá Króatíu 
  • Gisting fyrir/eftir siglingu
  • Gistináttagjald 50 Eur
  • Inngangseyrir í þjóðgarða (2 x 50 evrur )
  • Drykkir um borð, (ekki er heimilt að neyta eigin drykkja í matsal og á útidekki)
  • 2 x Hádegisverður, beint frá býli, (2 x 35 evrur)
  • Ferðamanna- og hafnarskattar (50 evrur á mann)
  • Þjórfé um borð í lok ferðar fyrir áhöfn og hjólaleiðsögumenn

ANNAÐ

  • Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og / eða heimilistryggingum
  • Fararsnið áskilur sér rétt til að fella niður ferðina ef þáttaka er ekki næg eða vegna ytri aðstæðna
  • Kannið evrópska sjúkratryggingakortið ykkar
  • Allar frekari upplýsingar veitir Ásta Björk s: 611 8811