29. júní – 6. júlí 2019
UPPSELT ER Í FERÐINA – Sjá næstu ferðir hér
Hvað býðst þér í Sælkeragöngunni til Garda?
- Þægilegar gönguferðir þar sem þú upplifir hið daglega líf í sveit og borg.
- Gist á sama hóteli alla ferðina, rétt ofan við póstkortabæinn Garda.
- Sælkeramáltíðir á sérvöldum veitingastöðum, borðvín og vatn innifalið.
- Einstök upplifun: Þú siglir á Gardavatni og stígur á land í fallegustu þorpunum. Þú upplifir óperuflutning á sjálfri Arenu di Verona.
- Notalegar samverustundir með ferðafélögunum og tækifæri til að eignast nýja.
- Lausar stundir og næði til að vera þú sjálf(ur).
FERÐADAGSKRÁ
DAGUR 1
Laugardagur 29. júní
Flogið með Icelandair til Milano á flugi: FI 592 29JUN KEF MXP 1355 1940
Rúta bíður á flugvelli og ekið rakleiðis á gististað.
Gist á: Hótel Poiano ****, við Gardavatn í sjö nætur m/morgunverði.

DAGUR 2
Sunnudagur 30. júní
Morgunverður á hóteli.
Kl. 10:00 létt gönguferð út frá hótelinu og komið á höfðann La Rocca sem gnæfir yfir bæinn Garda.
Kl. 13:00 endað í hádegisverði hjá húsfreyju í sveitinni innifalinn í verði og þaðan rölt aftur heim á hótel. Ganga ca 3 kl.st.
DAGUR 3
Mánudagur 01. júlí
Morgunverður á hóteli – morguninn frjáls.
Kl. 15:00 gengið úr miðbænum meðfram strönd Garda vatns alla leið til bæjarins Bardolino. Friðsæl og falleg leið á jafnsléttu.
Kl. 18:00 komið til ólívukaupmanna, ýmsar vörur smakkaðar og verslað að vild.
Kl. 19:00 kvöldverður snæddur á fjölskyldustað sem frægur er fyrir persónulega þjónustu, þú ert eins og gestur fjölskyldunnar.
Kl. 22:00 rúta til baka heim á hótel.
DAGUR 4
Þriðjudagur 02. júlí
Morgunverður á hóteli. FRJÁLS DAGUR Í GARDA.
DAGUR 5
Miðvikudagur 03. júlí
Kl. 08:30 gengið niður í bæ
Kl. 10:00 sigling á Garda.
Kl. 12:30 komið norður til Limone – þar er dvalið til kl. 16:00 – bátur tekinn yfir vatnið til Malcécine – gengið um nágrennið fyrir ofan.
Kl. 19:00 kvöldverður snæddur á glæsilegum stað við vatnið – innifalinn.
Kl. 21:30 rúta á hótel.

DAGUR 6
Fimmtudagur 04. júlí
Morgunverður á hóteli
Dagurinnn er óskipulagður, sumir vilja loks fá að nota sundlaugargarðinn til fulls eða jafnvel læra að skjóta af boga.
Kl. 19:30. Glæsikvöldverður í sveitinni. Rúta fram og til baka.

DAGUR 7
Föstudagur 05. júlí
Morgunverður á hóteli
Morguninn er óskipulagður, þetta er hinn vikulegi markaðsdagur í Garda og mikið mannlíf í bænum.
Kl. 13:00 dagsferð til Verona, ekið um áhugaverðustu hverfin, gengið um frægustu torg og stræti gömlu miðborgarinar.
Kl. 17:30 síðdegið er frjálst.
Kl. 19:00 Óperu-kvöldverður á glæsilegum stað í hjarta borgarinnar.
Kl. 20:30 Óperusýning í Arenunni – AIDA eftir Verdi.
Kl. 00:30 rúta heim á hótel.

DAGUR 8
Laugardagur 06. júlí
Morgunverður á hóteli.
Brottskráning og uppgjör reikninga. Töskum komið í geymslu.
Kl. 16:00 ekið út á Malpensa flugvöll við Milanó í veg fyrir heimflug með.
FI 593 06JUL MXPKEF 2040 2255
UPPSELT ER Í FERÐINA – Sjá næstu ferðir hér
INNIFALIÐ:
- Flug & skattar til og frá Milanó.
- Rúta allan tímann samkvæmt ferðadagskrá.
- Gisting á 4 stjörnu hóteli m/morgunverði í sjö nætur.
- 2 ríkulegir hádegisverðir m/vatni & borðvíni.
- 3 glæsilegir kvöldverðir m/borðvíni, vatni og kaffi á eftir.
- Miði á upprunalegu uppfærsluna af AIDA, í bestu sætum
- Íslenskur fararstjóri og innlendir leiðsögumenn, þar sem þeir eru nefndir í ferðalýsingu.
Sælkeragöngur eru fyrir þá sem vilja hreyfa sig nokkuð í fríinu sínu, en gera líka vel við sig í mat og drykk.
Gönguferðirnar eru flestar út frá hótelinu. Um styttri dagsferðir er að ræða þar sem gengið er um næsta nágrenni, bæði lægri fjöll og grösugar sveitir. Hvergi er um erfiðar eða langar brekkur að ræða og ýmist er gengið um malbikaða sveitavegi eða skógarstíga.
Á kvöldin er síðan farið á frábæra veitingastaði þar sem bragðlaukarnir fá að ferðast um framandi slóðir. Sælkeragöngur sem þessar eru frábær hugmynd fyrir matarklúbba, saumaklúbba, félagasamtök og aðra vinahópa sem vilja komast í nálægð við fegurð Gardavatnsins og nágrennis og njóta um leið þess besta sem ítölsk matar- og vínmenning hefur upp á að bjóða.
„Jón Karl hjá Fararsniði hélt vel utan um Sælkeragöngu okkar vinkvennanna í ágúst sl. Hann hafði greinilega lagt mikla vinnu í að sníða ferðina sem best að þörfum okkar vinkvennanna og tókst það með miklum ágætum. Veitingastaðir í umhverfi sem lætur mann gleyma stund og stað.
Laufskrúðið hangandi yfir borðum, seitlandi árniður og gæði matarins eftir því, svo ekki sé minnst á ítalskt hvítvinið. Við fengum einnig notið fegurðar Gardavatsins og skemmtilegra bæja sem við það standa.
Þarna vorum við 16 vinkonur í Sælkeragönguferð. Við getum allar sem ein mælt með þessari ferð. Hún var í einu orði sagt algjör unaður og komum við sælar og mikið sáttar heim.
Bestu þakkir, Árósarklúbburinn“